„Ég hlýði Víði“-bolir til styrktar Von

Allur hagn­aður af bola­söl­unni rennur óskiptur til Vonar, styrkt­ar­fé­lags gjör­gæslu­deildar Land­spít­al­ans.

Bolir með hinu þekkta slag­orði „Ég hlýði Víði“ eru nú komnir í sölu í net­verslun Margt smátt. Allur hagn­aður af bol­unum mun renna óskiptum til Vonar, styrkt­ar­fé­lags gjör­gæslu­deildar Land­spít­al­ans.

Á vef­síðu Margt smáttkemur fram að ákvörð­unin hafi verið tekin í sam­ráði við Víði Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjón almanna­varna­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra, sem stýrt hefur dag­legum upp­lýs­inga­fundum almanna­varna frá upp­hafi. Víðir hefur á fund­unum sent skor­in­ort skila­boð til almenn­ings um að halda fjar­lægð, virða sam­komu­bann og aðrar ráð­staf­anir til að takast á við far­aldur COVID-19.

[adspot]

Bolirnir eru til í svört og hvítu og mörgum stærðum. Hver bolur kostar 2.903 krónur og renna 1.250 krónur af hverjum seldum bol til Vonar. Á gjör­gæslu­deild Land­spít­al­ans „starfar fram­línu­fólkið í bar­átt­unni við COVID-19 og öruggt að pen­ing­unum verður vel varið,“ segir á vef Margt smátt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár