Mynd: Kristinn Magnússon

„Samfylkingin stendur enn fyrir það sama og alltaf áður“

Oddný Harð­ar­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir að vinstri stjórnin hefði átt að hefja inn­spýt­ing­una í heil­brigð­is­kerfið fyrr. Hún vill skipta þjóð­ar­kök­unni með rétt­lát­ari hætti.

Oddný Harð­ar­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir vinstri stjórn­ina hafa staðið sig vel og ekki gert nein stór­felld mis­tök. „En það er gott að vera vitur eftir á og gæti ég spólað til baka myndi ég hefja inn­spýt­ing­una í heil­brigð­is­kerfið fyrr en við gerðum. Í fjár­lög­unum okkar fyrir árið 2013 kom í fyrsta sinn hækkun til heil­brigð­is­þjón­ust­unnar frá árinu 2003. Hún hefði mátt koma ári fyrr,“ segir hún. 

 

 

Sam­fylk­ingin er jafn­að­ar­manna­flokkur að nor­rænni fyr­ir­mynd sem varð til árið 2000 við sam­runa fjög­urra flokka og átti að vera mót­væg­is­afl við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Sam­fylk­ingin hefur þrisvar sinnum setið í rík­is­stjórn, með Sjálf­stæð­is­flokki árin 2007 til 2009, í minni­hluta­stjórn ásamt Vinstri grænum, með stuðn­ingi Fram­sókn­ar­flokks, í þrjá mán­uði fram að kosn­ingum 2009 og í hreinni vinstri stjórn með Vinstri 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár