Bylting Ungir jafn­að­ar­menn og rót­tækir flokks­menn gjör­byltu stefn­unni á lands­fundi flokks­ins. Minnstu mun­aði að for­mað­ur­inn félli. Mynd: PressPhotos

Samfylking á jaðrinum

Árni Páll Árnason for­maður er múl­bund­inn af rót­tækum sam­þykktum lands­fundar. Stefnu Össurar í olíu­málum hafnað. Afglæpa­væð­ing fíkni­efna og aðskiln­aður ríkis og kirkju. Hljóðlát bylt­ing Ungra jafn­að­ar­manna á lands­fundi.

Eftir lands­fund Sam­fylk­ing­ar­innar í síð­asta mán­uði er hægri vængur flokks­ins lamaður og flokk­ur­inn er í raun stjórn­laus. Árni Páll Árnason for­maður stóð af sér mót­fram­boð og leift­ur­sókn Sigríðar Ingi­bjargar Inga­dóttur með aðeins einu atkvæði. Hermt er að þetta sé jafn­framt eini sigur for­manns­ins á fund­inum. Í stórum málum á borð við olíu­vinnslu og aðskilnað ríkis og kirkju lutu for­mað­ur­inn og hans helstu stuðn­ings­menn í gras. Við lok lands­fundar blasti við að vinstri vængur Sam­fylk­ingar og ung­liðar flokks­ins höfðu unnið stór­sigur á kostnað for­manns­ins og hans helstu banda­manna. „Við komum inn okkar málum og þau voru öll sam­þykkt,“ segir Eva Ind­riða­dóttir for­maður Ungra jafn­að­ar­manna í sam­tali við Stundina. Hún segir félagið hafa lagst í mikla und­ir­bún­ings­vinnu fyrir lands­fund og upp­skorið ríku­lega.

Gras­rótin sigr­aði. Eftir sátu furðu­lostnir valda­menn sem skyndi­lega höfðu verið sviptir völdum sínum og áhrifum. Stundin ræddi við áhrifa­fólk innan Sam­fylk­ingar í því skyni að varpa ljósi á stöð­una eftir atburð­ar­rás­ina sem hefur fært flokk­inn lengst inn í rót­tækni í stað þess að vera hæg­fara miðju­flokkur með marga snertifleti við Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Össuri skákað

Össur Skarp­héð­ins­son alþing­is­maður hefur lengi verið „sterki mað­ur­inn“ í flokknum. Þótt Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir, svil­kona hans, hafi á sínum tíma fellt hann af for­manns­stóli þótti eng­inn vafi leika á því að hann réði því sem hann vildi. Þannig keyrði hann fram þá ein­dregnu stefnu í síð­ustu rík­is­stjórn að und­ir­búin væri olíu­vinnsla á Dreka­svæð­inu. Össur var svo ákafur í stuðn­ingi sínum við að dæla svartasta gull­inu úr úthaf­inu að hann kynnti sig gjarnan í fjöl­miðlum í léttum dúr sem olíu­mála­ráð­herra. Innan flokks­ins voru miklar efa­semdir um ein­leik ráð­herr­ans í fjöl­miðlum og fjar­aði undan stuðn­ingi við hann. Ákafi Össurar og seinna Katrínar Júl­í­us­dóttur, sem tók við emb­ætti iðn­að­ar­ráð­herra, varð til þess að hleypa illu blóði í þá nátt­úru­vernd­ar­sinna innan flokks­ins sem voru harðir í and­stöðu sinni við olíu­vinnslu við Ísland. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár