Mynd: Shutterstock

Það sem Ísland gæti lært af finnska skólakerfinu

Árum saman hefur mennta­kerfi Finn­lands verið ann­álað fyrir fram­sækni og árangur, sem meðal ann­ars birt­ist í góðum nið­ur­stöðum PISA-rann­sókn­anna. Hvað hafa Íslend­ingar gert sem gerir það að verkum að okkar árangur er ekki eins góður, og hvað hafa Finnar gert rétt sem við getum tekið upp hér á landi?

Frammi­staða íslenskra nem­enda í PISA-könn­un­inni hefur aldrei verið verri og er áber­andi verri en á hinum Norð­ur­lönd­unum. Læsi íslenskra nem­enda á nátt­úru­vís­indi hefur hrakað mikið á síð­ast­liðnum ára­tug, læsi á stærð­fræði hefur einnig hrakað stöðugt frá fyrstu könnun og lesskiln­ingur er einnig undir með­al­tali OECD-ríkja. Í frétta­til­kynn­ingu frá mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu segir að nauð­syn­legt sé að grípa strax til aðgerða, meðal ann­ars með því að athuga hvað hægt sé að læra af reynslu ann­arra landa, svo sem nágranna okkar á Norð­ur­löndum. Þá hefur Kenn­ara­sam­band Íslands lýst yfir áhyggjum af nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar og kallar á eftir aðgerðum sem fela ekki í sér skyndi­lausnir, heldur lausnir til langs tíma og fel­ast í að bæta starfs­að­stæður kenn­ara og náms­að­stæður nem­enda.

Ef litið er til ann­arra Norð­ur­landa stendur Finnland upp úr. Síðan nið­ur­stöður fyrstu PISA-rann­sókn­anna voru birtar árið 2001 hafa Finnar ávallt verið í efstu sætum í þeim greinum sem þar eru skoð­aðar; stærð­fræði, frammi­stöðu í lestri og nátt­úru­fræði. Íslend­ingar hafa yfir­leitt verið í með­al­tali þegar kemur að PISA, en hafa þó dalað umtals­vert síð­ustu ár. Þegar leitað er að ástæðu þess­ara nið­ur­staðna kemur ýmis­legt for­vitni­legt í ljós.

Upp­bygg­ing skóla­kerfis land­anna er tals­vert ólík. Mikil vald­dreif­ing er í finnska mennta­kerf­inu á móti mik­illi mið­stýr­ingu hins íslenska. Sveit­ar­fé­lög, skóla­stjórn­endur og kenn­arar hafa umtals­vert meira frelsi í starfi í Finn­landi en hér á landi hvað varðar áherslur, úrlausnir, náms­efni og kennslu­að­ferðir. Einnig er mikil virð­ing borin fyrir kenn­ar­ar­stétt­inni í Finn­landi og árlega sækja bestu nem­endur lands­ins um að kom­ast í kenn­ara­nám, þar sem færri kom­ast að en vilja.

Finnskir skólar virð­ast þjóna nem­endum sínum vel, óháð fjöl­skyldu­mynstri, efna­hags­legum bak­grunni eða getu. 

Eins og áður segir hafa Finnar borið af í náms­ár­angri und­an­farna ára­tugi, sér­stak­lega í grunn­skólum. Þessi góði árangur er einnig áber­andi jafn á milli skóla. Finnskir skólar virð­ast þjóna nem­endum sínum vel, óháð fjöl­skyldu­mynstri, efna­hags­legum bak­grunni eða getu. Þær hæg­fara breyt­ingar sem átt hafa sér stað á finnska skóla­kerf­inu hafa skilað sér í árangri á heims­mæli­kvarða og hefur vakið for­vitni heims­byggð­ar­innar á því hvað það er sem Finnar eru að gera rétt.

Tilraunir til að afrita árangurinn

Fyrir árið 2000 voru Finnar sjaldn­ast ofar­lega á listum yfir lönd með bestu mennta­kerfin. Finnland hefur að vísu ávallt komið vel út í mæl­ingum á læsi en í þeim fimm mæl­ingum sem til eru á milli 1962 og 1999, sem tóku saman frammi­stöðu í stærð­fræði og vís­indum, komust Finnar aldrei yfir með­al­talið. Ávinn­ingur Finna í þessum efnum hefur gerst smám saman á síð­ustu fjórum ára­tugum. Hin góða staða nú er vegna stöðugrar, hægrar fram­þró­unar en ekki afleið­ing áber­andi rót­tækra umbóta sem einn flokkur eða stjórn­mála­maður stóð fyrir. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kjaramál

Stefán Ólafsson um nýja kjarasamninga: „það er veðmál í þessu“
Fréttir

Stefán Ólafsson um nýja kjara­samn­inga: „það er veð­mál í þessu“

Í sext­ánda þætti Pressu mættu Anna Hrefna Ingi­mund­ar­dóttir, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, og Stefán Ólafsson, sér­fræð­ingur hjá Eflingu – stétt­ar­fé­lagi, til þess að ræða nýju kjara­samn­ing­anna. Í við­tal­inu við­ur­kenndi Stefán að samn­ing­ur­inn væri í raun nokk­urs konar veð­mál, þar sem vonir væru bundnar við hjöðnun verð­bólgu til þess að skila launa­fólki ásætt­an­legum kjara­bótum.
Samtök atvinnulífsins kjósa um verkbann á félagsmenn VR
FréttirKjaramál

Samtök atvinnu­lífs­ins kjósa um verk­bann á félags­menn VR

Stjórn Samtaka atvinnu­lífs­ins hefur sam­þykkt ein­róma að halda atkvæða­greiðslu um hugs­an­legt verk­bann á félags­menn VR. Í til­kynn­ingu frá Samtökum atvinnu­lífs­ins sem birt­ist fyrir skömmu segir að verði verk­bannið sam­þykkt mun það ná til alls skrif­stofu­fólks með aðild að VR. Um er ræða við­bragð við verk­falls­að­gerðum sem VR hefur boðað meðal starfs­manna í farg­þega- og hleðslu­þjón­ustu hjá Icelandair
Ókeypis skólamáltíðir í Reykjavík munu kosta 1,7 milljarð króna á ári
FréttirKjaramál

Ókeypis skóla­mál­tíðir í Reykja­vík munu kosta 1,7 millj­arð króna á ári

Eitt umfangs­mesta verk­efnið sem fólgið er í aðgerða­pakka rík­is­ins og sveit­ar­fé­laga til að liðka fyrir gerð kjara­samn­inga, er að tryggja gjald­frjálsar skóla­mál­tíðir í grunn­skólum. Tals­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga segir að öll börn, óháð því hvort þau voru skráð í mat fyrir breyt­ing­arnar muni fá fríar skóla­mál­tíðir. Ekki liggur fyrir hvernig verk­efnið verður útfært í skólum sem hafa útvi­stað mat­ar­þjón­ustu sinni.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár