Panama-skjölin: Einn ríkasti útgerðarmaður landsins með hlut í félagi á Tortólu

Útgerð­ar­stjóri og næst­stærsti hlut­hafi Samherja, Kristján Vil­helms­son, var skráður fyrir hlut í fyr­ir­tæk­inu í Hornblow Continental Corp. Kristján og kona hans eiga eignir upp á um sjö millj­arða króna. Annar hlut­hafi í Hornblow, Hörður Jónsson, segir að félagið hljóti að hafa verið stofnað í gegnum Lands­banka Íslands.

Panama-skjölin: Einn ríkasti útgerðarmaður landsins með hlut í félagi á Tortólu
Hlutur í félagi á Tortólu Kristján Vil­helms­son átti hlut í félagi í skatta­skjól­inu Tortólu á árunum 2006 til 2009 sam­kvæmt Pana­ma­gögn­unum.

Kristján Vil­helms­son, útgerð­ar­maður og annar stærsti hlut­hafi Samherja á Akureyri, átti hlut í félagi í skatta­skjól­inu Tortólu sam­kvæmt Pana­ma­gögn­unum. Félagið sem Kristján var skráður fyrir á árunum 2006 til 2009 heitir Hornblow Continental Corp. Nafn Kristján og félags­ins er að finna í gagna­grunninnum um Panama­skjölin sem blaða­manna­sam­tökin ICIJ gerðu opin­beran í gær.   Félagið á Tortólu var stofnað í gegnum lög­manns­stof­una Mossack Fonseca í Panama í árs­byrjun 2006.

Samherji er langstærsta útgerð­ar­fé­lag Íslands og er ein­ungis um þriðj­ungur starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins á Íslandi. Fyr­ir­tækið er lang­kvóta­hæsta útgerð lands­ins þegar litið er afla­heim­ilda Samherja sjálfs sem og dótt­ur­fé­laga þess, Síld­ar­vinnsl­unnar, Útgerð­ar­fé­lags Akur­eyr­inga og Polaris Seafood meðal ann­arra. 

Tekið skal fram að ekki er ólög­legt að eiga félög í  skatta­skjólum og þrátt fyrir að fólk eigi slík félög er ekki þar með sagt að við­kom­andi hafi brotið lög. Skatta­hag­ræði og leynd um eign­ar­hald eru hins vegar tvær af helstu ástæð­unum fyrir notkun fólks á fyr­ir­tækjum í skatta­skjólum. 

Stundin náði ekki í Kristján Vil­helms­son til að spyrja hann um félagið. 

Á nærri sjö milljarða eignir

Kristján Vil­helms­son á 35,7 pró­senta hlut í Samherja og er þar með næst­stærsti hlut­haf­inn á eftir fyr­ir­tæki sem heitir Eign­ar­halds­fé­lagið Steinn ehf. sem er í eigu Þor­steins Más Bald­vins­sonar, for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins og frænda hans, sem á rúm­lega 36 pró­senta hlut. Hann hefur um ára­bil verið æðsti stjórn­andi Samherja ásamt Þor­steini og hefur gengt starfi útgerð­ar­stjóra hjá fyr­ir­tæk­inu. Kristján hefur síð­ast­liðin ár verið einn skatta­hæsti maður lands­ins og einn sá auð­ug­asti sam­kvæmt skatta­upp­lýs­ingum sem birtar eru á hverju ári. Árið 2013 var Kristján til dæmis sagður vera rík­asti Íslend­ing­ur­inn, ásamt eig­in­konu sinni Kolbrúnu Ing­ólfs­dóttur, en hrein eign þeirra var þá sögð vera 6,8 millj­arðar króna. 

Eigendur Hornblow
Eigendur Hornblow Eigendur Hornblow International sjást her á skýr­ing­ar­mynd um fyr­ir­tækið upp úr gagna­grunni ICIJ.

„Ég kem alveg af fjöllum“

Hefur aldrei heyrt minnst á félagið 

Kristján Vil­helms­son er hins vegar ekki eini hlut­haf­inn í Hornblow Continental Corp því þar eru nöfn einna tólf ann­arra ein­stak­linga og fyr­ir­tækja einnig. Meðal þeirra má nefna Sævar Helgason, Ásgeir Ásgeirs­son, Mýri ehf, Gnóg ehf. og nokkur erlend fyr­ir­tæki. Engar upp­lýs­ingar koma fram um starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins í gögn­unum sem ICIJ gerði opin­ber í gær. 

Einn af hlut­höf­unum í Hornblow Continental Corp, Hörður Jónsson sem er eig­andi Gnógs ehf., segir að hann hafi ekki heyrt minnst á félagið áður. Hann seg­ist hafa verið í eigna­stýr­ingu í Lands­banka Íslands og að starfs­menn bank­ans hafi haft umboð til að stunda fjár­fest­ingar fyrir hans hönd en að hann hafi þurft að sam­þykkja við­skiptin skrif­lega. „Ég kann­ast bara ekki við það. Var þetta í gegnum Lands­bank­ann eða? Ég kem alveg af fjöllum. Ég hef bara aldrei heyrt um þetta áður. Bankinn hlýtur bara að hafa stofnað þetta upp á sitt eins­dæmi. Er þetta hluta­fé­lag eða? Ég var í einka­banka­þjón­ustu hjá Lands­bank­anum en þeir létu mann alltaf skrifa undir. Ég veit ekki meira um þetta. Þeir hljóta bara að hafa farið frjáls­lega með heim­ild sín til fjár­fest­inga fyrir mig,“ segir Hörður. 

Miðað við þetta svar Harðar þá var Hornblow Contintental Corp stofnað af Lands­bank­anum fyrir ein­hverja við­skipta­vini sína. Eins og komið hefur fram þá not­aði Lands­bank­inn lög­manns­stof­una Mossack Fonseca í Panama til að stofna skúffu­fé­lög fyrir við­skipta­vini sína en skatta­lög­fræð­ingur bank­ans, Kristján Gunnar Valdi­mars­son, er meðal ann­ars sjálfur með félag í Panama­skjöl­unum sem finna má í gagna­grunni ICIJ.

Frekari upp­lýs­ingar um fyr­ir­tækið liggja hins vegar ekki fyrir að svo stöddu. Fjöl­mið­ill­inn Reykja­vík Media ehf. hefur hins vegar boðað að á næst­unni verði birt umfjöllun um útgerð­ar­menn og sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki í Panama­skjöl­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.
FréttirPanamaskjölin

Fengu fjöl­skyldu­mál­verk í hend­urnar eftir umfjöllun Stund­ar­innar

Skoskar mæðgur sem komu til Íslands í byrjun árs í leit að svörum við spurn­ingum sem leitað hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakk­látar Íslend­ingi sem sendi þeim mál­verk sem var í eigu ömmu þeirra og langömmu á Íslandi. Gunnar Eggert Guð­munds­son taldi rétt­ast að fjöl­skyldan fengi mál­verkið þar sem þau fengu lítið sem ekk­ert úr búi Áslaugar.

Myndband10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár