Mynd: Wikimedia / Zinneke (CC license) D'Gebai vum Alþingi, dem islännesche Parlament

Nýja fólkið sem tekur völdin

Gríð­ar­leg end­ur­nýjun verður á þing­manna­lið­inu verði nið­ur­stöður alþing­is­kosn­ing­anna í takt við nýjasta þjóð­ar­púls Gallup. Fjöl­margir núver­andi þing­menn kom­ast ekki inn á þing og tutt­ugu og fimm ein­stak­lingar munu taka sæti á Alþingi í fyrsta sinn. Stundin kynnti sér þá ein­stak­linga sem eru hvað lík­leg­astir, miðað við kann­anir, til þess að verða þing­menn á næstu kjör­tíma­bili.

Þrjátíu og fimm nýir þing­menn taka sæti á Alþingi ef nið­ur­staða kosn­ing­anna 29. októ­ber verður í takt við nýjan þjóð­ar­púls Gallup. Þrettán konur og tutt­ugu og tveir karlar. Þar af hafa ein­ungis tíu setið á þingi áður, ann­að­hvort sem þing­menn eða vara­þing­menn. Tuttugu og fimm væru að taka sæti á Alþingi í fyrsta sinn. Þetta þýðir líka að 35 ein­stak­lingar sem gegnt hafa þing­mennsku á síð­asta kjör­tíma­bili munu þurfa að kveðja þingsal­inn verði þetta nið­ur­staðan. Skoð­ana­kann­anir und­an­farið hafa sýnt að þónokkur hreyf­ing er á fylgi stjórn­mála­flokk­anna nú þegar minna en mán­uður er til kosn­inga. Þá eru margir ennþá óákveðnir eða kjósa að gefa ekki upp afstöðu sína.

Stundin not­aði nið­ur­stöður þessa síð­asta þjóð­ar­púls Gallup til þess að reikna út hvaða ein­stak­lingar kæmu nýir inn á þing ef kosn­ingar færu fram núna og nið­ur­stöður yrðu í sam­ræmi við sömu skoð­ana­könnun. Í ljós kemur að 35 nýir þing­menn tækju sæti á Alþingi í kosn­ingum núna, á meðan ein­ungis 28 þeirra þing­manna sem störf­uðu á síð­asta kjör­tíma­bili munu ná end­ur­kjöri. Í því sam­hengi er þó vert að benda á að fjöl­margir þeirra hafa kosið að gefa ekki kost á sér í kosn­ing­unum í haust. Flestir nýir þing­menn myndu koma úr röðum Pírata, eða tólf tals­ins. Þá kæmu níu nýir þing­menn frá Viðreisn inn á þing, sjö frá Sjálf­stæð­is­flokknum, tveir frá Sam­fylk­ingu, fimm frá Vinstri grænum á meðan end­ur­nýj­unin yrði engin hjá Framsókn og Björt fram­tíð næði ekki manni inn.

Sem fyrr segir byggir umfjöllun Stund­ar­innar á nýjasta þjóð­ar­púlsi Gallup, net­könnun sem tekin var dag­ana 16. til 29. sept­em­ber 2016. Heild­ar­úr­taks­stærð var 3.035, þátt­töku­hlut­fall var 59,2 pró­sent og ein­stak­lingar í úrtaki voru handa­hófs­valdir úr Við­horfa­hópi Gallup. Tæplega 10 pró­sent tóku ekki afstöðu eða neit­uðu að gefa hana upp og lið­lega átta pró­sent svar­enda sögð­ust myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag. Þann fyr­ir­vara verður að setja við nið­ur­stöð­una að ekki er fylli­lega mark­tækt að ganga út frá nið­ur­stöðum fyrir hvert kjör­dæmi. Vikmörk eru há vegna þess hve fá svör eru þegar svar­endum könn­un­ar­innar er skipt í hópa eftir kjör­dæmum. Kann­an­irnar gefa hins vegar ákveðna vís­bend­ingu um það hvernig Alþingi Íslend­inga gæti litið út eftir kom­andi kosn­ingar.

Alþingi25 þing­menn koma inn á Alþingi í fyrsta sinn, ef nið­ur­stöður síð­ustu könn­unar Gallups verða að veru­leika í alþing­is­kosn­ing­unum.

Björt framtíð úti

Þrátt fyrir að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Píratar séu enn stærstu flokk­arnir dalar fylgi þeirra eilítið frá síð­ustu mæl­ingu Gallup á meðan fylgi Við­reisnar fer örlítið upp á við. Tæplega 21 pró­sent seg­ist myndi kjósa Pírata sem er tæp­lega þremur pró­sentu­stigum minna en í síð­ustu mæl­ingu og nær 24 pró­sent segj­ast myndu kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn sem er um tveimur pró­sentu­stigum minna en fyrri hluta sept­em­ber. Þá segj­ast ríf­lega þrettán pró­sent myndu kjósa Viðreisn. Þessar breyt­ingar eru þó það litlar að þær eru vart töl­fræði­lega mark­tækar. Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina minnkar um tvö pró­sentu­stig frá síð­ustu mæl­ingu en nær 36 pró­sent segj­ast styðja rík­is­stjórn­ina.

Eina töl­fræði­lega mark­tæka breyt­ingin milli mæl­inga er fylg­is­aukn­ing Bjartrar fram­tíðar sem bætir við sig tæpum tveimur pró­sentu­stigum milli mæl­inga, en 4,7 pró­sent segj­ast myndu kjósa Bjarta fram­tíð færu kosn­ingar til Alþingis fram í dag. Flokk­ur­inn næði þó ekki yfir fimm pró­senta þrösk­uld­inn ef þetta yrði nið­ur­staðan og myndi því ekki fá neinn kjör­inn á þing. Það myndi þýða að þing­menn­irnir Björt Ólafs­dóttir, Óttarr Proppé og Páll Valur Björns­son, sem öll leiða lista flokks­ins í ólíkum kjör­dæmum, myndu þurfa að taka poka sinn. Tæplega 16 pró­sent segj­ast myndu kjósa Vinstri græn, sem er um tveimur pró­sentu­stigum meira en í síð­ustu mæl­ingu. Rúmlega átta pró­sent segj­ast ætla að kjósa Sam­fylk­ing­una og Fram­sókn­ar­flokk­inn. Aðrir flokkar ná ekki upp fyrir fimm pró­senta múr­inn og myndu því ekki ná manni inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár