Von á stefnumarkandi dómi vegna tvöfaldrar refsingar fyrir skattalagabrot

Hæsti­réttur Íslands var full­skip­aður þegar mál manns sem ákærður var fyrir meiri háttar skatta­laga­brot var flutt á mánu­dag. Ástæðan er sú að rétt­ur­inn mun í fyrsta sinn taka afstöðu til dóms Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu um tvö­falda refs­ingu.

Síð­ast­lið­inn mánu­dag var flutt mál í Hæsta­rétti geng manni sem hafði verið dæmdur sekur í hér­aðs­dómi Reykja­víkur fyrir stór­fellt skatta­laga­brot. Hann hafði ekki talið fram fjár­magnstekjur á árunum 2008 og 2009 upp á sam­tals 87 millj­ónir króna á skatt­fram­tali sínu. Um var að ræða tekjur af sölu hluta­bréfa og upp­gjör á tugum fram­virkra samn­inga.

Í máls­með­ferð fyrir hér­aðs­dómi sagð­ist hann hafa verið í góðri trú um að fram­tölin hefðu verið rétt og að hann hefði keypt sér aðstoð sér­fræð­inga til að sjá um þessi mál. Maðurinn vefengdi hins vegar ekki að á það hefði skort að talið hefði verið rétt fram þrátt fyrir að það hefði ekki verið ásetn­ingur hans að gera slíkt. Þegar villur hafi komið í ljós hafi hann látið skila leið­réttum gögnum og greitt allt sem á hann hefði verið lagt af opin­berum gjöldum eftir það að með­töldu 25 pró­sent álagi.

Málsvörn manns­ins byggð­ist meðal ann­ars á því að það ætti að vísa máli hans frá á grund­velli mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu, þar sem fram komi að eng­inn skuli sæta lög­sókn eða refs­ingu að nýju fyrir sama brot. Þar sem mað­ur­inn hefði sætt end­an­legum úrskurði skatt­yf­ir­valda um álag á skatt­stofn væri búið að refsa honum. Hér­aðs­dómur féllst ekki á þessa málsvörn og dæmdi mann­inn í þriggja mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi um miðjan mars í fyrra og til að greiða 13,8 millj­óna króna sekt í rík­is­sjóð. Ef hann myndi ekki greiða sekt­ina ætti hann að sæta fang­elsi í sjö mán­uði.

Maðurinn áfrýj­aði nið­ur­stöð­unni til Hæsta­réttar Íslands og mál­flutn­ingur átti upp­haf­lega að fara fram í mál­inu í mars síð­ast­liðnum, en var frestað. Hann fór hins vegar, líkt og áður sagði, fram á mánu­dag. Og nú er beðið nið­ur­stöðu.

Það sem er athygl­is­vert við þetta mál, sem er ansi fjarri því að vera stærsta mál sinnar teg­undar sem ratar fyrir íslenska dóm­stóla, er að sjö dóm­arar Hæsta­réttar munu dæma í því. Rétt­ur­inn er með öðrum orðum full­skip­aður. Það ger­ist ein­ungis þegar um grund­vall­ar­mál er að ræða. Ástæðan er sú að Hæsti­réttur mun að öllum lík­indum fella stefnu­mark­andi dóm í þessu máli.

Brot gegn Jóni Ásgeiri og Tryggva

Þann 18. maí síð­ast­lið­inn komst Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu að þeirra nið­ur­stöðu að íslenska ríkið hefði brotið gegn Jóni Ásgeiri Jóhann­essyni og Tryggva Jónssyni þegar þeir voru dæmdir í skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir skatta­laga­brot í rekstri Baugs og fjár­fest­inga­fé­lags­ins Gaums árið 2013, ásamt Kristínu Jóhann­es­dóttur. Þeir kærðu þann dóm til Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins á þeim for­sendum að þeir hefðu þegar hlotið dóm fyrir sömu brot. Þeir höfðu verið dæmdir til að greiða álag ofan á end­ur­á­kvörðun skatta af yfir­skatta­nefnd árið 2007. Málin tvö hefðu verið byggð á sama grunn­i. Og því væri verið að refsa þeim tví­vegis fyrir sama brotið.

Fram að þeim tíma hafði það tíðkast hér­lendis að þeir sem sviku stór­fellt undan skatti skyldu greiða hátt álag ofan á þá van­goldnu skatta sem þeir skyldu end­ur­greiða. Ef um meiri­háttar brot var að ræða þá var við­kom­andi einnig ákærður fyrir meiri háttar skatta­laga­brot, en við slíkum brotum liggur allt að sex ára fang­elsi.

Þegar Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn hefur kom­ist að nið­ur­stöðu þá þarf að falla dómur í Hæsta­rétti um sam­bæri­legt efni til að fram komi hver áhrif nið­ur­stöð­unnar verði á íslenska dóma­fram­kvæmd. Sá dómur verður í máli manns­ins sem rakið var hér að ofan. Þegar hann fellur þá mun liggja fyrir hvernig eigi að fara með stór­felld skatta­brota­mál.

Nálægt 100 málum slegið á frest

Dómur Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins í maí hafði veru­leg áhrif á fjöl­mörg mál sem eru til með­ferðar hjá emb­ætti Hér­aðs­sak­sókn­ara, sem fer með rann­sóknar- og ákæru­vald í málum sem þessum. Þ.e. mál þar sem álagi hafði þegar verið beitt en til stóð að rann­saka, og sak­sækja, vegna brota á almennum hegn­ing­ar­lögum líka.

Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans eru þau mál sem slegið var á frest vegna dóms­ins nálægt 100. Um er að ræða mál sem eru í rann­sókn, sem eru að bíða eftir að kom­ast í rann­sókn og mál sem búið var að rann­saka, og jafn­vel ákæra í.

Framhald þeirra mála ætti að liggja fyrir þegar Hæsti­réttur kemst að nið­ur­stöðu sinni í máli manns­ins sem vantaldi fjár­magnstekjur upp á 87 millj­ónir króna á skatt­fram­tal­inu sínu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár