Bankarnir byrjaðir að lána fyrirtækjum á ný

Íslenskir bankar lán­uðu fyr­ir­tækjum lands­ins minna á öllu síð­asta ári í ný útlán en þeir gerðu í jan­úar og febr­úar 2021. Lán með rík­is­á­byrgð sem voru í aðal­hlut­verki í fyrstu efna­hag­s­pökkum rík­is­stjórn­ar­innar hafa nán­ast ekk­ert verið nýtt.

Bankastjórar þriggja stærstu banka landsins.
Banka­stjórar þriggja stærstu banka lands­ins. Mynd: Samsett

Ný útlán banka, umfram upp­greiðslur og umfram­greiðslur, til atvinnu­fyr­ir­tækja voru 3,2 millj­arðar í jan­úar 2021 og sjö millj­arðar í febr­úar. Helm­ingur allra nýrra útlána í febr­úar var til fyr­ir­tækja sem stunda fisk­veiðar.

Því hafa bankar lands­ins lánað meira nettó til fyr­ir­tækja á fyrstu tveimur mán­uðum árs­ins í ár en þeir gerðu allt árið í fyrra, þegar ný útlán umfram upp- og umfram­greiðslur, voru sam­tals 7,8 millj­arðar króna. Til sam­an­burðar var nettó heild­ar­um­fang nýrra útlána 105 millj­arðar króna árið 2019 og tæp­lega 209 millj­arðar króna árið 2018, þegar bank­arnir lán­uðu fyr­ir­tækjum lands­ins 27 sinnum meira en í fyrra.

Þetta má lesa út úr nýbirtum hag­tölum Seðla­banka Íslands um stöðu íslenska banka­kerf­is­ins.

Raunar teygir þessi við­snún­ingur í lánum til fyr­ir­tækja sig aðeins aftar, en til des­em­ber 2020. Þá lán­uðum bank­arnir nettó sjö millj­arða króna til atvinnu­fyr­ir­tækja líka sem þýðir að hina ell­efu mán­uði árs­ins 2020 lán­uðum þeir fyr­ir­tækj­unum 800 millj­ónir króna umfram það sem þau greiddu upp. Þetta er líka í fyrsta sinn síðan í lok árs 2019 sem banka­kerfið lánað meira en greitt er upp til fyr­ir­tækja lands­ins þrjá mán­uði í röð.

Mik­ill sam­dráttur í fyrra

Mik­ill vöxtur var í útlánum inn­­­láns­­­stofn­ana lands­ins á upp­gangs­tímum síð­­­­­ustu ára. Um er að ræða, að upp­­i­­­­stöðu, útlán sem Lands­­­bank­inn, Íslands­­­­­banki, Arion banki og Kvika banki veita.

Árið 2013 voru ný veitt útlán til atvinn­u­­­fyr­ir­tækja 79,2 millj­­­arðar króna. Ári síðar voru þeir 30 pró­­­sent meiri og á árinu 2015 juk­ust þau um 52 pró­­­sent. Ári síðar var heild­­­ar­um­­­fang nýrra útlána komið í 196,5 millj­­­arða króna og hélst á því róli út árið 2018, þegar það topp­aði í 208,7 millj­­­örðum króna.

Síðan þá hefur verið umtals­verður sam­­­dráttur í nýjum útlán­­­um. Árið 2019 voru þau 104,8 millj­­­arðar króna og nán­­­ast helm­ing­uð­ust á milli ára.

Í fyrra varð síðan orðið eðl­is­breyt­ing og bank­­­arnir grein­i­­­lega haldið að sér höndum í útlánum í þeirri heimskreppu sem nú gengur yfir. Vís­bend­ingar eru um að þetta ástand sé að lag­ast.

Bankarnir áttu að leika lykilhlutverk í viðbrögðum

Ein helsta aðgerðin sem rík­is­stjórnin kynnti til leiks í mars var að veita fyr­ir­greiðslu til að auð­velda við­bót­ar­lán lána­stofn­ana til fyr­ir­tækja. Þetta átti að gera þannig að ríkið semdi við Seðla­banka Íslands um að færa lána­stofn­unum aukin úrræði til að veita við­bót­ar­fyr­ir­greiðslu til fyr­ir­tækja, í formi brú­ar­lána, sem orðið hefðu fyrir veru­legu tekju­tapi vegna yfir­stand­andi aðstæðna. Seðla­bank­inn myndi þannig veita ábyrgðir til lána­stofn­ana sem þær nýta til að veita við­bót­ar­lán upp að um 70 millj­arða króna.

[adspot]Aðal­við­skipta­bankar fyr­ir­tækja áttu að veita þessa fyr­ir­greiðslu og aðgerðin var í heild metin á um 80 millj­arða króna að teknu til­liti til auk­innar útlána­getu banka vegna lækk­unar á banka­skatti, sem átti að aukast um tæp­lega 11 millj­arða króna. Ríkið reikn­aði sín áhrif af þessu á 35 millj­arða króna.

þetta úrræði hefur ekki verið nýtt sem neinu nemur. Alls hafa verið veitt sjö brú­ar­lán fyrir sam­tals 2,6 millj­arða króna.

Svokölluð stuðn­­ings­lán, einnig kölluð sér­­­stök lán til lít­illa fyr­ir­tækja, voru kynnt í aðgerð­ar­pakka rík­is­stjórn­ar­innar númer tvö, sem kynntur var til leiks í apríl 2020. Til að telj­­ast til slíkra fyr­ir­tækja þurfti að vera með tekjur undir 500 millj­­ónum króna á ári. Lán­in, sem njóta 100 pró­­sent rík­­is­á­­byrgð­­ar, standa ein­ungis fyr­ir­tækjum sem hafa orðið fyrir að minnsta kosti 40 pró­­sent tekju­­falli til boða, sem er sama skil­yrði og gildir fyrir hin svoköll­uðu brú­­ar­lán til stærri fyr­ir­tækja sem kynnt voru til leiks mán­uði áður.

Lánin til fyr­ir­tækj­anna átti að verða hægt að sækja um með ein­­földum hætti á Island.is en þau nema að hámarki sex millj­­ónir krónur á hvert fyr­ir­tæki. Heild­­ar­um­­fang lán­anna átti að geta orðið allt að 28 millj­­arðar króna í heild, að mati stjórn­­­valda.

Enn sem komið er hafa 945 aðilar fengið alls 9,4 millj­arða króna í stuðn­ings­lán.

Svigrúm banka aukið mikið

Til að gera bank­ana í stakk búna til að takast á við þessi auknu útlán sem búist var við að þeir myndu ráð­ast í greip Seðla­­­banki Íslands til ýmissa aðgerða. Sveiflu­­­jöfn­un­­­ar­­­auki, við­­bót­­ar­­kröfur á eigið fé fjár­­­mála­­fyr­ir­tækja umfram lög­­bundnar eig­in­fjár­­­kröf­­ur, var afnumin sem losar veru­­­lega um það eigið fé sem bank­­­arnir þurfa að halda á og stýri­vextir voru lækk­­­aðir úr 4,5 pró­­­sentum niður í 0,75 pró­­­sent, sem átti að skila miklu betri kjörum fyrir við­­­skipta­vini banka.

Seðla­­­bank­inn sagði í Fjár­­­­­mála­­­stöð­ug­­­leika­­­riti sínu sem kom út í júní 2020 að vaxta­­­lækk­­­un­­­ar­­­ferlið hafi hins vegar „ekki skilað sér alveg eins vel á inn­­­láns- og útláns­vexti KMB [kerf­is­lega mik­il­vægir bankar] og sér­­­stak­­­lega hafa vextir nýrra útlána til fyr­ir­tækja lítið lækk­­­að.“

Þess í stað hefur eigið fé safn­ast upp í bönk­unum. Banka­stjóri Arion banka hefur ítrekað sagt að það sé ein­fald­lega ekki eft­ir­spurn eftir nýjum lánum og fyrir vikið er bank­inn að tappa af þessu eigin fé í ár með því að greiða út alls 18 millj­arða króna í arð og kaup á eigið bréfum af hlut­höfum sínum.

Meiri hætta á gjald­þrotum

Fjallað var áfram um þessa þróun í nýjasta Fjár­­­­­mála­­­stöð­ug­­­leika­­­riti Seðla­­­banka Íslands, sem kom út í lok sept­­em­ber­ síð­ast­lið­ins. Þar sagði að sam­­­dráttur í inn­­­­­lendum skuldum fyr­ir­tækja bendi til þess að aðgengi fyr­ir­tækja að fjár­­­­­magni sé hugs­an­­­lega tor­veld­­­ara en áður, fyrst og fremst vegna auk­innar áhættu sem end­­­ur­­­spegl­­­ast í hækk­­­andi vaxta­á­lagi fyr­ir­tækja­út­­­lána bank­anna. „Efna­hags­­­sam­­­drátt­­­ur­inn og aukin óvissa vegna far­­­sótt­­­ar­innar hefur einnig dregið veru­­­lega úr eft­ir­­­spurn eftir lánum þar sem sam­hliða dregur bæði úr áhætt­u­­­sækni fyr­ir­tækja og fram­­­boði á arð­­­bærum fjár­­­­­fest­ing­­­ar­tæki­­­fær­­­um.“

[links]Seðla­­­bank­inn sagði þar að hann teldi að skuldir fyr­ir­tækja sem nýta sér lána­úr­ræði stjórn­­­­­valda og fjár­­­­­mála­­­fyr­ir­tækja myndi fara vax­andi. „Mörg fyr­ir­tæki hafa orðið fyrir miklum tekju­­­sam­drætti og munu fara skuld­­­sett­­­ari inn í þann efna­hags­bata sem vænta má þegar far­­­sóttin verður um garð geng­in. Áhætta fyr­ir­tækja vegna vaxta­breyt­inga og/eða tekju­­­falls eykst með auk­inni skuld­­­setn­ingu. Lágt vaxta­stig styður þó við skuld­­­sett fyr­ir­tæki að öðru óbreyttu og eykur sjálf­­­bærni skuld­­­setn­ing­­­ar.“

Versn­andi útlána­­­gæði lána­­­stofn­ana end­­­ur­­­spegl­ist hins vegar í breyttu áhætt­u­mati og vax­andi virð­is­rýrnun á öðrum árs­fjórð­ungi. Enn sem komið er hafi aðeins lít­ill hluti útlána kerf­is­lega mik­il­vægra banka til fyr­ir­tækja verið færður á stig 3 sam­­­kvæmt IFRS-9-­­­reikn­ings­skila­­­stað­l­in­um, en við­­­búið sé að það breyt­ist næstu mis­­s­eri enda hafi orðið tvö­­­­­földun á kröf­u­virði útlána á stigi 2 og virð­is­rýrnun þeirra fimm­fald­­­ast. „Hættan á enn frek­­­ari virð­is­rýrnun og fjölgun gjald­­­þrota fer vax­and­i.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár