Segir ekkert skattahagræði vera af skattaskjólsfélagi Önnu og Sigmundar Davíðs

Félag Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur, eig­in­konu Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra, átti tvær kröfur á Lands­bank­ann og Kaupþing. Félagið á eignir upp á rúman millj­arð. Jóhannes Þór Skúlason segir skatta­hag­ræði hafa verið af því að nota félagið en það sé ekki lengur þannig. Anna sagði frá félag­inu á Facebook í gær eftir fyr­ir­spurnir um félagið frá ein­hverjum óþekktum aðilum.

Segir ekkert skattahagræði vera af skattaskjólsfélagi Önnu og Sigmundar Davíðs
Anna Sig­ur­laug leit­aði ekki að skatta­hag­ræði segir Jóhannes Þór Aðstoð­ar­maður for­sæt­irs­ráð­herra, Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, segir að eig­in­kona hans, Anna S. Páls­dóttir, hafi ekki stofnað félag í skatta­skjóli með fyrir augum að leita eftir skatta­hag­ræði.

Félag í eigu Önnu S. Páls­dóttur, eig­in­konu Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra, lýsti 174 millj­óna króna kröfu í bú Lands­banka Íslands í lok októ­ber 2009. Félagið heitir Wintris Inc. og steig Anna S. fram á Facebook-síðu sinni í gær og tjáði sig opin­ber­lega um þetta félag sem heldur utan um eignir sem hún fékk frá for­eldrum sínum sem fyr­ir­fram­greiddan arf. Anna sagði þá að félagið væri skráð „erlendis“ en til­greindi ekki hvar. Arfurinn sem um ræddi nam rúmum millj­arði króna en faðir Önnur Sig­ur­laugar er Páll Sam­ú­els­son, fyrr­ver­andi eig­andi Toyota-umboðs­ins á Íslandi. 

Í Facebook-færslu sinni segir Anna Sig­ur­laug að félagið sé skráð „erlendis“ en Wintris Inc. er með heim­il­is­festi á Bresku Jóm­frú­areyjum, sam­kvæmt Jóhann­esi Þór Skúla­syni aðstoð­ar­manni Sig­mundar Davíðs.  „Þetta ger­ist upp­haf­lega þannig að þegar hún selur hlut sinn í fjöl­skyldy­fyr­ir­tæk­inu 2008 þá fer hún til Lands­bank­ans og spyr þá ráða og þeir ráð­leggja henni að gera þetta svona. Þau bjuggu erlendis á þessum tíma og höfðu ekki nein plön að flytja til Íslands. Eins og við vitum þá áttu bank­arnir fullt af svona lag­er­fyr­ir­tækjum sem þeir höfðu stofnað og þeir sögðu: Ja, hér er ágætis félag og er þettta ekki bara gott? Og þetta hefur verið svona síðan. Það sem er mik­il­vægt í þessu er að þrátt fyrir að þetta sé skráð þarna - og það vakna upp alls kyns gamlar minn­ingar tengt því og líka minn­ingar sem eru ekki svo gamlar - þá hafa allir skattar verið greiddir af þessu á Íslandi og í sam­ræmi við íslensk lög frá byrjun árs 2008.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Wintris-málið

Leyndu tilvist Wintris og greiddu ekki skatta í samræmi við lög
FréttirWintris-málið

Leyndu til­vist Wintris og greiddu ekki skatta í sam­ræmi við lög

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og eig­in­kona hans við­ur­kenndu í bréfi til rík­is­skatt­stjóra að hugs­an­lega hefðu þau ekki farið að reglum með því að skila ekki CFC-skýrslum. Þurftu að láta leið­rétta skatt­fram­töl mörg ár aftur í tím­ann. Útsvar, auð­legð­ar­skattur og tekju­skattur var end­ur­á­kvarð­aður.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár