Allir stjórnarflokkarnir tapað fylgi frá síðustu kosningum en mælast með meirihluta

Stjórn­ar­and­staðan sem heild hefur bætt við sig fylgi frá síð­ustu kosn­ingum. Þar munar mestu um aukn­ingu á stuðn­ingi við Pírata en Mið­flokk­ur­inn hefur tapað fylgi. Vinstri græn mæl­ast nú fimmti stærsti flokkur lands­ins.

Ríkisstjórn Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks endurnýjaði hjúskaparheitin eftir síðustu kosningar.
Rík­is­stjórn Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks end­ur­nýj­aði hjú­skap­ar­heitin eftir síð­ustu kosn­ingar. Mynd: Bára Huld Beck

Stjórn­ar­flokk­arnir þrír hafa tapað sam­tals 4,2 pró­sentu­stiga fylgi frá síð­ustu kosn­ingum og mæl­ast nú með minnsta mögu­lega meiri­hluta­fylgi, eða 50,1 pró­sent. Þeir dala líka á milli mán­aða en í lok des­em­ber mæld­ist fylgi þeirra 51,6 pró­sent. Staða stjórn­ar­flokk­anna mælist mjög svipuð og hún gerði þegar fjórir mán­uðir voru liðnir af síð­asta kjör­tíma­bili.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur tapað tveimur pró­sentu­stigum af fylgi og mælist með 22,4 pró­sent stuðn­ing, en er samt sem áður stærsti flokkur lands­ins. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur tapað 0,3 pró­sentu­stigum af fylgi og mælist með 17 pró­sent stuðn­ing og Vinstri græn mæl­ast nú með 10,7 pró­sent fylgi, sem er 1,9 pró­sentu­stigum minna fylgi en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum í sept­em­ber í fyrra. Vinstri græn mæl­ast nú fimmti stærsti flokk­ur­inn á þingi en voru annar stærsti eftir kosn­ing­arnar 2017 og þriðji stærsti eftir kosn­ing­arnar í fyrra­haust.

Þetta kemur fram í nýjum Þjóð­ar­púlsi Gallup sem greint er frá á síðu RÚV.

Þrír stjórn­ar­and­stöðu­flokkar hafa bætt við sig fylgi það sem af er kjör­tíma­bili. Píratar lang­mest, en fylgi þeirra mælist nú 12,5 pró­sent sem er 3,9 pró­sentu­stigum meira en flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum. Sam­fylk­ingin hefur einnig bætt lít­il­lega við sig og mælist nú með 10,8 pró­sent fylgi og Viðreisn hefur bætt við sig rúmu pró­sentu­stigi og mælist með 9,4 pró­sent fylgi. Samtals hafa þessir þrír flokkar bætt við sig 5,9 pró­sentu­stigum frá síð­ustu kosn­ingum og myndu fá 32,7 pró­sent ef kosið yrði í dag og nið­ur­staðan yrði í sam­ræmi við könnun Gallup.

[adspot]Flokkur fólks­ins mælist með nákvæm­lega sama fylgi og hann fékk í síð­ustu kosn­ingum, eða 8,8 pró­sent og eini stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ur­inn á þingi sem hefur dalað í fylgi er Mið­flokk­ur­inn, sem mælist nú með 3,7 pró­sent stuðn­ing. Allir stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir bæta við sig fylgi milli mán­aða.

Sós­í­alista­flokkur Íslands myndi fá 4,3 pró­sent atkvæða ef kosið yrði í dag, sam­kvæmt könnun Gallup, sem er aðeins meira en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum í fyrra­haust en sú aukn­ing er þó vel innan skekkju­marka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár