Bjarni hefur engan til að mynda ríkisstjórn með - segir aðra ekki axla ábyrgð

Bjarni Bene­dikts­son er ósáttur við að aðrir flokkar hafi úti­lokað sam­starf og ýjaði að því að Viðreisn væri ábyrgð­ar­laus. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stefnir úr rík­is­stjórn.

Bjarni hefur engan til að mynda ríkisstjórn með - segir aðra ekki axla ábyrgð
Bjarni á Bessa­stöðum Bjarni gekk ákveð­inn á fund for­seta og ræddi ekki við fjöl­miðla fyrir hann. Mynd: Pressphotos

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði á fundi á Bessa­stöðum rétt í þessu að hann hefði engan til að mynda rík­is­stjórn með. „Ég er ekki með við­mæl­endur til að mynda meiri­hluta með,“ sagði Bjarni. Hann sagð­ist hafa viljað ræða við alla og gagn­rýnir aðra fyrir að hafa úti­lokað sam­starf.

Bæði Píratar og Vinstri grænir hafa sagt að þeir vilji ekki fara í rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokknum. Upp úr við­ræðum Við­reisnar, Bjartrar fram­tíðar og Sjálf­stæð­is­flokks slitn­aði í dag eftir að Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, hafði sent til­lögur sínar um mark­aðs­lausnir í sjáv­ar­út­vegi á Bjarna Bene­dikts­son.

„Ég hef verið til­bú­inn að ræða við hvern sem er og það hefur reynst mjög þungt undir fæti að þoka hlut­unum áfram,“ sagði Bjarni.

Hann sagði flokka hafa sagt fyrir kosn­ingar að þeir vildu breiða stjórn, en ekki hafi hugur fylgt máli eftir kosn­ingar. 

„Ég verð að segja alveg eins og er að eftir þessar kosn­ingar finnst mér ekki alveg hafa farið saman hljóð og mynd hjá öllum. Menn segja að skila­boð kosn­ing­anna séu þau að nú þurfi menn að horfa vítt yfir sviðið og vera til­búnir til að gera mála­miðl­anir og starfa með öðrum flokkum, en síðan í næsta orði benda menn á þá flokka sem þeir vilja fyrst úti­loka og það fólk sem þeir geti ekki átt sam­starf við,“ sagði Bjarni.

„Mér finnst menn enn alltof fastir í skot­gröfum og ekki til­búnir að sýna þann sveigj­an­leika sem er nauð­syn­legur til að rísa undir þeirri ábyrgð sem því fylgir að sækj­ast eftir sætum á Alþingi og stofna stjórn­mála­flokka og annað þess háttar,“ sagði Bjarni og virt­ist þar vísa til Við­reisnar, sem stofnuð var í vor. 

Bjarni mætirFormaður Sjálf­stæð­is­flokks­ins var þung­bú­inn við kom­una á Bessa­staði.

Bjarni tal­aði við Katrínu Jak­obs­dóttur í dag. Svo virð­ist sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stefni úr rík­is­stjórn. „Ég kem hingað ekki  með ein­hvers konar trygg­ingu frá öðrum flokkum um að þeir séu til­búnir til við­ræðna sem geti myndað meiri­hluta á þing­inu. Að því leyt­inu til er ekki til staðar lif­andi sam­tal um meiri­hluta að afstöðnum kosn­ingum sem ég er þátt­tak­andi í.“

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, sagði í sam­tali við Vísi að heil­mikið beri á milli þeirra flokka sem gætu myndað rík­is­stjórn. „Eins og ég segi er staðan flókin og ekk­ert öfunds­vert að reyna að berja saman rík­is­stjórn.“

Katrín fer á Bessa­staði klukkan 1 á morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár