Mynd: Heiða Helgadóttir

Uppgjöfin reyndist stærsti sigurinn

Fimm ára vissi Sig­tryggur Ari Jóhanns­son hvernig hann vildi haga lífi sínu. Í dag gerir hann nákvæm­lega það sem hann ætl­aði sér en í milli­tíð­inni henti lífið honum í ýmsar áttir. Á hátindi alkó­hól­ism­ans ákvað hann að binda endi á það, þar sem hann var staddur í lít­illi íbúð í Dublin, á meðan kona hans barð­ist fyrir lífi sínu hér heima.

Sig­tryggur Ari átti mynd árs­ins 2014. Myndin var af ungum hæl­is­leit­anda sem lá örmagna í rúmi sínu í hung­ur­verk­falli. Starfið krefst þess að Sig­tryggur Ari sé sífellt í leit að sögum sem hann fangar í mynd. Oft hefur hann aðeins örskamma stund til að ná kjarn­anum og aðeins einn ramma til að segja sög­una. Til þess þarf næmni og hæfi­leik­ann til að kom­ast að fólki, eitt­hvað sem Sig­tryggur Ari hefur. Hann getur gengið inn í nán­ast hvaða aðstæður sem er og tengst fólki á vett­vangi.

Kannski af því að hann hefur sjálfur lifað hátt og sokkið djúpt. Fyrstu ein­kenni dep­urðar og kvíða birt­ust strax í æsku en hann horfð­ist ekki í augu við sjúk­dóm­inn fyrr en hann var við dauð­ans dyr. „Þung­lyndi og alkó­hól­ismi eru lífs­hættu­legir sjúk­dómar því það reyn­ist oft erfitt að við­ur­kenna til­vist þeirra. Þú reynir ekki að afneita kvillum eins og gigt eða magapínu, en þetta eru verstu sjúk­dóm­arnir hvað það varðar. Afneit­unin er svo sterk að þú vilt ekk­ert kann­ast við sjúk­dóm­inn í sjálfum þér.“

Hann situr með nýfædda dóttur sína í fang­inu, krafta­verka­barnið sem kom af sjálfs­dáðum eftir ára­langa bar­áttu for­eldr­anna fyrir öðru barni. Hann er enn á bleiku skýi eftir nýaf­staðið brúð­kaup, sem fór fram sam­hliða skírn­inni, þar sem stúlkan fékk nafnið Ingi­björg Lára. Á meðan leikur eldri dóttir hans, Þórdís Anna, sér inni í her­bergi en kíkir af og til inn í eldús, þar sem hann segir sögu sína.

„Afneit­unin svo sterk að þú vilt ekk­ert kann­ast við sjúk­dóm­inn í sjálfum þér.“

Alkóhólismi á heimilinu

Auðvitað er það ekki sjúk­dóm­ur­inn sem skil­greinir hver hann er. Almennt hefur Sig­tryggur Ari átt gott líf sem ein­kenn­ist af ævin­týrum og gleði. Sögurnar eru óþrjót­andi. Nú erum við hins vegar að tala um kvíða, sem hefur verið föru­nautur hans frá æsku, gert vart við sig af og til, mis­mikið eftir tíma­bilum. 

Fyrstu ein­kenni kvíða birt­ust strax í æsku. Sjö ára og nýbyrj­aður í skóla var hann strax far­inn að ýta heima­lær­dómnum á undan sér og safna upp verk­efnum þar til þau virt­ust óyf­ir­stíg­an­leg. Samhliða því byggði hann upp nei­kvæðar til­finn­ingar gagn­vart sjálfum sér. Þegar hann hugsar til baka seg­ist hann ekki vita hvort kvíð­inn sé ein­fald­lega til­kom­inn vegna þess að hann sé svona sam­settur eða hvort þetta hafi einnig verið ein­hvers konar við­brögð við umhverf­inu.

Amma hans og afi bjuggu í næsta húsi og Sig­tryggur Ari var mikið þar. Eins indæll og afi hans var glímdi hann við sjúk­dóm sem hafði mikil áhrif á alla fjöl­skyld­una. „Alkó­hól­ism­inn hafði auð­vitað meiri áhrif á ömmu og mömmu en ég var engu að síður barn í fjöl­skyldu þar sem alkinn, sjúk­dómur hans og hegðun aftur í tím­ann, réði því að allt ein­kennd­ist af með­virkni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár