Mynd: Shutterstock

Flúði heimabæinn eftir hópnauðgun

„Ef ofbeld­is­menn eru alls staðar og alls­konar og það er engin leið að þekkja þá úr – hverjum áttu þá að treysta?“ spyr ráð­gjafi á Stíga­mótum. Hún segir mik­il­vægt að við­ur­kenna van­mátt­inn og beina sjónum að þeim sem bera ábyrgð­ina, ger­end­unum. Á þeim 25 árum sem liðin eru frá stofnun Stíga­móta hafa um 7000 konur sagt frá 10.000 nauðgurum. Sögurnar eru ýmiss konar, eins og þessar konur segja frá.

Þegar ég var 14 ára var mér nauðgað af tveimur strákum,“ segir Hafdís Björg Rand­vers­dóttir. Strák­arnir sem um ræðir voru eldri en hún, 18 og 19 ára. Þeir voru félags­lega sterkir og til­heyrðu stórum vina­hópi. Sjálf var hún ekki eins vina­mörg auk þess sem hún var að stíga sín fyrstu skref inn í skemmt­ana­lífið. Þetta kvöld var á meðal þeirra fyrstu sem hún drakk áfengi. Hún fór í partý með vin­konum sínum og strák sem hún var að hitta á þessum tíma. Þegar leið á kvöldið þurfti deitið hennar að fara en hún hélt áfram að skemmta sér og var orðin drukkin undir lok kvölds. „Þegar partý­inu lauk söfn­uð­ust allir saman fyrir utan, þar á meðal ég og vin­kona mín. Þá komu þessir strákar og fóru að tala við mig. Þeir reyndu að fá mig með sér í annað partý og þegar vin­kona mín fór inn til að sækja úlpuna sína drógu þeir mig með sér og sögðu að að hún kæmi á eftir. Auðvitað trúði ég því.

Á leið­inni reyndu þeir að fá mig til að drekka meira og gáfu mér bjór sem ég drakk. Þeir sögð­ust þurfa að koma við heima hjá sér til að ná í eitt­hvað og fara á kló­settið. Vinkona mín hringdi í sím­ann minn en annar strák­ur­inn tók sím­ann og slökkti á honum. Ég man eftir að hafa farið með þeim inn í húsið en restin er í móðu. Þeir riðu mér í öll göt og ég gat ekk­ert gert. Ég man hversu sárt það var, enda var ég hrein mey.“ Hafdís seg­ist enn muna hræðsl­una sem heltók hana, sér hafi liðið eins og hún væri lömuð.

Ásakaði sjálfa sig 

„Ég man að þegar þeir voru búnir sett­ust þeir í sófann í her­berg­inu og hlógu, sögðu mér að klæða mig, hentu í mig sím­anum og vís­uðu mér út. Áfram fóru þeir svo í þetta partý.“

Þegar hún var komin út úr hús­inu hringdi hún í vin­konu sína sem kom og fylgdi henni heim. Næstu daga á eftir var hún í áfalli og man lítið sem ekk­ert frá þeim tíma. „Vinkona mín hvatti mig til þess að fara niður á lög­reglu­stöð og kæra, eða tala um þetta við ein­hvern en ég var full af sekt­ar­kennd og fannst eins og þetta væri mér að kenna. Þannig að við töl­uðum ekki um þetta meir.“

Skömmin var hrika­leg. Ég þorði ekki fyrir mitt litla líf að segja frá þessu og í raun fannst mér þetta vera mín sök, því ég fór jú með þeim inn í húsið, ofurölvi og hefði átt að vita betur. Þegar ég var síðar spurð að því hvort ég hefði farið heim með þeim þá svar­aði ég því ját­andi, því ekki vildi ég vera þessi dauða­drukkna týpa sem léti nauðga sér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynferðisbrot

Myndir af neyðarmóttöku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“
FréttirKynferðisbrot

Myndir af neyð­ar­mót­töku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“

Lögreglu var heim­ilt að senda myndir sem teknar voru af Guðnýju S. Bjarna­dóttur á neyð­ar­mót­töku fyrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis á verj­anda manns sem hún kærði fyrir nauðgun. Þetta er nið­ur­staða Per­sónu­verndar. Guðný segir ótækt að ger­endur í kyn­ferð­is­af­brota­málum geti með þessum hætti fengið aðgang að við­kvæmum myndum af þolendum. „Þetta er bara staf­rænt kyn­ferð­is­of­beldi af hendi lög­regl­unnar.“

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár