Greta á rétt á að láta rödd sína heyrast

UNICEF á Íslandi hvetur full­orðna fólkið á Facebook vin­sam­leg­ast til að hætta að skrifa niðr­andi og hat­urs­fullar athuga­semdir um Gretu Thunberg.

Greta Thunberg
Greta Thunberg Mynd: EPA

UNICEF á Íslandi von­ast til að fólk á sam­fé­lags­miðlum svari vin­sam­legu ákalli þeirra um að hugsa sig tvisvar um áður en það skrifar athuga­semdir um Gretu Thunberg. Frá þessu er greint á Facebook-síðu þeirra í dag.

Þá kemur fram í stöðu­upp­færslu UNICEF að síð­ustu daga hafi mikið verið fjallað um Gretu í fjöl­miðlum, „sem nýtur réttar síns sem barn og sem mann­eskja til að láta rödd sína heyr­ast í lofts­lags­um­ræð­unni.“

Því miður séu margir full­orðnir að skrifa niðr­andi og hat­urs­fullar athuga­semdir um hana sem mann­eskju. Það sé ekki ásætt­an­legt. Sem lofts­lags­að­gerð­ar­sinni, sem barn og sem mann­eskja eigi Greta, ásamt öðrum, rétt á að láta rödd sína heyr­ast.

Börn eiga rétt á að vera vernduð gegn hatri

„Við viljum biðja fólk um að hugsa sig tvisvar um áður en það skrifar athuga­semdir á sam­fé­lags­miðla. Hér er um að ræða mann­eskja sem á að vera sýnd virð­ing. Líka á inter­net­inu,“ segir í færsl­unni.

Jafn­framt kemur fram að UNICEF styðji börn sem berj­ast fyrir betri fram­tíð. Þau hafi rétt á að vera vernduð gegn hatri. UNICEF imprar á að það sé á allra ábyrgð.

„Við vonum að þú munir hjálpa Gretu, og öllum þeim mögn­uðu og hug­rökku börnum sem eru að tjá sig, að njóta réttar síns og hlusta,“ segir í færsl­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár