Aðili

Magnús Þór Ásmundsson

Fréttir

Alcoa: Laga­setningin hefði ekki haft nein áhrif á 6,2 milljarða vaxta­greiðslur 2014 og 2015

Vaxt­greiðslur álfyr­ir­tæk­isins Alcoa hafa almennt verið undir þeim viðmiðum sem kveðið er á um í nýjum lögum um tekju­skatt. Laga­breytingin sem á að koma í veg fyrir skatta­undanskot slíkra fyrir­tækja virðist því ekki hafa mikil áhrif. Forstjóri Alcoa segir að fyrir­tækið vinni að því að kanna áhrif laga­breytingarinnar á starfsemi álfyr­ir­tæk­isins.
Fréttir

Óskattlagðar vaxta­greiðslur Alcoa úr álverinu nema 67 milljörðum króna

Vaxta­greiðslur álversins á Reyðar­firði til félags í eigu Alcoa í Lúxemborg eru rúmlega tveimur milljörðum króna hærri en bókfært tap álversins á Íslandi. Síðasta ríkis­stjórn breytti lögum um tekju­skatt til að koma í veg fyrir slíka skatta­snúninga. Indriði Þorláksson segir að laga­breytingarnar séu ekki nægilega róttækar til að koma í veg fyrir skatta­undanskot með lána­viðskiptum á milli tengdra félaga.
Úttekt

Svona sleppa álfyrirtækin við að borga skatta á Íslandi

Norðurál hefur greitt 74 milljarða í fjármagns­kostnað, mest til eigin móður­félags, á sama tíma og fyrir­tækið hefur skilað bókfærðum hagnaði upp á 45 milljarða króna. Indriði Þorláksson, fyrr­verandi ríkis­skattstjóri, segir fyrir­tækið nota „fléttu“ til að komast hjá skatt­greiðslum á Íslandi. Öll álfyrirtækin þrjú beita ýmsum aðferðum til að eiga í sem mestum viðskiptum við móður­félög sín og önnur tengd fyrirtæki. Álfyrirtækin segja að um eðlileg lán vegna fjár­festinga sé að ræða. Unnið er að breytingum á skatta­lögum í fjármála­ráðuneytinu sem eiga að girða fyrir óeðlileg viðskipti tengdra fyrir­tækja.

21 mín. lestur

Fréttir

Alcoa á Íslandi flutti 3,5 milljarða skatt­laust úr landi

Vaxta­greiðslur Alcoa á Íslandi ehf. til móður­félags síns í Lúxemborg nema nú tæplega 57 milljörð­um króna frá byggingu álversins á Reyðar­firði. Á sama tíma hefur bókfært tap numið rúmlega 52 milljörðum króna. Fyrr­verandi ríkis­skattstjóri hefur sagt tapið vera tilbúið til að komast hjá skatt­greiðslum en Alcoa rekur það til mikillar fjár­festingar á Íslandi.

Mest lesið undanfarið ár