Borga 10 pró­sent vexti Norðurál á Grund­ar­tanga borgar um tíu pró­sent vexti af lánum sínum við banda­rískt móð­ur­fé­lag sitt og nam fjár­magns­kostn­aður fyr­ir­tæk­is­ins meira en 70 millj­ónum doll­ara í fyrra þegar fyr­ir­tækið skuld­aði móð­ur­fé­lag­inu meira en 700 millj­ónr. Fyr­ir­tækið er samt líka með banka­lán frá Lands­bank­anum sem ber 3,75 pró­sent vexti.

Svona sleppa álfyrirtækin við að borga skatta á Íslandi

Norðurál hefur greitt 74 millj­arða í fjár­magns­kostnað, mest til eigin móð­ur­fé­lags, á sama tíma og fyr­ir­tækið hefur skilað bók­færðum hagn­aði upp á 45 millj­arða króna. Indriði Þor­láks­son, fyrr­ver­andi rík­is­skatt­stjóri, segir fyr­ir­tækið nota „fléttu“ til að kom­ast hjá skatt­greiðslum á Íslandi. Öll álfyr­ir­tækin þrjú beita ýmsum aðferðum til að eiga í sem mestum við­skiptum við móð­ur­fé­lög sín og önnur tengd fyr­ir­tæki. Álfyr­ir­tækin segja að um eðli­leg lán vegna fjár­fest­inga sé að ræða. Unnið er að breyt­ingum á skatta­lögum í fjár­mála­ráðu­neyt­inu sem eiga að girða fyrir óeðli­leg við­skipti tengdra fyr­ir­tækja.

Norðurál ehf., sem á álver Norð­ur­áls á Grund­ar­tanga, skuld­aði banda­rísku móð­ur­fé­lagi sínu rúm­lega 90 millj­arða króna í árs­lok í fyrra en hafði þá á síð­ustu fjórum árunum þar á undan greitt banda­ríska fyr­ir­tæk­inu afborg­anir og vexti upp á rúm­lega 50 millj­arða króna. Frá stofnun álvers­ins á Grund­ar­tanga árið 2005 hefur fyr­ir­tækið greitt tæpa 74 millj­arða króna í fjár­magns­kostnað vegna lána sinna en á sama tíma nemur bók­færður hagn­aður fyr­ir­tæk­is­ins rúm­lega 45 millj­örðum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár