Frá Sól­heimum Þangað koma margir til starfa upp­fullir eld­móðs. Þeir eru hins vegar líka margir sem stoppa stutt við þegar raun­veru­leik­inn reyn­ist ekki stand­ast sam­an­burð við ímynd­ina.

„Ævintýraleg“ starfsmannavelta á Sólheimum

Ein­ræð­istil­burðir og við­mót fram­kvæmda­stjóra Sólheima, sem stutt er af stjórn­ar­for­manni stað­ar­ins sem einnig er faðir þess fyrr­nefnda, er það sem hrekur fag­fólk frá Sól­heimum og skýrir gríð­ar­lega starfs­manna­veltu þar. Þetta segir fyrrum prestur á staðnum og fleiri fyrrum starfs­menn taka undir orð hennar. Á fimmta tug starfs­manna hefur ýmist hætt störfum á Sól­heimum eða verið sagt upp á und­an­förnum tveimur árum. Fram­kvæmda­stjóri kennir árferði og stað­setn­ingu í sveit um starfs­manna­velt­una.

Að minnsta kosti tveir bak­arar, þrír for­stöðu­menn versl­unar og kaffi­húss, átta kokkar, tveir við­halds­menn, fjórir ræsti­tæknar, tíu starfs­menn heim­il­is­sviðs, tveir rekstr­ar­stjórar, einn for­stöðu­maður fyr­ir­tækja­sviðs, þrír for­stöðu­menn heim­il­is­sviðs, tveir verk­efna­stjórar, tveir prestar og fjöldi ann­arra starfs­manna eða sjálf­boða­liða í verslun, á vinnu­stofum og víðar á Sól­heimum hefur hætt störfum á und­an­förnum tveimur árum. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar var í það minnsta fimmtán þeirra sagt upp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ástandið á Sólheimum

Sjálfboðaliði segir Sólheimum stjórnað eins og konungsríki
FréttirÁstandið á Sólheimum

Sjálf­boða­liði segir Sól­heimum stjórnað eins og kon­ungs­ríki

Rúmeninn Stefan George Kudor, sem starf­aði sem sjálf­boða­liði á Sól­heimum árið 2014, tekur undir frá­sagnir sjálf­boða­liða sem störf­uðu á staðnum árið 2015, sem lúta að slæmri stjórn og skipu­lagn­ingu á starfi sjálf­boða­liða. Hann seg­ist hafa horft upp á Sólheima missa fjölda hæfi­leik­a­ríks starfs­fólks af þessum sökum. „Hann kom fram við okkur eins og þræla,“ segir hann um fram­kvæmda­stjóra Sólheima.
Sjálfboðaliði ósáttur eftir leynilegt ástarsamband við sjötugan stjórnarformann Sólheima
ViðtalÁstandið á Sólheimum

Sjálf­boða­liði ósáttur eftir leyni­legt ást­ar­sam­band við sjö­tugan stjórn­ar­for­mann Sólheima

Selma Özgen er ein þeirra sem er ósátt við reynslu sína af sjálf­boða­liða­starfi á Sól­heimum. Selma átti í ást­ar­sam­bandi við stjórn­ar­for­mann Sólheima, Pétur Svein­bjarn­ar­son, sem er 42 árum eldri en hún. Mikið valda­misvægi var á milli þeirra tveggja og segir Selma að hún hafi fengið þau skila­boð að hún yrði látin fara frá Sól­heimum ef hún tjáði sig um sam­bandið, en hún var háð Sól­heimum með land­vist­ar­leyfi. Gögn sýna hvernig Pétur bað hana að halda leynd yfir komum sínum til hans.
Sjálfboðaliðar þögul verkfæri stjórnenda
FréttirÁstandið á Sólheimum

Sjálf­boða­liðar þögul verk­færi stjórn­enda

Maylis Galibert kom til starfa sem sjálf­boða­liði á Sól­heimum í árs­byrjun 2015, full vænt­inga. Hún varð hins vegar fyrir miklum von­brigðum með reynsl­una. Þegar henni varð ljóst að gagn­rýni ein­stak­linga leiddi ekki af sér úrbætur lagði hún spurn­inga­könnun fyrir aðra sjálf­boða­liða. Hún leiddi í ljós að margir þeirra höfðu svip­aða sögu von­brigða að segja.
Starfið langt frá því að standast væntingar sjálfboðaliða
FréttirÁstandið á Sólheimum

Starfið langt frá því að stand­ast vænt­ingar sjálf­boða­liða

Slæmt, lítið og heilsu­spill­andi hús­næði. Engar sam­göngur svo þeir þurftu að fara á putt­anum til að kom­ast til og frá þorp­inu. Sam­skipta­leysi. Útilokun frá þátt­töku í sam­fé­lag­inu. Þetta eru þau skila­boð sem voru gegn­um­gang­andi frá vel­flestum sjálf­boða­lið­unum sem svör­uðu spurn­inga­könnun um reynslu sína af Sól­heimum árið 2015.
Alvarlegar athugasemdir gerðar við starfsemi Sólheima
FréttirÁstandið á Sólheimum

Alvar­legar athuga­semdir gerðar við starf­semi Sólheima

Rétt­inda­málum fatl­aðra er veru­lega ábóta­vant á Sól­heimum, ef athuga­semdir rétt­inda­gæslu­manns fatl­aðs fólks á Suð­ur­landi eiga við rök að styðj­ast. Rétt­inda­gæslu­mað­ur­inn til­kynnti vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu um málin í fyrra­haust. Lítið var gert til að bregð­ast við gagn­rýn­inni, enda vís­aði fram­kvæmda­stjóri Sólheima henni nær alfarið á bug og taldi með því mál­inu lokið.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár