Mikið tap á rekstri Morgunblaðsins á síðasta ári

Í árs­reikn­ingi eins stærsta eig­anda Morg­un­blaðs­ins er að finna hlut­deild hans í tapi útgáfu­fé­lags fjöl­mið­ils­ins á síð­asta ári. Umræddur eig­andi á 16,45 pró­sent í Árvakri og hlut­deild hans í tapi félags­ins var 43,9 millj­ónir króna.

Þórsmörk ehf., eig­andi útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins, tap­aði um 267 millj­ónum krónum í fyrra sam­kvæmt því sem má lesa úr árs­reikn­ingum eins stærsta eig­anda félags­ins, Hlyns A ehf. Þar kemur fram að hlut­deild Hlyns A ehf. í tapi Þórs­merkur á árinu 2017 hafi verið 43,9 millj­ónir króna. Alls á félagið 16,45 pró­sent hlut í Þórsmörk sem þýðir að heild­ar­tap Þórs­merkur var 267 millj­ónir króna miðað við upp­lýs­ing­arnar í árs­reikn­ingnum.

Hvorki Þórsmörk né Árvakur, útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins, hafa skilað árs­reikn­ingi fyrir árið 2017, en útgáfu­fé­lagið er eina eign Þórs­merkur. Und­an­farin ár hafa upp­lýs­ingar í árs­reikn­ingum félaga sem eiga í Þórsmörk hins vegar sýnt hvert tap Árvakurs er. Fyrir árið 2016 var t.d. tap Hlyns A vegna hlutar félags­ins í Þórsmörk í fullu sam­ræmi við það tap sem Árvakur opin­ber­aði þegar árs­reikn­ingur þess félags var birtur.

1,8 milljarða tap frá 2009

Árvakur, sem rekur Morg­un­blaðið, mbl.is, Eddu-útgáfu og útvarps­stöð­ina K100 tap­aði 49,7 millj­ónum króna á árinu 2016. Því rúm­lega fimm­fald­að­ist tapið á milli ára. Frá því að nýir eig­endur tóku við rekstr­inum árið 2009 hefur félagið tapað tæp­lega 1,8 millj­örðum króna, að með­töldu tap­inu sem fram kemur í árs­reikn­ingi Hlyns A ehf.. Tap hefur verið á rekstri Árvakurs öll árin frá því að eig­enda­skiptin urðu utan þess að Árvakur skil­aði sex millj­óna króna hagn­aði árið 2013. Mest var tapið á árunum 2009-2011, en eftir það virt­ist rekst­ur­inn vera að ná jafn­vægi að nýju á árunum 2012-2014. Tapið hefur hins vegar auk­ist mikið á síð­ustu þremur árum og nam tæpum hálfum millj­arði króna frá árs­byrjun 2015 til síð­ustu ára­móta. Hlut­hafar Árvakurs hafa sett inn rúm­lega 1,4 millj­arða króna hið minnsta í nýtt hlutafé á þeim tíma.

Við­skipta­banki Árvakurs, Íslands­banki, hefur afskrifað um 4,5 millj­arða króna af skuldum félags­ins frá árinu 2009. Þorri þeirra afskrifta átti sér stað í aðdrag­anda þess að félagið var selt nýjum eig­enda­hópi á því ári. Síðari lota afskrifta átti sér svo stað árið 2011 og var upp á einn millj­arð króna.

Þrátt fyrir mik­inn tap­rekstur hefur Ávakur verið í sókn og leitað inn á nýjar fjöl­miðla­lendur. Félagið keypti útvarps­­­stöð­ina K100 árið 2016 og hefur fjár­fest umtals­vert í upp­bygg­ingu hennar, meðal ann­ars með því að ráða lands­þekkta fjöl­miðla­menn á borð við Loga Bergmann Eiðsson, Friðriku Geirs­dóttur og Rúnar Frey Gíslason til að sinna dag­skrár­gerð. K100 mælist með 3,8 pró­sent hlust­un­ar­hlut­deild hjá lands­mönnum á aldr­inum 12-80 ára sam­kvæmt nýj­ustu mæl­ingum Gallup. Vin­sæl­ustu útvarps­stöðvar lands­ins, Bylgjan og Rás 2, eru með ann­ars vegar 29,5 pró­sent hlut­deild og hins vegar 29 pró­sent.

Sviptingar í eigendahópi

Í apríl í fyrra var til­kynnt að Eyþór Arn­alds, nú odd­viti Sjálf­stæð­is­manna í borg­ar­stjórn Reykja­víkur, hefði keypt 26,6 pró­sent hlut í Árvakri. Um væri að ræða allan hlut Sjáv­ar­út­vegs­ris­ans Sam­herja, hlut Síld­ar­vinnsl­unnar og Vísis hf. Fyrir þann tíma höfðu fyr­ir­tæki tengd sjáv­ar­út­vegi, beint og óbeint, verið eig­endur að um 96 pró­sent í félag­inu. Eyþór hefur sagt að hlut­ur­inn sé til sölu ef að kaup­andi finnst að honum.

Upp­lýs­ingar um eign­ar­hald Þórs­merkur, eig­anda Árvak­urs, voru upp­færðar á heima­síðu Fjöl­miðla­nefndar í sept­em­ber 2017 líkt og lög gera ráð fyr­ir. Þá hafði verið tekið til­lit til 200 millj­óna króna hluta­fjár­aukn­ingar sem átt hafði sér stað í fyrra. Í Frétta­blað­inu í fyrra var greint frá því að Kaup­fé­lag Skag­firð­inga hefði lagt til mest af þeim pen­ingum sem lagðir voru til við­­bótar í félagið og við það minn­k­aði hlutur Ram­ses II, félags í eigu Eyþórs Arn­alds, um nærri tvö pró­­sent­u­­stig, og er nú 22,87 pró­­sent. Kaup­­fé­lag Skag­­firð­inga á nú 15,84 pró­­sent í Þór­s­­mörk í gegnum félagið Íslenskar sjá­v­­­ar­af­­urð­ir.

Félög tengd Ísfé­lagi Vest­manna­eyja eru hins vegar enn með sam­an­lagt stærstan eign­ar­hlut. Ísfé­lagið á sjálft 13,43 pró­sent hlut og áður­nefnt félag, Hlynur A, í eigu Guð­bjargar Matth­í­as­dótt­ur, aðal­eig­anda Ísfé­lags­ins, á 16,45 pró­sent hlut. Hlynur A mat eign­ar­hlut sinn í Þórsmörk á 177,7 millj­ónir króna í lok árs 2016 en mat eign­ar­hlut­inn á 135 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót. Það þýðir að heild­ar­virði Þórs­merkur, og þar af leið­andi Árvakurs, hefur farið úr um 1.080 millj­ónum króna í 820 millj­ónir króna á einu ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár