Mynd: Getty Images

Ævintýralegt líf Heiðu

Heida Reed leik­kona, eða Heiða Rún Sig­urð­ar­dóttir, hefur átt ævin­týra­legt líf þrátt fyrir að vera ung að árum. Hún gerir það gott sem leik­kona í Englandi um þessar mundir en hún fer með eitt aðal­hlut­verkið í hinu geysi­vin­sæla bún­inga­drama Poldark sem RÚV hefur sýn­ingar á í haust.

Heida Reed ólst upp sem Heiða Rún Sig­urð­ar­dóttir í Breið­holt­inu í Reykja­vík þar sem hún gekk í Öldusels­skóla. Hún er miðju­barnið í hópi þriggja systk­ina og átti ham­ingju­ríka æsku þar sem hún lék sér með vinum í hverf­inu og lagði stund á dans. „Breið­holtið var ynd­is­legt þegar ég var að alast upp. Við bjuggum í rað­húsum fyrir ofan versl­un­ar­kjarna þar sem var búð og bak­arí og ýmis­legt en það virð­ist ekki vera mikið starf­rækt þar í dag sem mér finnst svo­lítið sorg­legt. Ég var mikið í dansi og listum en þegar ég var lítil lang­aði mig til að verða dans­ari þegar ég yrði stór; eftir því sem ég varð eldri upp­götv­aði ég hins vegar að ég var í raun­inni ekki með lík­ama fyrir bestu tækn­ina. Ég er ekki með nógu langar lappir eða nógu sterkar mjaðmir; tækni­lega séð myndi ég ekki kom­ast nógu langt áfram, þannig að ég dró úr dans­inum og fór að horfa meira til leik­list­ar­innar.“

Frægð og fjarlæg lönd

Áður en Heiða hellti sér í leik­list­ina lá leið hennar til Indlands þegar hún var aðeins átján ára gömul en þar starf­aði hún sem fyr­ir­sæta á vegum umboðs­skrif­stof­unnar Eskimo Models. Þar fékk hún nóg að gera enda mikið fram­leitt af aug­lýs­ingum þar í landi og hún með rétta útlitið fyrir mark­að­inn. „Við vorum nokkrar sem fórum út og fengum þó nokkuð mikið að gera. Ég gerði tíu sjón­varps­aug­lýs­ingar og fékk strax góða reynslu fyrir framan mynda­vél­ina. Svo var bara svo gaman að vera á Indlandi að við fórum aftur og aftur. Það er skrítið til þess að hugsa núna hversu ungar við vorum allar en það var vel haldið utan um okkur og allt mjög vel skipu­lagt. Við vorum með bíl­stjóra sem keyrði okkur út um allt og verði fyrir utan húsið okkar. En það er samt rólegt þarna og við upp­lifðum okkur aldrei í neinni hættu. Við eign­uð­umst fljótt vini og ég og vin­kona mín eign­uð­umst ind­verska kærasta 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár