RÚV með 11 tilnefningar til Eddunnar - 365 sendi ekki inn tilnefningar

RÚV fær ell­efu til­nefn­ingar til Eddu­verð­laun­anna í ár, auk þess sem nokkrir þættir til við­bótar sem sýndir voru á RÚV en fram­leiddir af öðrum fá til­nefn­ingu til verð­laun­anna. 365 miðlar til­nefndu hins vegar ekk­ert af sínu efni til verð­laun­anna, því eins og Kjarninn hefur greint frá sagði fyr­ir­tækið sig úr Íslensku kvik­mynda- og sjón­varps­aka­dem­í­unni (ÍKSA), sem heldur verð­launin. Engu að síður eru þættir sem sýndir voru á Stöð 2 til­nefndir til verð­laun­anna, en það eru þættir sem voru fram­leiddir af öðrum en 365.

Sjón­varps­s­er­ían Réttur, sem sýnd var á Stöð 2 en fram­leidd af Sagafilm, fær átta til­nefn­ingar til verð­laun­anna, flestar til­nefn­ingar allra sjón­varps­þátta. Sjón­varps­s­er­ían Ófærð er til­nefnd í fjórum flokkum, en hún var fram­leidd af RVK Studios og er nú í sýn­ingu á RÚV. Báðar ser­í­urnar eru til­nefndar sem besta leikna sjón­varps­efnið, ásamt Blóð­bergi, sem Vest­ur­port fram­leiddi og var sýnd á Stöð 2.

Þrír þættir á RÚV eru til­nefndir sem frétta- eða við­tals­þættir árs­ins. Það eru Kastljós, Landinn og Þú ert hér. Þátt­ur­inn Orka lands­ins á N4 er til­nefndur sem og þátta­röðin Við öll, sem aug­lýs­inga­stofan PIPAR/TBWA gerði. Við öll fór í sýn­ingu á Facebook.

Í flokknum lífstíls­þáttur árs­ins eru fimm þátt­araðir til­nefndar, tvær voru sýndar á Stöð 2 en þrjár á RÚV. Það eru Hæpið og Ævar vís­inda­maður, sem RÚV fram­leiddi einnig, og Ferð til fjár sem Sagafilm fram­leiddi. Þátt­arað­irnar Atvinnu­menn­irnir okkar og Hið blóm­lega bú, sem sýndir voru á Stöð tvö en fram­leiddir af Stór­veld­inu ann­ars vegar og Búdrýg­indum hins vegar, eru einnig til­nefndar.

Þættir sem sýndir voru á RÚV fá fjórar til­nefn­ingar í flokknum menn­ing­ar­þáttur árs­ins. Það eru Kiljan, Með okkar augum, Topp­stöðin og Öldin hennar, en þrír síð­ast­nefndu þætt­irnir voru allir fram­leiddir af Sagafilm. Fimmti þátt­ur­inn sem er til­nefndur er Að sunnan, sem var fram­leiddur af Sigva media og N4, þar sem þátt­ur­inn var sýndur.

Fjórar af fimm til­nefn­ingum í flokknum skemmti­þáttur árs­ins voru einnig sýndar á RÚV, en sú fimmta, Hind­ur­vitni, var fram­leidd af Ísaland Pictures og sýnd á Stöð 2. Aðrar til­nefn­ingar eru Árið er: Söngvakeppnin í 30 ár, Hrað­fréttir og Þetta er bara Spaug...stofan sem RÚV fram­leiddi, og Dreka­svæðið í fram­leiðslu Stór­veld­is­ins, sem var sýnt á RÚV.

Þá voru öll þrjú efnin sem eru til­nefnd í flokki barna- og ung­linga­efnis sýnd á RÚV. Það eru þætt­irnir Krakka­fréttir og Ævar vís­inda­maður, auk þátt­ar­ins Klukkur um jól sem Hreyfi­mynda­smiðjan gerði.

365 hætti vegna ójafns atkvæðavægis

Kjarninn greindi frá því í nóv­em­ber að 365 hefði sagt úr aka­dem­í­unni. Jón Gnarr, fram­kvæmda­stjóri dag­skrársviðs fyr­ir­tæk­is­ins, sagði þá að RÚV hefði haft 70% vægi í dóm­nefnd verð­laun­anna en 365 hafi borið helm­ing kostn­að­ar­ins.

Þessu höfn­uðu for­svars­menn Eddunnar, og sögðu full­yrð­ingar Jóns rangar og fjar­stæðu­kenndar.

Á síð­ustu Eddu­verð­launa­há­tíð, sem fór fram í febr­úar 2015, fékk Stöð 2 engin verð­laun. Sjón­varps­þættir og –fólk RÚV sóp­uðu hins vegar til sín verð­launum. RÚV vann nán­ast alla flokka sem stöðin gat unnið. Ævar vís­inda­maður vann sem besta barna- og ung­linga­efni árs­ins, Landinn sem frétta- eða við­tals­þáttur árs­ins, Hraunið sem leikið sjón­varps­efni árs­ins, Hæpið sem lífstíls­þáttur árs­ins, Vest­ur­farar sem menn­ing­ar­þáttur árs­ins, Orðbragð sem skemmti­þáttur árs­ins og Brynja Þor­geirs­dóttir frá RÚV var valin sjón­varps­maður árs­ins. Þá fékk Ómar Ragn­ars­son, sem und­an­farin ár hefur unnið fyrir RÚV, heið­ursverð­laun Eddunnar árið 2015.

Hrútar með 13 tilnefningar

Kvik­myndir Hrútar er með 13 til­nefn­ingar, kvik­myndir Fúsi með tólf til­nefn­ingar og Þrestir ell­efu til­nefn­ingar. Allar eru til­nefndar sem besta kvik­myndin. Til­nefn­ing­arnar má lesa allar á vef­síðu Eddunnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár