Víðir: „Við ætlum að ná þessu niður“

Víðir Reyn­is­son var ein­lægur en ákveð­inn á upp­lýs­inga­fundi dags­ins, þeim fyrsta eftir veru­lega hertar aðgerðir á sam­komum. „Veiran er and­stæð­ing­ur­inn og hún er hvorki fyr­ir­sjá­an­leg né sann­gjörn,“ sagði hann.

Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra. Mynd: Lögreglan

„Við höfum ekki lent í því að fólk sé bein­línis að reyna að leiða okkur á rangan veg heldur frekar það að það gefi ekki allar upp­lýs­ingar,“ segir Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá rík­is­lög­reglu­stjóra, um áskor­anir sem upp hafa komið við smitrakn­ingu að und­an­förnu. Hann segir umræðu um þessi mál um helg­ina hafa orðið til þess að fólk hefur haft sam­band, leið­rétt og bætt við upp­lýs­ingum sem það hafði áður gefið smitrakn­ing­arteym­inu. „Ég held að menn hafi áttað sig á mik­il­vægi þess að taka þátt í þessu verk­efni og ég hef ekki áhyggjur af að þetta verði vanda­mál héðan í frá.“

Víðir sagði á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag að ekki væri rétt að lög­reglan hefði fengið aðgang að greiðslu­korta­færslum við­skipta­vina á vín­veit­inga­stöðum til að rekja hópsmit. Hins vegar hafi í þremur til­fellum, þar sem margt fólk hafði komið á staði þar sem smit kom upp, var óskað eftir því að rekstr­ar­að­ilar myndu kanna hvort þeir gætu og mættu gefa upp ákveðnar upp­lýs­ingar um við­skipta­vini svo hægt yrði að koma til þeirra upp­lýs­ingum. Nið­ur­staðan var sú að sam­eig­in­leg beiðni rekstr­ar­að­ila og almanna­varna (sótt­varna­læknis) var send til korta­fyr­ir­tækja um að fá síma­númer fólks­ins sem var á stöð­unum til að geta boðað það í skimun. Korta­fyr­ir­tækin skoð­uðu málið og töldu sér heim­ilt að gera það. „Þannig að við fengum núm­er­a­lista og við­kom­andi aðilar fengu send boð um skimun,“ sagði Víðir. „Þannig not­uðum við þessar upp­lýs­ingar og töldum það í lagi að gera það með þessum hætti.“ Engin nöfn hafi fylgt.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir ítrek­aði að þær upp­lýs­ingar sem út úr þess­ari skoðun komu eru á ábyrgð sótt­varna­læknis, lög­reglan hefur þær ekki. „Þetta eru eins og aðrar upp­lýs­ingar sem safnað er vegna COVID, þær eru í gagna­grunnum sótt­varna­læknis.“

[links]Víðir sagð­ist skilja mjög vel að fólki þætti óþægi­legt að segja hvað það hafi verið að gera og hverja það hafi verið að hitta. „Alls konar hugs­anir um það hvort við hefðum átt að gera hlut­ina með ein­hverjum öðrum hætti,“ sagði hann en bætti svo við: „Ekki vera að eyða tíma í það. Hjálpið okkur bara að vinna í þessu. Hjálp­umst að við að finna þau sem gætu hugs­an­lega hafa smit­ast og tryggjum að þau geti fengið upp­lýs­ingar til að geta tekið ákvörðun um sínar varnir, sér og sínum til hags­bóta.“

Eftir þessa brýn­ingu tal­aði Víðir beint til þjóð­ar­innar í lok fundar dags­ins. „Við erum núna í stöðu sem við vildum gjarnan hafa sloppið við að vera í. Við breytum ekki því sem hefur orðið en við getum ráðið því hvert fram­haldið verður.

Það mun taka okkur næstu daga að aðlaga okkur að þessum nýju reglum. Við þurfum að vera umburð­ar­lynd þangað til það ger­ist.

Það er bara ein leið áfram í þessu og það er sam­staða. Við þurfum að taka hvert ein­asta mál og hvert ein­asta verk­efni í þessu og tækla það af skyn­semi. Við þurfum að horfa á þetta í litum skrefum og taka hvert verk­efni og sigra það.“

Hann fór svo yfir mik­il­vægi per­sónu­legra smit­varna og hvatti alla til að gæta vel að sér hvað varðar hand­þvott, sótt­hreinsun sam­eig­in­legra snertiflata og þar fram eftir göt­unum.

„Við þurfum að halda áfram að vernda við­kvæma, hringja í þá sem eru einir, gera eitt­hvað skemmti­legt fyrir þá sem kom­ast ekki út. Það reynir á þol og þraut­seigju núna. Ekkert er hafið yfir gagn­rýni en munum heild­ar­mark­miðið sem er eins og við vitum að tak­marka eins og við getum frek­ari útbreiðslu. Veiran er and­stæð­ing­ur­inn,“ sagði Víðir og lagði áherslu á orð sín með því að hamra með fingrum á púltið fyrir framan sig. „Hún er ekki fyr­ir­sjá­an­leg og hún er ekki sann­gjörn. Við hins vegar höfum sýnt að við getum ALLT þegar við stöndum saman. Við ætlum að ná þessu niður,“ sagði Víðir og hélt áfram að leggja mikla áherslu á orð sín. „Við munum vinna marga bar­daga og litlir sigrar skapa mikla vel­gengni. Tökum einn dag í einu, hjálp­umst að. Leið­beinum, pössum upp á hvert annað og sýnum öðrum vin­semd og virð­ingu.

Þetta verður áfram í okkar höndum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár