Far vel, Falwell

Jerry Falwell yngri, einn áhrifa­mesti stuðn­ings­maður Donalds Trumps, hefur ekki átt sjö dag­ana sæla. Vegna hneyksl­is­mála hefur hann nú sagt sig af sér sem for­seti Liberty háskóla sem faðir hans, sjón­varps­predik­ar­inn Jerry Falwell eldri, stofn­aði.

Jerry Falwell yngri í ræðustól á lokadegi landsþings repúblikana árið 2016. Skömmu síðar varð Donald Trump útnefndur forsetaefni flokksins í kosningunum sem þá voru yfirvofandi.
Jerry Falwell yngri í ræðu­stól á loka­degi lands­þings repúblik­ana árið 2016. Skömmu síðar varð Donald Trump útnefndur for­seta­efni flokks­ins í kosn­ing­unum sem þá voru yfir­vof­andi. Mynd: EPA

Hneyksli á hneyksli ofan skekja nú einn áhrifa­mesta mann meðal trú­aðra íhalds­manna í Banda­ríkj­unum, Jerry Falwell yngri. Á dög­unum sagði hann af sér sem for­seti Liberty háskóla í Virginíu en hann hefur gegnt þeirri stöðu frá árinu 2007 er hann tók við kefl­inu af föður sínum sem stofn­aði skól­ann. Afsögn Falwell yngri kemur í kjöl­far frétta­flutn­ings af ást­ar­þrí­hyrn­ingi milli Falwell hjón­anna og Giancarlo Granda nokk­urs sem staðið hafði yfir í nokkur ár. Fyrr í mán­uð­inum hafði Falwell ákveðið að stíga til hliðar sem for­seti Liberty háskóla vegna myndar sem hann birti á Instagram og þótti ósæmi­leg.

Afsögn Falwells kemur í kjöl­far umfjöll­unar Reuters af áður­nefndum ást­ar­þrí­hyrn­ingi milli Falwell hjón­anna og Giancarlo Granda. Í við­tali við Reuters segir Granda frá því að hann hafi fyrst hitt þau Becki og Jerry Falwell í mars árið 2012 á Fontainebleau hót­el­inu á Miami Beach, þá tví­tugur. Á þeim tíma hafi hann starfað á hót­el­inu sem sund­laug­ar­vörður. Samband á milli þeirra þriggja hafi haf­ist í þeim sama mán­uði og staðið allt til árs­ins 2018.

Í við­tal­inu segir Granda frá því hvernig sam­bandi þeirra þriggja var háttað. Hann hafi stundað kyn­mök með Becki á meðan Jerry hafi fylgst með. Frásögn sína studdi Granda með því að sýna blaða­mönnum Reuters tölvu­pósta og sms skila­boð. „Við Becki þró­uðum með okkur náið sam­band og Jerry naut þess að horfa á okkur úr horni her­berg­is­ins,“ sagði Granda í sam­tali við blaða­menn Retuers. Þau hafi hist þrjú saman oft á ári, ýmist á hót­elum í Miami og New York sem og á heim­ili Falwell hjón­anna í Virginíu.

Á end­anum trosn­aði upp úr vin­átt­unni milli Granda og Falwell hjón­anna, hann vildi ekki halda áfram að hitta þau undir sömu for­merkjum auk þess sem deilur hefðu sprottið upp í fyr­ir­tækja­rekstri sem þau stóðu þrjú saman að.

Voru einnig viðskiptafélagar

Granda komst fyrst í kast­ljósið fyrir tveimur árum síðan þegar BuzzFeed fjall­aði um deilur Falwell hjón­anna og Granda vegna við­skipta sem þau stóðu saman í. Þau höfðu þá keypt far­fugla­heim­ili í Miami sem einkum var ætlað ungum ferða­löngum. Í umfjöllun BuzzFeed var haft eftir tals­manni Falwell fjöl­skyld­unnar að Granda hefði verið boð­inn hlutur í far­fugla­heim­il­inu vegna þess að hann væri búsettur í Miami og hann myndi sjá um rekstur þess.

Þegar meg­in­drættir upp­haf­legrar umfjöll­unar Reuters voru bornir undir Falwell hjónin tjáði lög­maður þeirra sig fyrir þeirra hönd og sagði þau neita öllu því sem þar væri haldið fram. Nokkrum dögum síðar, um það leyti sem Reuters ætl­aði að birta sína umfjöllun birt­ist yfir­lýs­ing frá Jerry Falwell í Washington Examiner. Þar sagði hann eig­in­konu sína hafa átt í leyni­legu ást­ar­sam­bandi við Granda og að hann hafi ætlað að kúga út úr hjón­unum fé. Þessu neitar Granda, hann hafi ein­ungis átt í við­ræðum við þau um við­skipta­leg erindi.

Í yfir­lýs­ingu sinni fjall­aði Jerry Falwell ekki um ásak­anir Granda á hendur honum, að hann hafi setið og fylgst með atlotum Becki Falwell og Granda. Öllu heldur sagði hann sig ekki hafa komið þar að. „Becki átti í óvið­eig­andi per­sónu­legu sam­bandi við þennan ein­stak­ling, eitt­hvað sem ég var ekki við­rið­inn,“ sagði í yfir­lýs­ingu hans.

Beraði bumbuna á Instagram

Falwell sagði af sér sem for­seti Liberty háskóla í kjöl­far umfjöll­un­ar­innar um ást­ar­æv­in­týri þeirra hjóna og Giancarlo Granda. Vandræði hans innan veggja háskól­ans voru þá þegar hafin. Í fyrri hluta mán­aðar fór Falwell í leyfi frá háskól­anum vegna myndar sem hann birti á Instagram og eyddi skömmu síðar.

Á mynd­inni umdeildu eru buxur Falwells frá­hnepptar auk þess sem hann hefur dregið stutt­erma­bol sinn upp yfir kvið­inn. Slíkt hið sama gerir kona sem stendur honum við hlið. Falwell sagði síðar að um mis­heppnað grín væri að ræða og að konan sem stæði við hlið hans væri aðstoð­ar­kona eig­in­konu sinnar, en aðstoð­ar­konan er barns­haf­andi.

Það sem vekur athygli við afsögn Falwells, sam­kvæmt skýr­ingu Washington Post, er sú stað­reynd að hann virð­ist hafa verið ósnert­an­legur meðal evang­elista um nokk­urt skeið. Það kunni að helg­ast af því að bæði kemur hann úr áhrifa­mik­illi fjöl­skyldu auk þess sem hann á í góðu sam­bandi við ýmsa áhrifa­menn úr banda­rísku þjóð­lífi. Þar er kannski merkastur Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, en for­set­inn nýtur mik­ils stuðn­ings hvítra evang­elista í Banda­ríkj­unum. Þennan stuðn­ing getur for­set­inn að ein­hverju leyti þakkað Falwell.

Naut aðstoðar frá Michael Cohen

Nýlegar ásak­anir Granda hafa end­ur­vakið áhuga á ummælum Michael Cohens, fyrrum lög­manns Trumps, frá því í maí í fyrra. Þá sagð­ist hann hafa aðstoðað Falwell nokkrum árum áður vegna til­raunar til fjár­kúg­unar. Þá hafi ein­hver hótað Falwell því að koma ósæmi­legum myndum í dreif­ingu. Það hefði Falwell hins vegar getað stöðvað með því að reiða fram fé.

Í skýr­ingu Washington Post segir að Falwell hafi stað­fest það við mið­il­inn að hann hafi notið aðstoðar Cohen. Hins vegar gaf hann ekk­ert upp um hver það var sem átti að hafa kom­ist yfir mynd­irnar ósæmi­legu, Cohen hafi haft sam­band við lög­menn við­kom­andi og hótað því að alrík­is­lög­reglan, FBI, tæki málið upp ef mynd­irnar yrðu opin­ber­aðar. „Þetta voru ekki nekt­ar­myndir,“ sagði Falwell í sam­tali við Washingon Post, „þetta voru bara myndir af eig­in­konu minni. Ég var stoltur af útliti hennar.“

Washington Post hafði líka sam­band við Cohen sem hafi gefið það í skyn að Granda hafi verið við­rið­inn málið. Hann hafi haft sam­band við lög­mann Granda til þess að „sjá til þess að mynd­irnar kæmu ekki fyrir augu almenn­ings.“ Tals­maður Granda sagði lög­mann hans ekki hafa rætt við Cohen á sínum tíma.

Skömmu eftir að Cohen aðstoð­aði Falwell við að koma í veg fyrir mynd­birt­ing­una bað hann Falwell hjónin um greiða, Trump þurfti þeirra aðstoð að halda í kosn­inga­bar­átt­unni. Jerry Falwell lýsti yfir stuðn­ingi við Donald Trump þegar bar­áttan um for­val repúblik­ana stóð sem hæst og hefur Falwell verið öfl­ugur og hávær stuðn­ings­maður for­set­ans æ síðan. Í grein­ingu Washington Post er stuðn­ingur Falwell hjón­anna sagður hafa valdið straum­hvörfum í bar­áttu Trumps. Stuðn­ingur evang­elista við Trump í for­vali repúblik­ana hafi auk­ist gíf­ur­lega á kostnað ann­arra fram­bjóð­anda, þökk sé Falwell hjón­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár