Miðflokkurinn við það að detta út af þingi samkvæmt nýrri könnun

Tvö stjórn­ar­mynstur eru í kort­unum sam­kvæmt nýrri könnun: áfram­hald­andi sam­starf þeirra flokka sem nú mynda rík­is­stjórn eða sam­starf þeirra flokka sem ráða ríkjum í Reykja­vík­ur­borg.

Það blæs ekki byrlega hjá flokki Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar þessa daganna.
Það blæs ekki byr­lega hjá flokki Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar þessa dag­anna. Mynd: Bára Huld Beck

Mið­flokk­ur­inn er við það að detta af þingi sam­kvæmt nýrri könnun á fylgi flokka sem Maskína gerði fyrir frétta­stofu Stöðvar 2, Bylgj­unnar og Vísis. Þar mælist fylgi Mið­flokks­ins ein­ungis fimm pró­sent, en hann fékk 10,9 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2017.

Til að fá jöfn­un­ar­mönnum úthlutað þarf að ná fimm pró­sent kjör­fylgi á lands­vísu og því má fylgi Mið­flokks­ins ekk­ert dala til við­bótar til að það verði staðan.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist stærsti flokkur lands­ins í könn­un­inni með 23,8 pró­sent stuðn­ing. Vinstri græn bæta við sig á milli kann­ana Maskínu og mæl­ast nú með 15 pró­sent fylgi. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er á svip­uðum stað og hann hefur verið í und­an­förnum könn­unum fyr­ir­tæk­is­ins og mælist með 11,4 pró­sent fylgi. Hann er eini stjórn­ar­flokk­ur­inn sem mælist nú með meira fylgi en hann fékk í síð­ustu kosn­ingum.

[adspot]Sam­an­lagt mæl­ast stjórn­ar­flokk­arnir með 50,2 pró­sent fylgi sem myndi duga til að halda stjórn­ar­sam­starf­inu áfram ef áhugi er fyrir því.

Væri mögulegt að mynda Reykjavíkurstjórn

Sam­fylk­ingin virð­ist ekk­ert vera að hress­ast eftir skarpa dýfu í könn­unum á fyrri hluta árs­ins og mælist nú með 12,4 pró­sent fylgi, sem er nán­ast sama fylgi og flokk­ur­inn mæld­ist með í maí og sem hann fékk í kosn­ing­unum 2017.

Viðreisn mælist næstum jafn stór og Sam­fylk­ingin með 12,3 pró­sent fylgi og Píratar eru ekki langt undan með 11,6 pró­sent fylgi, en tveir síð­ar­nefndu flokk­arnir hafa úti­lokað stjórn­ar­sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Sam­an­lagt fylgi þess­ara þriggja flokka er nú 36,3 pró­sent sem þýðir að þeir gætu myndað rík­is­stjórn með Vinstri grænum að óbreyttu eftir sama mynstri og ríkir í Reykja­vík­ur­borg með 51,3 pró­sent atkvæða á bak­við sig.

Tveir flokkar næðu ekki manni inn

Flokkur fólks­ins, minnsti flokk­ur­inn á þingi eins og er, mælist ekki með mann inni sam­kvæmt könnun Maskínu. Alls segj­ast 4,2 pró­sent kjós­enda ætla að kjósa flokk­inn.

Sós­í­alista­flokk­ur­inn mælist á svip­uðum slóðum, með 4,3 pró­sent fylgi, en hann býður nú fram til þings í fyrsta sinn.

Haldi fylg­is­hrun Mið­flokks­ins áfram með sama hætti og könnun Maskínu bendir til þá gæti sú staða komið upp að flokk­unum sem eiga sæti á Alþingi fækk­aði úr átta í sex.

Næsti þing­kosn­ingar fara fram 25. sept­em­ber næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár