Stjórnmálamenn hækka laun sín langt umfram almenning

Á sama tíma og þing­menn hafa hækkað langt umfram almenn­ing í launum fara þeir fram á að almenn­ingur stilli kröfum sínum um kjara­bætur í hóf. Benedikt Jóhann­es­son fjár­mála­ráð­herra sagði að laun þing­manna hefðu verið „leið­rétt“ með gríð­ar­legri hækkun þeirra, en þeir hafa hækkað um 26,7 pró­sentu­stigum meira en almenn­ingur á tíu árum. Sátt á vinnu­mark­aði er eitt af fjórum megin hag­stjórn­ar­mark­miðum rík­is­stjórn­ar­innar.

Stjórnmálamenn hækka laun sín langt umfram almenning
Vara við launa­hækk­unum almenn­ings Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri, Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra og Benedikt Jóhann­es­son fjár­mála­ráð­herra til­kynna hér um afnám hafta í þeim til­gangi að veikja krón­una. Mynd: Pressphotos

Þingmenn hefðu 754 þús­und krónur í þing­far­ar­kaup, en ekki 1,1 milljón króna, ef fylgt hefði verið almennri kjara­þróun frá árinu 1994.

Reyndin hefur hins vegar verið að þing­far­ar­kaup hefur hækkað langt umfram almenn laun á tíma­bil­inu.

Þingmenn hafa því leitt launa­hækk­anir langt umfram almenn­ing á und­an­förnum ára­tugum. 

Í fjár­mála­á­ætlun sinni setur rík­is­stjórn­ar­meiri­hlut­inn hins vegar það fram sem eitt af fjórum hag­stjórn­ar­mark­miðum sínum að „stuðla að sátt á vinnu­mark­aði“.

Sagði þingmenn vera að fá „leiðréttingu“

Gríð­ar­leg hækkun var gerð á launa­kjörum þing­manna á kjör­dag, 29. októ­ber síð­ast­lið­inn. Þing­far­ar­kaupið var hækkað um rúm­lega 44 pró­sent í einu skrefi, um 338 þús­und krónur á mán­uði. Það jafn­gilti hækkun um rétt rúm­lega ein mán­að­ar­laun leið­bein­anda í grunn­skóla, sem höfðu 332 þús­und krónur í grunn­laun. 

Viðbrögð núver­andi fjár­mála­ráð­herra, sem þá hafði ekki tekið sæti í rík­is­stjórn, voru …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kjaramál

Stefán Ólafsson um nýja kjarasamninga: „það er veðmál í þessu“
Fréttir

Stefán Ólafsson um nýja kjara­samn­inga: „það er veð­mál í þessu“

Í sext­ánda þætti Pressu mættu Anna Hrefna Ingi­mund­ar­dóttir, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, og Stefán Ólafsson, sér­fræð­ingur hjá Eflingu – stétt­ar­fé­lagi, til þess að ræða nýju kjara­samn­ing­anna. Í við­tal­inu við­ur­kenndi Stefán að samn­ing­ur­inn væri í raun nokk­urs konar veð­mál, þar sem vonir væru bundnar við hjöðnun verð­bólgu til þess að skila launa­fólki ásætt­an­legum kjara­bótum.
Samtök atvinnulífsins kjósa um verkbann á félagsmenn VR
FréttirKjaramál

Samtök atvinnu­lífs­ins kjósa um verk­bann á félags­menn VR

Stjórn Samtaka atvinnu­lífs­ins hefur sam­þykkt ein­róma að halda atkvæða­greiðslu um hugs­an­legt verk­bann á félags­menn VR. Í til­kynn­ingu frá Samtökum atvinnu­lífs­ins sem birt­ist fyrir skömmu segir að verði verk­bannið sam­þykkt mun það ná til alls skrif­stofu­fólks með aðild að VR. Um er ræða við­bragð við verk­falls­að­gerðum sem VR hefur boðað meðal starfs­manna í farg­þega- og hleðslu­þjón­ustu hjá Icelandair
Ókeypis skólamáltíðir í Reykjavík munu kosta 1,7 milljarð króna á ári
FréttirKjaramál

Ókeypis skóla­mál­tíðir í Reykja­vík munu kosta 1,7 millj­arð króna á ári

Eitt umfangs­mesta verk­efnið sem fólgið er í aðgerða­pakka rík­is­ins og sveit­ar­fé­laga til að liðka fyrir gerð kjara­samn­inga, er að tryggja gjald­frjálsar skóla­mál­tíðir í grunn­skólum. Tals­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga segir að öll börn, óháð því hvort þau voru skráð í mat fyrir breyt­ing­arnar muni fá fríar skóla­mál­tíðir. Ekki liggur fyrir hvernig verk­efnið verður útfært í skólum sem hafa útvi­stað mat­ar­þjón­ustu sinni.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár