Alcoa á Íslandi flutti 3,5 milljarða skattlaust úr landi

Vaxta­greiðslur Alcoa á Íslandi ehf. til móð­ur­fé­lags síns í Lúx­em­borg nema nú tæp­lega 57 millj­örð­um króna frá bygg­ingu álvers­ins á Reyð­ar­firði. Á sama tíma hefur bók­fært tap numið rúm­lega 52 millj­örðum króna. Fyrr­ver­andi rík­is­skatt­stjóri hefur sagt tapið vera til­búið til að kom­ast hjá skatt­greiðslum en Alcoa rekur það til mik­illar fjár­fest­ingar á Íslandi.

Alcoa á Íslandi  flutti 3,5 milljarða  skattlaust úr landi
Rúmlega 4,5 millj­arða munur Rúmlega 4,5 millj­arða króna munur er á greiðslum Alcoa á Íslandi til móður­félags síns í Lúx­em­borg og tap­rekstri fyr­ir­tæk­is­ins frá árinu 2013. Skýr­ing­una á bók­færðu tapi má því rekja að öllu leyti, og rúm­lega það, til greiðsln­anna til móð­ur­fé­lags­ins í Lúx­em­borg.

Alcoa á Íslandi ehf., móður­félag álverk­smiðj­unnar í Reyð­ar­firði sem rekin er undir merkjum Alcoa Fjarða­áls ehf., greiddi móð­ur­fé­lagi sínu í Lúx­em­borg tæp­lega 3,5 millj­arða íslenskra króna í vexti í fyrra. Bók­færður tap­rekstur félags­ins nam þá rúmum fjórum millj­örðum króna en bróð­ur­part­ur­inn af þessu tapi rann til félags innan sam­stæðu Alcoa í formi áður­nefndra vaxta­greiðslna. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Alcoa á íslandi sem skilað var til árs­reikn­inga­skrár Rík­is­skatt­stjóra þann 22. októ­ber síð­ast­lið­inn. 
Eins og komið hefur fram í fjöl­miðlum greiðir Alcoa á Íslandi ehf. ekki svo­kall­aðan fyr­ir­tækja­skatt hér á landi því félagið skilar aldrei hagn­aði. Fyr­ir­tækið hefur tapað hvert ein­asta rekstr­arár sitt á Íslandi frá árinu 2003 eða sem nemur nú sam­tals rúmum 52 millj­örðum króna. Á sama tíma­bili hefur félagið greitt sem nemur tæp­lega 57 millj­arða króna í vaxta­greiðslur til félags­ins í Lúx­em­borg en þær greiðslur eru ekki skatt­lagðar þar sem um er að ræða afborg­anir og vaxta­greiðslur.  Munurinn á bók­færðu tapi Alcoa á Íslandi og afborg­unum og vaxta­greiðslum fyr­ir­tæk­is­ins frá 2003 til 2014 nemur hins vegar tæp­lega 5 millj­örðum króna um þessar mundir.

Segir tapið tilbúið en Alcoa er ósammála

Líkt og Stundin hefur fjallað um áður telur Indriði Þor­láks­son, fyrr­ver­andi rík­is­skatt­stjóri, að Alcoa beiti þess­ari aðferð til að koma fjár­munum frá starf­semi álvers­ins án þess að þurfa að greiða skatta af rekstr­ar­hagn­aði fyr­ir­tæk­is­ins á Íslandi. „Þetta er bara til­búið tap,“ sagði Indriði við Stundina 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár