Bréf til þolandans í nauðgunarmálinu: „Frávísun máls er ekki sýkna“

Samtökin Aktí­vistar gegn nauðg­un­ar­menn­ingu hafa gefið yfir­lýs­ingu vegna nið­ur­fell­ingar hér­aðs­sak­sókn­ara á Hlíða­mál­inu svo­kall­aða. „Skömminni hefur þú skilað á sinn stað með kærunni og fyrir það máttu vera stolt af sjálfri þér, þetta krefst mik­ils styrks.“

Bréf til þolandans í nauðgunarmálinu: „Frávísun máls er ekki sýkna“

Samtökin Aktí­vistar gegn nauðg­un­ar­menn­ingu hafa gefið út yfir­lýs­ingu vegna nið­ur­fell­ingar hér­aðs­sak­sókn­ara á máli sem varðar menn­ina tvo sem kærðir voru fyrir að nauðga konu í íbúð í Hlíðunum. Í yfir­lýs­ing­unni er konan sem kærði menn­ina ávörpuð:

„Vegna fregna af frá­vísun í nauðg­un­ar­máli kenndu við Hlíð­arnar senda und­ir­rit­aðar hlut­að­eig­andi konu/þol­anda bar­áttu- og sam­úð­ar­kveðjur. Það er þyngra en tárum taki að horfa uppá enn eitt málið í þessum brota­flokki enda með frá­vísun, en líkt og fram hefur komið er sönn­un­ar­byrði þess­ara mála þung og lands­lagið sem horfir við þolendum óvægið og ger­enda­vænt með meiru. Við þig, hug­rakka kona (og aðra þolendur í svip­aðri stöðu), viljum við segja eft­ir­far­andi: Þú ert ekki ein, við stöndum með þér og hugsum hlýtt til þín. Skömminni hefur þú skilað á sinn stað með kærunni og fyrir það máttu vera stolt af sjálfri þér, þetta krefst mik­ils styrks. Mundu einnig að frá­vísun máls er ekki sýkna. Einnig viljum við senda kon­unni sem á málið sem er enn til með­ferðar hjá sak­sókn­ara­emb­ætt­inu bar­áttu­kveðjur.

Aktí­vistar gegn nauðg­un­ar­menn­ingu: María Lilja Þrast­ar­dóttir, Bryn­hildur Yrsa Valkyrja Guð­munds­dóttir, Linda Björk Eiríks­dóttir, Bene­dikta Ket­ils­dóttir, Hildur Lilli­endahl Vigg­ós­dóttir, Sóley Tóm­as­dóttir, Steinunn Ýr Ein­ars­dóttir, Elísabet Ýr Atla­dóttir, Ósk Gunn­laugs­dóttir, Birgitta Sig­urð­ar­dóttir, Hildur Guð­björns­dóttir, Bjarndís Helga Tóm­as­dóttir, Hugrún Jóns­dóttir, Áslaug Hauks­dóttir, Særún Magnea Sam­ú­els­dóttir, Aðal­heiður Jóhanns­dóttir, Bára Jóhann­es­dóttir Guð­rún­ar­dóttir, Sigrún Huld Skúla­dóttir, Fjóla Dísa Skúla­dóttir, Bryn­hildur Björns­dóttir, Saga Kjart­ans­dóttir, Erla E. Völu­dóttir, Edda Ýr Garð­ar­dóttir, Guðný Elísa Guð­geirs­dóttir, Helga D. Í. Sig­urð­ar­dóttir, Kristín I. Páls­dóttir og Sóley Björk Stef­áns­dóttir“

Fer fram á skaðabætur

RÚV greindi frá því fyrr í dag að hér­aðs­sak­sókn­ari hefði fellt niður annað mál sem varðar menn­ina tvo kærðir voru fyrir að nauðga konu í íbúð í Hlíðunum. Málið vakti mikla athygli þegar það kom upp og var það einna helst vegna lýs­ingar Frétta­blaðs­ins á íbúð­inni sem var sögð „útbúin til nauð­gana“. Menn­irnir voru ekki látnir sitja gæslu­varð­haldi og vakti það mikla reiði. Mótmæli fóru fram fyrir utan lög­reglu­stöð­ina á Hverf­is­götu og voru menn­irnir nafn­greindir á sam­fé­lags­miðlum.

Þess ber að geta að um var að ræða tvær nauðg­un­ar­kærur og er önnur þeirra enn til með­ferðar hjá hér­aðs­sak­sókn­ara. Vil­hjálmur Hans Vil­hjálms­son, lög­maður mann­anna, hefur fram á 20 millj­ónir króna í skaða­bætur frá Frétta­blað­inu. Kristín Þor­steins­dóttir, aðal­rit­stjóri Frétta­blaðs­ins, sagði á sínum tíma að fréttin hefði verið „bara góð blaða­mennska“ og sá enga ástæðu til að biðj­ast afsök­unar eða greiða skaða­bætur. „Það er eitt að kæra en annað þegar búið er að ákæra og nið­ur­staða liggur fyrir í dóms­máli - fjöl­miðlar verða að fara sér hægt í að sak­fella menn á síðum blað­anna og fólk ætti ekki að setj­ast of snemma í dóm­ara­sætið,“ hefur RÚV eftir Vil­hjálmi sem seg­ist ætla að halda til streitu skaða­bóta­mál­inu.

Vil­hjálmur Hans hefur enn­fremur kært kon­urnar tvær fyrir rangar sak­ar­giftir og aðra þeirra fyrir kyn­ferð­is­brot. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynferðisbrot

Myndir af neyðarmóttöku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“
FréttirKynferðisbrot

Myndir af neyð­ar­mót­töku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“

Lögreglu var heim­ilt að senda myndir sem teknar voru af Guðnýju S. Bjarna­dóttur á neyð­ar­mót­töku fyrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis á verj­anda manns sem hún kærði fyrir nauðgun. Þetta er nið­ur­staða Per­sónu­verndar. Guðný segir ótækt að ger­endur í kyn­ferð­is­af­brota­málum geti með þessum hætti fengið aðgang að við­kvæmum myndum af þolendum. „Þetta er bara staf­rænt kyn­ferð­is­of­beldi af hendi lög­regl­unnar.“

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár