Norðausturkjördæmi tekur Sigmundi ekki opnum örmum

For­ystu­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi hafa efa­semdir um að end­ur­koma Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar í kjör­dæmi sé góð fyrir flokk­inn. Fyrr­ver­andi odd­viti á Akureyri íhugar úrsögn úr flokknum ef Sig­mundur heldur áfram.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson ætlar að bjóða sig aftur fram í Norðausturkjördæmi.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son ætlar að bjóða sig aftur fram í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Mynd: Birgir Þór

Forysta Fram­sókn­ar­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi segir að flokks­þing muni skera út um hvort Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son verði áfram for­maður flokks­ins. Odd­vit­inn á Húsavík efast um að Sig­mundur njóti braut­ar­gengis og odd­vit­inn á Akureyri segir flokks­þing og mið­stjórn­ar­fund munu skera út um nið­ur­stöð­una. Fyrr­ver­andi odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins á Akureyri seg­ist íhuga að segja sig úr flokknum ef Sig­mundur heldur áfram og er dapur yfir stöð­unni.

Ætlar aftur fram í Norðausturkjördæmi

Sig­mundur gaf það út í Morg­un­blað­inu í morgun að hann hygg­ist bjóða fram krafta sína í kom­andi kosn­ingum í sínu kjör­dæmi, Norð­austur. Bæj­ar­full­trúar Fram­sókn­ar­flokks­ins á Akureyri sendi frá sér harð­orða yfir­lýs­ingu í kjöl­far Wintris-máls­ins þar sem Sig­mundur var kraf­inn um að segja af sér sem for­sæt­irsáð­herra án tafar „vegna þess trún­að­ar­brests“ sem hafði skap­ast á milli Sig­mundar og flokk­manna og lands­manna allra. Þá komu áhrifa­menn fram í Kjarn­anum og sögðu hann ekki vel­kom­inn aftur í kjör­dæmið.

Efast um að Sigmundur njóti brautargengis

Gunn­laugur Stef­áns­son, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins á Húsavík og Norð­ur­þingi, segir skiptar skoð­anir meðal flokks­manna um fram­tíð
Sig­mundar. „Kjör­dæma­þing verður haldið í ágúst og þá fær Sig­mundur skýr skila­boð um hvort fram­sókn­ar­menn í Norð­austur vilji hafa hann áfram í því kjör­dæmi,“ segir Gunn­laugur í sam­tali við Kjarnann. Hann bætir við að Sig­mundur hafi komið og skýrt málið frá sinni hlið fyrir flokks­mönnum. „Ég held að hann hafi gert það ágæt­lega. En ég er enn á þeirri skoðun að ég á síður von á því að hann njóti braut­ar­gengis hér. Það hefur ekki breyst.“

[adspot]

Gunn­laugur segir Sigmund þá kannski eiga mögu­leika í öðrum kjör­dæmum. Vissu­lega séu ein­hverjir fram­sókn­ar­menn á Norð­aust­ur­landi sem vilji hafa hann áfram, aðrir vilji að hann víki. En er ekki vont að flokk­ur­inn, sem er að mæl­ast með afar lítið fylgi í skoð­ana­könn­unum, sé svo klof­inn í aðdrag­anda kosn­inga? 

„Vissu­lega er það vont,“ segir Gunn­laugur. „Ég er þeirrar skoð­unar að Sig­mundur hafi staðið sig vel í þeim málum sem hann keyrði áfram með. En hann gerði mis­tök og það eru flokks­menn sem eiga að ráða fram­hald­inu. Svo er spurn­ing hvenær verður kosið í haust eða vor eða hvað. Þetta eru skrýtnir tímar.“

Útkoman endurspegli vilja flokksmanna

Guð­mundur Baldvin Guð­munds­son, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins á Akureyri, var einn þeirra sem skrif­aði undir yfir­lýs­ing­una í apríl. Í sam­tali við Kjarnann í dag segir hann að það sé ekki hans að dæma um hvort Sig­mundur sé vel til þess fall­inn að mæta aftur í stjórn­málin í kjör­dæm­inu eða halda áfram sem for­maður.

„Við erum með kerfi í kring um það hvernig við veljum á lista. Það þarf að boða til mið­stjórn­ar­fundar og það þarf end­ur­nýjun umboðs for­yst­unnar,“ segir Guð­mundur. „Ég held að þetta sé sá far­vegur sem málin hljóti að fara í. Maður getur haft sínar per­sónu­legu skoð­anir á þessu, en þetta er lýð­ræð­is­legur flokkur og skoðun flokks­manna hlýtur að end­ur­spegla útkom­una.“

Guð­mundur segir að þó að Sig­mundur komi með yfir­lýs­ingar um hvað hann vilji gera, þá séu það flokks­menn sem hafi loka­orðið um hvert skuli halda.

„Ef menn eru ekki sáttir við þá nið­ur­stöðu verður svo bara tekið á því þegar þar að kemur,“ segir hann. „Menn þurfa að fara í gegn um þetta ritúal til að fá skýran vilja flokks­manna fram, það er rétti far­veg­ur­inn. Svo getur maður velt fyrir sér hvort maður sé sáttur við útkom­una eða ekki.“

Flokkurinn muni gjalda þess illilega ef Sigmundur heldur áfram

Jóhannes Bjarna­son, fyrr­ver­andi odd­viti Fram­sókn­ar­manna á Akureyri, seg­ist dapur yfir fram­vindu mála.

„Það er eig­in­lega úr mér allur vindur. Ég ein­fald­lega skil ekki þessi þróun og þetta dóm­greind­ar­leysi for­manns­ins. Flokk­ur­inn mun gjalda þess illi­lega ef [Sig­mundur] heldur sínu striki,“ segir Jóhannes við Kjarnann. „Það hefur ekk­ert breyst frá því í apríl. Hann var, og er, óhæfur til þess að sinna emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra og hann hlýtur á end­anum að hafa tekið þá ákvörðun sjálfur. Það hefur ekk­ert breytst í því máli, hann er jafn van­hæfur núna og þegar hann tók þá ákvörðun sjálfur að hætta. Nú hefur hann hins vegar tekið þá ákvörðun að halda flokknum í gísl­ingu með því að ein­fald­lega fara ekki.“

Íhugar úrsögn ef þetta verður niðurstaðan

Jóhannes hefur ekki mikla trú á að ein­hver af þremur kom­andi sam­komum Fram­sókn­ar­flokks­ins muni afstýra því að Sig­mundur haldi áfram; kjör­dæm­is­þing, mið­stjórn­ar­fundur og lands­fundur.

„Ég er dapur yfir þessu og mér líður illa,“ segir Jóhannes. „Mér þykir vænt um Fram­sókn­ar­flokk­inn og hef stúss­ast lengi í stjórn­málum til að gera sam­fé­lagið betra. Ég hef svo sem engin áhrif lengur á fram­vindu mála, en nú er komin upp eins konar herkvís­staða sem eng­inn virð­ist eiga nægi­lega öflug vopn til að sprengja sig út úr.“

Jóhannes seg­ist ætla að hugsa sinn gang mjög ræki­lega ef nið­ur­staðan verði sú að Sig­mundur haldi áfram sem for­maður og ætli að leiða list­ann í Norð­aust­ur­kjör­dæmi.

„Ef það verður þá held ég að maður ger­ist bara utan­garðs­maður í þessum bransa.“

Ekki hefur náðst í Sigmund Davíð Gunn­laugs­son í morgun. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár