Stórt og bjart rými Mynd: Kristinn Magnússon

Heimilið er vinnustaður fjölskyldunnar

Lýðræði og sköp­un­ar­gleði ræður ríkjum í iðn­að­ar­hús­næði vest­ar­lega á Kárs­nes­inu, sem sex manna fjöl­skylda hefur gert að heim­ili sínu. Rólan, borð­tenn­is­borðið og lista­verk barna upp um alla veggi bera þess merki að systk­inin fjögur sem þarna búa hafa sama rétt og for­eldrar þeirra til að ákveða hvernig sam­eig­in­leg rými fjöl­skyld­unnar eigi að vera.

Þegar bankað er upp á að Kárs­nes­braut kemur Lóa til dyr­anna. Síðhærð og háfætt þefar hún af gestum áður en hún hleypir þeim inn. Hún fer fremst í flokki fjög­urra gælu­dýra sem deila þessu heim­ili með hjón­unum Kristínu og Tristan og börnum þeirra, Lilju, Duncan, Belindu og Harriet.

Hlustar á börnin
Hlustar á börnin Kristín vill að börnin hennar hafi mikil áhrif á heim­ilið allt en ekki bara sitt eigið her­bergi. Þannig læri þau að þau geti haft áhrif á eigið líf.

Þetta heim­ili er veisla fyrir for­vitna, enda eitt­hvað óvænt og óvenju­legt að sjá í hverjum krók og hverjum kima, hluti sem finn­ast á fáum öðrum heim­ilum. Meira að segja leir­tauið er ein­stakt, mótað í höndum heim­il­is­föð­ur­ins eða barn­anna, enda öll afkom­endur þekkts leir­kera­smiðs. Stíllinn sem ein­kennir heim­ilið er ekki feng­inn úr lífs­stíls­tíma­riti heldur afrakstur samn­inga­við­ræðna og sam­vinnu alls heim­il­is­fólks­ins. Sam­eig­in­lega rými fjöl­skyld­unnar er nokkuð …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár