Mynd: Kristinn Magnússon

„Níðingsskapur að reka Elínu“

Sjón­varps­mað­ur­inn Sig­mundur Ernir Rún­ars­son hefur verið 30 ár í sjón­varpi. Allir þekkja and­lit hans. Brúna­þungur sagði hann dramat­ískar fréttir og skipti hik­laust yfir í gáska­fullt yfir­bragð þegar sá gáll­inn var á honum. Hann er ein­kenni­leg blanda af ljóð­skáldi og grjót­hörðum blaða­manni. Eftir ára­tuga­starf á Stöð 2 voru hann og eig­in­kona hans rekin. Á sama tíma var hann að glíma við nístandi sorg vegna dótt­urs­missis. Hann ákvað að ger­ast þing­maður og missti þing­sætið eftir kjör­tíma­bilið. Nú stýrir hann sinni eigin sjón­varps­stöð, Hring­braut, á milli þess sem hann klífur hæstu fjöll.

Við erum ekki að reyna að vera stærsta eða merki­leg­asta sjón­varps­stöð í heimi. Við erum að gera það sem við kunnum þokka­lega og erum með báða fætur á jörð­inni. Ég get ekki annað en verið ánægður. Við náum vel til fólks og erum sterk í hópnum 30 ára og eldri á Reykja­vík­ur­svæð­inu. Yfir 20 pró­sent af þessum hópi fer reglu­lega inn á Hring­braut. Við finnum fyrir miklum hlý­hug og stuðn­ingi með þetta nýja sjón­varp okkar sem gengur út á að vera fræð­andi tal­máls­sjón­varp,“ segir Sig­mundur Ernir sem lagði út í óviss­una fyrir rúm­lega ári þegar hann stofn­aði sjón­varps­stöð­ina Hring­braut ásamt félögum sínum. Hann og Guð­mundur Örn Jóhanns­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Lands­bjargar, standa í stafni en stöðin er að lang­mestu leyti í eigu starfs­manna. Og það ganga allir í þau verk sem til falla. 

„Við skiptum með okkur öllum verkum. Stundum tek ég að mér að svara í sím­ann. Á fimmtu­dögum skúra ég vinnu­stað­inn með félögum mínum. Saman göngum við í að skipta um leik­mynd og gera það sem þarf,“ segir Sig­mundur. 

Góðar viðtökur

Stöðin hefur fengið góðar við­tökur og þykir vera fag­mann­leg í hví­vetna. Útsend­ingin er í háskerpu en sökum þess að hluti fólks nær ekki þeirri útsend­ingu var gripið til þess að senda einnig út á lægri tíðni. 
Sjón­varps­stjór­inn, Sig­mundur Ernir, hefur ára­tug­a­reynslu af sjón­varpi. Hann hefir unnið fyrir allar stóru stöðv­arnar, Rík­is­út­varpið. Stöð 2 og Skjáeinn og jafnan vakið athygli fyrir þætti sína. 

Það þykir nokkuð djarft að stofna sjón­varps­stöð í dag. Sporin ættu að hræða. Menn hafa misst fót­anna í slíkum rekstri á örskömmum tíma. Þar er nær­tækt að minn­ast sjón­varps­stöðv­ar­innar Mikla­garðs sem hélt út í örfáa mán­uði og sigldi í strand. Sama gerð­ist með ÍSTV sem logn­að­ist út af eftir stuttan líf­tíma. Sig­mundur seg­ist ekk­ert ótt­ast í þeim efnum á meðan fyr­ir­tæk­inu sé stjórnað af skyn­semi. Hann segir stofn­kostnað við Hring­braut ein­ungis vera brot af því sem gerð­ist þegar Stöð 2 var stofnuð. 

„Útsend­ing­ar­tækin, sem við leigjum af tækni­stjór­anum okkar, kosta aðeins 15 millj­ónir króna. Til sam­an­burðar þá kost­uðu slík tæki hund­ruð millj­óna þegar Stöð 2 var að hefja göngu sína. Við erum í litlu hús­næði þar sem hver fer­metri er nýttur. Það er þröngt um okkur en við erum sátt og fólki líður vel. Við erum þegar komin upp í að vera með tvo tíma af nýju efni á dag, sem er umfram áætlun,“ segir hann. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár