Ólafur hefur tekið 18 milljóna arð og lánað 23 milljónir úr Hraðbraut eftir lokun skólans

Ólafur Haukur Johnson reynir að þrýsta á Illuga Gunn­ars­son mennta­mála­ráð­herra af því hann vill gera nýjan þjón­ustu­samn­ing við ráðu­neytið fyrir Hrað­braut. Þrátt fyrir gagn­rýni Rík­is­end­ur­skoð­unar á arð­greiðslur og lán­veit­ingar út úr skól­anum hefur hann haldið áfram að taka arð úr rekstr­ar­fé­lagi skól­ans og veita lán út úr því þrátt fyrir að félagið sé tekju­laust. Fjár­munir félags­ins eru búnir.

Ólafur hefur tekið 18 milljóna arð og lánað 23 milljónir úr Hraðbraut eftir lokun skólans
Reynir að þrýsta á Illuga Ólafur Haukur Johnson reynir að fá Illuga Gunn­ars­son til að gera nýjan þjón­ustu­samn­ing við Mennta­skól­ann Hrað­braut. Mynd: Pressphotos

Ólafur Haukur Johnson, sem var eig­andi og skóla­stjóri Mennta­skól­ans Hrað­brautar, hefur haldið áfram að taka arð út úr rekstr­ar­fé­lagi skól­ans og lána pen­inga út úr fyr­ir­tæk­inu þrátt fyrir að skól­anum hafi verið gert að end­ur­greiða mennta­mála­ráðu­neyt­inu ofgreidd fjár­fram­lög sem námu 192 millj­ónum króna á árunum 2003 til 2009. Ólafur seg­ist hafa fengið vil­yrði Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra fyrir því að skól­inn fengi áfram stuðn­ing.

Mennta­skól­inn Hrað­braut var einka­rek­inn fram­halds­skóli í Reykja­vík sem starf­aði á árunum 2003  til 2012. Þrátt fyrir skól­inn hafi verið einka­rek­inn var hann fjár­magn­aður með opin­beru fé að 80 pró­sent leyti og að 20 pró­sentum með skóla­gjöldum nem­enda. 

Vill nýjan þjónustusamning
Vill nýjan þjón­ustu­samn­ing Ólafur Haukur Johnson vill fá nýjan þjón­ustu­samn­ing við mennta­mála­ráðu­neytið og skrif­aði hann grein þess efnis í Frétta­blaðið í gær.

Skólanum lokað eftir fjáraustur úr honum

Skólanum var lokað eftir vormiss­eri árið 2012 í kjöl­far umfjöll­unar DV um tug­millj­óna arð­greiðslur og lán­veit­ingar út úr rekstri skól­ans og gagn­rýn­innar skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar á starf­sem­inni.

Arð­greiðslur út úr Hrað­braut á tíma­bil­inu 2003 til 2009 námu 82 millj­ónum króna en eig­endur rekstr­ar­fé­lags skól­ans eru Ólafur Haukur Johnson og eig­in­kona hans, Borg­hildur Pét­urs­dóttir. Rekstr­ar­fé­lag skól­ans gerði einnig leigu­samn­ing við fast­eigna­fé­lag í eigu Ólafs Hauks um leigu á hús­næði undir skól­ann í Faxafeni í Reykja­vík og tóku Ólafur og Borg­hildur 105 millj­óna króna arð út úr því á árunum 2005 til 2008.

Samtals greiddi íslenska ríkið um 1152 millj­ónir króna til skól­ans á grund­velli þjón­ustu­samn­ings á árunum 2003 til 2010. Skuld skól­ans við mennta­mála­ráðu­neytið, sem til­komin var vegna ofgreiddra fjár­fram­laga og fjallað var um í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar, var á end­anum skulda­jöfnuð á móti kröfu sem Hrað­braut átti á hendur íslenska rík­inu vegna þess að skól­inn fékk of lítið greitt með hverjum nem­anda á árunum 2010 til 2012. Hrað­braut er því skuld­laus við íslenska ríkið sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar. 

DV greindi einnig meðal ann­ars greint frá því að Ólafur Haukur byggi í ein­býl­is­húsi á Arn­ar­nes­inu, ætti sum­ar­hús á Flórída og keyrði um á svartri Range Rover-bif­reið. Eitt af því sem Ólafur Haukur sagði um rekstur skól­ans á sínum tíma var að það sýndi sig að það „borg­aði sig“ að reka skól­ann. 

„Það er alveg nóg fyrir mig“

Ólafur fær ekki stuðning menntamálaráðuneytisins

Ólafur hefur á síð­ustu árum reynt að fá leyfi og stuðn­ing mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins til að opna skól­ann aftur en hvorki Katrín Jak­obs­dóttir, fyrr­ver­andi mennta­mála­ráð­herra, né Illugi Gunn­ars­son, núver­andi mennta­mála­ráð­herra, hafa orðið við þeim óskum hans.

Ólafur skóla­stjóri skrif­aði grein í Frétta­blaðið í gær þar sem hann átaldi Illuga fyrir að hafa ekki veitt honum leyfi til að opna skól­ann aftur með fjár­veit­ingum frá rík­inu.

Ólafur vildi ekki ræða grein­ina í Frétta­blað­inu í sam­tali við Stundina. „Heyrðu Ingi minn. Skrifa þú nú bara í fimmt­ánda skipti sömu greina­bullið sem þú ert búinn að skrifa áður. Það er alveg nóg fyrir mig,“ sagði Ólafur áður en hann skellti á. 

Einungis 114 þúsund krónur eftir í félaginu

Þrátt fyrir þá gagn­rýni sem Rík­is­end­ur­skoðun hefur sett fram á rekstur Hrað­brautar greiddi Ólafur samt sex millj­óna króna arð út úr rekstr­ar­fé­lagi skól­ans, Hrað­braut ehf, árið 2012 og svo tólf millj­óna arð árið 2013. Engin arð­greiðsla var árið 2014 en þá var hins vegar greitt út rúm­lega sjö millj­óna króna lán til „tengdra aðila“. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingum rekstr­ar­fé­lags skól­ans. Ólafur hefur því haldið áfram að greiða arð og veita lán út úr rekstr­ar­fé­lag­inu þrátt fyrir að meg­in­gagn­rýni Rík­is­end­ur­skoð­unar á starf­semi skól­ans hafi einmitt snúið að slíkum greiðslum út úr félag­inu. Þetta lán bæt­ist meðal ann­ars við sextán millj­óna króna lán út úr rekstr­ar­fé­lag­inu til tengdra aðila árið 2012 og tvö 50 millj­óna króna lán í fast­eigna­verk­efni Nýsis í Skotlandi á árunum 2007 en 2008 en Ólafur Haukur fjár­festi í því verk­efni í gegnum annað fyr­ir­tæki. 

Í lok árs 2014 var lausa­fjár­staða félags­ins orðin þannig að nán­ast ekk­ert fé var eftir í því: Einungis rúm­lega 114 þús­und krónur. Í lok árs 2013 hafði hand­bært fé numið rúm­lega 8,5 millj­ónum króna og var helsta ástæðan var breyt­ing­unni á hand­bæru fé sú að umrætt lán til tengdra aðila var veitt. Hrað­braut ehf. er ekki með neinar tekjur þar sem fjár­magn félags­ins kom frá nem­endum Hrað­brautar ehf. og mennta­mála­ráðu­neyt­inu þegar skól­inn var starf­andi en hann hefur ekki verið starf­ræktur í bráðum fjögur ár. Því eru engar líkur á því að lausa­fjár­staða rekstr­ar­fé­lags skól­ans hafi batnað eftir að gengið var frá árs­reikn­ingi skól­ans fyrir árið 2014. 

Segir Bjarna hafa veitt samþykki
Segir Bjarna hafa veitt sam­þykki Í grein­inni í Frétta­blað­inu sagði Ólafur Haukur Johnson að Bjarni Bene­dikts­son hefði sam­þykkt gerð þjón­ustu­samn­ings við Hrað­braut. Óvíst er hvort þetta er satt.

Segir Bjarna styðja skólann - faðir hans var í varastjórn

Eitt af því sem vakti athygli í grein Ólafs Hauks í Frétta­blað­inu var að hann vís­aði í meint tveggja manna tal þeirra Illuga Gunn­ars­sonar frá því í febr­úar á þessu ári. Í því sam­tali, þar sem rætt var um að mennta­mála­ráðu­neytið myndi gera annan þjón­ustu­samn­ing við Mennta­skól­ann Hrað­braut, sagði Ólafur að Illugi hefði sagt að ef Bjarni Bene­dikts­son styddi opnun Hrað­brautar að nýju. „Þá lof­aðir þú mér því að gera þjón­ustu­samn­ing við Hrað­braut ef við gætum fengið stuðn­ing Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra við málið. Sá stuðn­ingur hefur legið fyrir í nokkurn tíma en ekk­ert heyr­ist í þér vegna máls­ins og engin leið er að ná sam­bandi við þig. Nú spyr ég þig Illugi Gunn­ars­son: Ætlar þú að standa við lof­orð þitt um að gera þjón­ustu­samn­ing við Mennta­skól­ann Hrað­braut svo hann geti tekið til starfa í haust? Hefur þú kjark til að fylgja grunn­gildum og stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins?“,“ sagði Ólafur Haukur og vís­aði til meintra orða­skipta þeirra Illuga á fund­inum. 

„Sá stuðn­ingur hefur legið fyrir í nokkurn tíma en ekk­ert heyr­ist í þér“

Hvað sem líður sann­gildi orða Ólafs Hauks um skoðun Bjarna á skól­anum þá sat faðir Bjarna, Benedikt Sveins­son, sem vara­maður í stjórn skól­ans á árunum fyrir íslenska efna­hags­hrunið árið 2008. Bjarni er því tengdur skól­anum óbeint í gegnum föður sinn. 

Stundin hefur gert til­raunir til að ná tali af Svan­hildi Hólm Vals­dóttur, aðstoð­ar­konu Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra, en hún svarar ekki sím­tölum mið­ils­ins. Þar af leið­andi er ekki hægt að fá það stað­fest hvort Ólafur Haukur fari með rétt mál í grein sinni um skoðun Bjarna Bene­dikts­sonar á að Hrað­braut opni á nýjan leik eftir gerð þjón­ustu­samn­ings við mennta­mála­ráðu­neytið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár