COVID-19 bítur fasteignafélögin

Rekstr­ar­skil­yrði fast­eigna­fé­lag­anna þriggja í Kaup­höll­inni, Reita, Regins og Eikar, hafa versnað vegna áhrifa útbreiðslu kór­ónu­veirunnar. Þar vega hót­el­eignir félag­anna þyngst.

Frá Borgartúni í Reykjavík
Frá Borg­ar­túni í Reykja­vík Mynd: Bára Huld Beck

Áhrifa heims­far­ald­urs­ins er að gæta í nýbirtum árs­hluta­reikn­ingum fast­eigna­fé­lag­anna í Kaup­höll­inni, en tvö þeirra skil­uðu tapi á fyrstu níu mán­uðum árs­ins á meðan hagn­aður eins þeirra á tíma­bil­inu svo gott sem hvarf. Þessa stöðu má mest­megnis rekja til hót­el­eigna félag­anna, en leigu­tekjur frá öðrum eignum þeirra breytt­ust lítið á tíma­bil­inu ef miðað er við síð­asta ár.

Fast­eigna­fé­lögin Reitir, Reginn og Eik skil­uðu öll árs­hluta­upp­gjöri sínu fyrir fyrstu níu mán­uði árs­ins á dög­unum. Samkvæmt til­kynn­ingum sem fylgdu þeim öllum hefur COVID-19 heims­far­ald­ur­inn haft mikil áhrif á rekstur félag­anna og búast þau við að finna fyrir þeim út næsta ár.

Í fyrra nam hagn­aður félag­anna tveimur til fjórum millj­örðum króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. Í ár skil­aði Eik um 200 milljón króna rekstr­ar­tapi á sama tíma­bili, en tapið nam 300 millj­ónum króna hjá Reitum. Rekstur Regins náði að vera réttum megin við núllið, en hagn­aður félags­ins dróst saman um 95 pró­sent milli tíma­bila og var hann því aðeins í mýflugu­mynd miðað við í fyrra.

Ekki mikill samdráttur í leigutekjum

Félögin sjá öll um útleigu á atvinnu­hús­næði, en sam­kvæmt Þjóðskrá hefur verið minna keypt af þeim eftir að far­ald­ur­inn hófst í mars á þessu ári. Á milli mars- og ágúst­mán­aðar hefur heild­ar­virði við­skipta á atvinnu­hús­næði dreg­ist saman um rúman þriðj­ung, ef miðað er við sama tíma­bil í fyrra.

Hins vegar má ekki sjá jafn­mik­inn sam­drátt í leigu­tekjum félag­anna þriggja. Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins mink­uðu leigu­tekjur hjá Reitum um sjö pró­sent, en sam­drátt­ur­inn nam aðeins einu pró­senti hjá Reginn og leigu­tekj­urnar juk­ust um eitt pró­sent hjá Eik.

Mestmegnis vegna hóteleigna

Áhrif COVID-19 far­ald­urs eru þó ljós ef leigu­tekj­urnar eru skoð­aðar eftir atvinnu­greinum. Samkvæmt árs­reikn­ingi Reita hafa leigu­tekjur af skrif­stofu­hús­næði raunar auk­ist lít­il­lega og ein­ungis lækkað lít­il­lega í versl­un­ar­hús­næði félags­ins.

Lang­mesta sam­drátt­inn hjá öllum félög­unum má sjá í leigu­tekjum frá hót­el­eignum þeirra, en hann nam 371 millj­ónum króna hjá Eik og rúmum hálfum millj­arði króna hjá Reitum. Samkvæmt fjár­festa­kynn­ingu Regins hefur leiga á eignum félags­ins verið bak­færð á öðrum og þriðja árs­fjórð­ungi að and­virði 360 millj­óna króna.

Eignir minna virði en áður

Til við­bótar við minni leigu­tekjur hafa félögin þrjú einnig þurft að færa eignar sínar niður í virði, þar sem vænst er þess að þær muni ekki skila jafn­miklum tekjum og áður var ætlað. Reitir lækk­uðu virði eigna sína um tæpa 800 milljón króna á tíma­bil­inu, en sam­svar­andi lækkun hjá Eik nam tæpum hálfum millj­arði króna.

Virði hót­el­eigna Regins minnk­aði einnig um tæpa 800 miljón króna, auk þess sem virði versl­un­ar­hús­næðis í eigu félags­ins minnk­aði einnig um 200 millj­ónir, þá jókst virði skrif­stofu­hús­næðis þess um rúman millj­arð. Þar af leið­andi voru litlar sem engar breyt­ingar á virð­is­mati eigna Regins á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. Hins vegar er það mikil breyt­ing frá sama tíma­bili á síð­asta ári, þegar virði eigna félags­ins hækk­aði um 3,3 millj­arða króna.

Hlutafjáraukning og arðgreiðslur

Samhliða verri rekstr­ar­skil­yrðum efndu bæði Reitir og Reginn til hluta­fjár­út­boðs til að styrkja eig­in­fjár­stöðu sína í síð­asta mán­uði. Með útboði sínu náði Reginn að tryggja alls 600 millj­ónir króna, en útboð Reita var öllu stærra í sniðum og fékk félagið rúma fimm millj­arða króna frá hlut­höfum í kjöl­far þess.

Bæði félögin greiddu líka arð á tíma­bil­inu, en arð­greiðslur Regins námu rúmum hálfum millj­arði, á meðan þær voru rétt yfir einum millj­arði hjá Reitum. Eik efndi ekki til hluta­fjár­út­boðs og greiddi engan arð á tíma­bil­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár