Forysta Framsóknar í norðausturkjördæmi lokar dyrum á Sigmund

Sig­mundur Davíð á mikið verk óunnið til að öðl­ast traust kjör­dæmis síns á ný. Oddviti Fram­sóknar á Húsavík, kjör­dæmi Sig­mundar, vill að hann hætti sem for­maður. „Hann kemur ekki hingað og talar við okkur sem for­maður" segir fyrr­ver­andi odd­viti á Akureyri.

Staða Sigmundar Davíðs sem formaður Framsóknarflokksins er orðin afar erfið.
Staða Sig­mundar Davíðs sem for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins er orðin afar erfið. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er í sárum eftir vend­ingar síð­ustu daga. Ákvörðun Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, um að sitja áfram á þingi og víkja ekki sem for­maður hefur valdið mörgum Fram­sókn­ar­mönnum áhyggjum. 

Kjarninn er að fylgj­ast með umræðum á Alþingi í beinum frétta­straumi hér

Heimakjördæmið skellir í lás

Fram­sókn­ar­menn í heima­kjör­dæmi Sig­mundar Davíðs, norð­aust­ur­kjör­dæmi, eru ugg­andi yfir stöð­unni sem komin er upp innan flokks­ins, sem er sagður veru­lega lask­aður eftir atburði síð­ustu daga. 

Gunn­laugur Stef­áns­son, odd­viti Fram­sóknar á Húsavík, segir að Sig­mundur hafi strax átt að segja af sér sem ráð­herra. Varðandi áfram­hald­andi for­mennsku segir hann það muni ger­ast á vett­vangi flokks­ins. 

„En ég á síður von á því að hann hljóti braut­ar­gengi,” segir hann. „Fólk er slegið, en menn takast bara á við þá stöðu.” Hann segir áfram­hald­andi for­mennska Sig­mundar skaði gengi flokks­ins í kom­andi kosn­ingum.

„Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn verður örugg­lega smá stund að vinna úr þessu og Sig­mundur á eftir að skýra málið fyrir okkur,” segir Gunn­laugur. „Svo finnst mér að for­maður og vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins eigi að fara að for­dæmi Sig­mundar og stíga til hliðar.”

„Pólitíkin hefur sett á hann stöðvunarskyldu”

Það vakti athygli eftir Kast­ljós­þátt sunnu­dags­ins þegar Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn á Akureyri sendi frá sér yfir­lýs­ingu þar lýst var yfir algjöru van­trausti á Sigmund Davíð og hann hvattur til að segja af sér ráð­herra­emb­ætti og sem for­maður.

Jóhannes Bjarna­son, fyrr­ver­andi odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins á Akureyri, seg­ist vera full­kom­lega ósáttur við ástandið eins og það er.

„Sig­mundur hrökkl­ast úr ráð­herra­stól, ástæð­una vitum við öll og fólki ofbauð gjör­sam­lega. Ég skildi aldrei þetta orð­skrípi „póli­tískur ómögu­leiki,” en nú er ég farin að skilja það. Það er „póli­tískur ómögu­leiki” að maður sem getur ekki setið sem ráð­herra, vegna þess að hann verður upp­vís að því að fela upp­lýs­ingar, heldur áfram að vera for­maður. Því for­maður í flokki hefur það að tak­marki að leiða flokk­inn inn í kosn­ingar og vænt­an­lega að ná þeim árangri að kom­ast í rík­is­stjórn og þá verða ráð­herra. Það er ekki hægt,” segir Jóhannes. „Þessi heift­ar­legi dóm­greind­ar­brestur með þennan aflands­reikn­ing, hann breyt­ist ekk­ert. Hann verður að hætta sem for­maður flokks­ins og hann verður að hætta á þingi.”

[adspot]

Jóhannes segir að ef flokk­ur­inn eigi að ná vopnum sínum aftur verði for­mað­ur­inn að víkja.

„Það má nú vera ljóta póli­tíska blindan að átta sig ekki á því að hann geti ekki haldið áfram sem for­maður,” segir hann. „Þó að Ísland væri efst á öllum líf­kjara­listum í heim­inum, breytir það því ekki að hann gerði heift­ar­leg mis­tök og að póli­tíkin hafi sett á hann stöðv­un­ar­skyldu. Hvað þarf meira til en póli­tískan æru­missi á alþjóð­legan, stóran mæli­kvarða?” Jóhannes und­ir­strikar þó að Sig­mundur hafi gert margt gott í gegn um tíð­ina, þá sér­stak­lega varð­andi upp­gjör við slitabú föllnu bank­ana.

Reiddist vegna spurningar um rasisma

Jóhannes lýsir fundi sem hann átti með fram­sókn­ar­mönnum eftir síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar og á svip­uðum tíma og Gústaf Níelsson var útnefndur full­trúi Fram­sókn­ar­flokks í mann­rétt­inda- og sam­fé­lags­ráð Reykja­vík­ur­borgar. Þá höfðu ráð­herrar og þing­menn lýst því yfir að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn væri ekki að leggja lag sitt við öfga­skoð­anir eins og Svein­björg Birna Svein­björns­dóttir, odd­viti Fram­sóknar og flug­valla­vina, var sögð daðra við í Reykja­vík.

„Þau höfðu öll stað­fest þetta og Gunnar Bragi tók kannski sterkast til orða,” segir Jóhannes. „Svo kom Sig­mundur og flutti ræðu á fund­inum og að henni lok­inni voru fyr­ir­spurnir. Ég spurði hvort hann vildi í góðu tómi taka af öll tví­mæli með að þessi nún­ingur við svona ras­ista­drasl í þessum málum sem borg­ar­stjórn­ar­flokk­ur­inn var nuddað upp úr, að sekju eða ósekju, væri ekki það sem Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn stæði fyrir. Hann reidd­ist ofboðs­lega og las mér pistil­inn um að það væri eitt að eiga við póli­tíska and­stæð­inga, en að það væri and­styggi­legt að þurfa að fá hnífstungur úr eigin flokki. Svo rauk hann úr pontu.”

Á ekki afturkvæmt heim

Jóhannes segir að Sig­mundur hafi ekki áttað sig á að hann eigi ekki aft­ur­kvæmt í norð­aust­ur­kjör­dæmi.

„Að mínu mati sendi hann okkur þannig eit­urpillu eftir yfir­lýs­ing­una, að hann kemur ekk­ert hingað og talar við okkur sem for­mað­ur­inn okkar,” segir hann. Sig­mundur svar­aði því til á Bylgj­unni og á Akureyri.net í vik­unni að yfir­lýs­ing Fram­sókn­ar­manna á Akureyri hafi ekki komið á óvart, enda hafi „þessir aðilar ekki beint talist til stuðn­ings­manna sinna, en þeir hafi viljað annan for­mann en sig og þeir hafi áður gert svipað gegn sér. Þar er Sig­mundur að vísa í Höskuld Þór­halls­son.

Kjördæmabræður berjast

Hösk­uldur, flokks­bróðir Sig­mundar í norð­aust­ur­kjör­dæmi, átti eft­ir­minni­lega inn­komu í kast­ljós fjöl­miðla á mið­viku­dags­kvöld eftir þing­flokks­fund Fram­sókn­ar­flokks­ins. Hösk­uldur gekk í gin ljón­anna, að eigin sögn óaf­vit­andi, og sagði fjöl­miðlum, á undan for­manni flokks­ins, frá nýrri ráð­herra­skipan. Þá gagn­rýndi hann Sigmund Davíð fyrir að hafa verið óskýr í svörum varð­andi áfram­hald­andi þing­setu, en und­ir­strik­aði að hann hafi staðið í þeirri mein­ingu að odd­vitar flokk­anna hefðu upp­lýst fjöl­miðla um stöðu mála. Hösk­uldur segir í Frétta­blað­inu í dag að Sig­mundur eigi að víkja af þingi, leggja fram gögn tengdum fjár­málum sínum, ef þau eru til, og skýra mál sitt betur.

Það kemur kannski fáum á óvart að Hösk­uldur skuli nýta tæki­færið þegar Sig­mundur er lask­aður. Hösk­uldur tap­aði fyrir Sigmundi í einkar eft­ir­minni­legum for­manns­kosn­ingum árið 2009, þegar hann var rang­lega fyrst til­kynntur for­maður vegna mis­taka í taln­ingu. Fyrst var til­kynnt að Hösk­uldur hefði hlotið 449 atkvæði og Sig­mundur 340, en því var öfugt farið.

„Ég hef stutt Sigmund”

Viðbrögð Eyglóar Harð­ar­dóttur, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, eftir rík­is­ráðs­fund­inn á Bessa­stöðum í gær voru athygl­is­verð. Eygló var innt eftir trausts­yf­ir­lýs­ingu af frétta­manni RÚV í þrí­gang, en hún sagð­ist alltaf „hafa stutt Sigmund Davíð” þegar hún var spurð hvort hún styðji hann nú. Það var svo í þriðja sinn sem frétta­mað­ur­inn náði að draga hálf­mátt­lausa trausts­yf­ir­lýs­ingu upp úr henni.

Gunnar Bragi styrkir stöðu sína í Skagafirði

Gunnar Bragi Sveins­son, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra og nýr land­bún­aðar- og sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, deilir norð­vestur kjör­dæmi með Ásmundi Einari Daðasyni, þing­flokks­for­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins. Eins og alþjóð veit hefur Gunnar Bragi sinnt utan­rík­is­ráð­herra­starf­inu af miklum metn­aði und­an­farin ár, meðal ann­ars með því að dvelja mikið á erlendri grund.

Ráð­herr­ann hefur verið gagn­rýndur í sínu heima­kjör­dæmi fyrir að leggja það hálf­part­inn á hill­una fyrir utan­rík­is­málin og þá sér í lagi varð­andi ákvarð­anir sínar um við­skipta­þving­anir Íslands gegn Rússum. Kaup­fé­lag Skag­firð­inga var til að mynda ekki pará­nægt með það.

Þeir Fram­sókn­ar­menn sem Kjarninn hefur rætt við í Skaga­firði segja flokk­inn í sárum. Mik­il­vægt sé að tryggja nýrri rík­is­stjórn vinnu­frið til að hún nái að klára mik­il­væg mál. Menn hafa ekki mikla skoðun á Sigurði Inga, nýja for­sæt­is­ráð­herr­anum, en þeir sem þekkja til bera honum vel sög­una. 

Ásmundur átti að verða ráðherra

Gunnar Bragi er nú að taka við einu mik­il­væg­asta ráð­herra­emb­ætti síns kjör­dæmis. Upp­haf­lega stóð til að gera Ásmund Einar að sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, en eftir að Sig­mundur Davíð bar upp þá til­lögu á þing­flokks­fundi eftir frægan fund á Bessa­stöðum, að Lilja Alfreðs­dóttir kæmi inn í rík­is­stjórn­ina, var fallið frá þeirri hug­mynd. Gunnar Bragi flaug í snatri heim frá Indlandi og studdi Sigmund Davíð í þess­ari hug­mynd. Með því að koma heim til Ísland og verða land­bún­að­ar­ráð­herra styrkir Gunnar Bragi stöðu sína mikið fyrir kom­andi kosn­ingar - og veikir þar með stöðu Ásmundar Einars.

„Ég fagna því að Gunnar Bragi sé kom­inn heim og kom­inn í land­bún­að­ar­ráðu­neytið,” segir Ingi Björn Árnason, stjórn­ar­maður Ungra Fram­sókn­ar­manna í Skaga­firði. Hann vildi að öðru leyti ekki tjá sig um mál­efni Fram­sókn­ar­flokks­ins og sagði það vera lín­una meðal sam­tak­anna.

Kjarninn er að fylgj­ast með umræðum á Alþingi í beinum frétta­straumi hér

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár