Verðbólgan snýr aftur - Gerir Seðlabankinn mistök fortíðar?

Verð­bólgan er á hraðri upp­leið og mun hækka hús­næð­is­lán veru­lega á næsta ári. Seðla­bank­inn hækkar stýri­vexti vegna þess, en erlendur sér­fræð­ingur varar við því að Seðla­bank­inn end­ur­taki mis­tök for­tíðar.

Verðbólgan snýr aftur - Gerir Seðlabankinn mistök fortíðar?

Verð­bólgan, sem birt­ist í hækkun verð­lags og sam­hang­andi hækkun verð­tryggðra lána, er á hraðri upp­leið eftir óvenju­lága verð­bólgu síð­ustu ár. Miðað við upp­færða verð­bólgu­spá Seðla­banka Íslands má gera ráð fyrir því að 30 millj­óna króna hús­næð­is­lán hækki um 1,2 millj­ónir króna á næsta ári, eða 50 þús­und krónur á mán­uði.

Seðla­bank­inn telur sig knú­inn til að grípa til aðgerða vegna versn­andi verð­bólgu­horfa í dag og á næst­unni. Fyrsta skrefið er að Seðla­bank­inn hefur ákveðið að hækka stýri­vexti um hálft pró­sentu­stig vegna versn­andi verð­bólgu­horfa, úr 5 pró­sent í 5,5 pró­sent. 

Stýri­vaxta­hækk­unin kemur í kjöl­far launa­hækk­ana í kjara­samn­ingum, en Seðla­bank­inn hafði áður varað við áhrifum launa­hækk­ana.
Verð­bólgu­horfur hafa versnað tölu­vert frá því í maí sam­kvæmt yfir­lýs­ingu Seðla­bank­ans. Á sama tíma hafa hag­vaxt­ar­horfur líka versnað og er gert ráð fyrir hálfri pró­sentu minni hag­vexti en áður var ráð­gert, eða að hann verði rúm­lega 4 pró­sent í ár og um 3 pró­sent næstu tvö ár. Hag­vöxt­ur­inn stafar að mestu af vax­andi einka­neyslu, sem aftur ýtir undir verð­bólgu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár