Mynd: Nanna Rögnvaldar

Rósakál með möndlum

Nanna Rögn­valdar deilir jóla­legri upp­skrift af góm­sætu með­mæli.

Meðlæti fyrir 6-8

Rósakál er vetrar­græn­meti, upp á sitt besta um jóla­leytið og í Bret­landi þykir mörgum það ómissandi hluti af jóla­mál­tíð­inni. Gæta þarf þess að ofelda það ekki, þá getur það orðið beiskt á bragðið. Þessi réttur er góður til dæmis með svína­steik, kalkúna eða lamba­kjöti.

  • 50 g möndlur, heilar en afhýddar
  • 500 g rósa­kál
  • salt
  • ½ rauð­laukur
  • 1 hvít­lauks­geiri
  • 60 g smjör
  • ½ sítróna

 
Skerðu möndl­urnar í helm­inga, rist­aðu þær á þurri pönnu í nokkrar mín­útur og hristu pönn­una oft á meðan. Láttu þær kólna. Skerðu neðan af stilk­unum á kál­inu og hreins­aðu burt sölnuð blöð. Sjóddu það í salt­vatni í 4-5 mín­útur. Helltu því þá í sigti og skol­aðu snöggt í köldu vatni. Skerðu haus­ana í tvennt.

Saxaðu rauð­lauk og hvít­lauk og láttu krauma í smjör­inu á pönnu við með­al­hita í 2-3 mín­útur. Bættu rósa­kál­inu á pönn­una og steiktu við með­al­hita í nokkrar mín­útur, eða þar til kálið er byrjað að taka lit og er næstum meyrt. Hrærðu möndl­unum saman við, kreistu safa úr sítrón­unni yfir og krydd­aðu með pipar og salti eftir þörfum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár