Framsókn græddi þingmann á kostnað Sjálfstæðisflokks vegna atkvæðamisvægis

Vegna misvægis atkvæða á milli flokka fékk Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn einn auka þing­mann á kostnað Sjálf­stæð­is­flokks­ins, ef horft er til fylgis flokk­anna á lands­vísu. Þetta er í þriðja sinn frá árinu 2013 sem þessi skekkja kemur Framsókn til góða.

Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknar og Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokks ræða saman aður en kappræður hefjast á RÚV. Mögulega um jafnt vægi atkvæða á milli flokka, en þó ólíklega.
Sigurður Ingi Jóhanns­son for­maður Fram­sóknar og Bjarni Bene­dikts­son for­maður Sjálf­stæð­is­flokks ræða saman aður en kapp­ræður hefj­ast á RÚV. Mögulega um jafnt vægi atkvæða á milli flokka, en þó ólík­lega. Mynd: Bára Huld Beck

Ef vægi atkvæða á lands­vísu hefði verið jafnt á milli flokka í kosn­ing­unum í gær hefði Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fengið 17 þing­menn og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn 12. Svo var ekki og nið­ur­staðan er sú að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fær 13 þing­menn og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ein­ungis 16.

Þorkell Helgason stærð­fræð­ingur, sem hefur ásamt fleirum ítrekað vakið máls á þess­ari skekkju sem hefur komið fram í kosn­inga­kerf­inu í und­an­förnum kosn­ingum, gerði þetta að umtals­efni í færslu á Facebook fyrr í dag og benti á að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn væri nú að fá einn auka­mann sökum þess að jöfn­un­ar­sætin, sem eru níu tals­ins í kjör­dæm­unum sex, eru of fá miðað við kjör­dæma­sætin.[links]

Árin 2013 og 2017 fékk Framsókn einnig einu þing­sæti of mikið miðað við það sem lands­fylgi hans stóð undir.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem nú tapar á þess­ari skekkju, fékk auka­mann árið 2016.

Jöfnuður á milli flokka hvað atkvæða­vægi varðar hefur því ekki náðst í fernum alþing­is­kosn­ingum í röð, en ástæðan fyrir þessu er sú að kjör­dæm­is­sæti eru of mörg og jöfn­un­ar­sætin eru of fá til þess að þau nái að gera það sem ætl­ast er til af þeim, að jafna vægi atkvæða eftir flokkum.

Afar skýrt skýrt dæmi um þennan ágalla kerf­is­ins komu fram í kosn­ing­unum árið 2017, er Sam­fylk­ingin fékk einum þing­manni færri en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn þrátt fyrir að fá fleiri atkvæði á lands­vísu.

„Eina var­an­lega lausnin á þessu er að hafa skilin á milli kjör­dæmis- og jöfn­un­ar­sæta fljót­andi; sem sagt að þau séu í raun öll ígildi jöfn­un­ar­sæta. Þetta og margt annað þarf að lag­færa í gild­andi kosn­inga­lögum!“ skrif­aði Þorkell í færslu sinni um málið.

Stjórnmálafræðiprófessor ítrekað gagnrýnt aðgerðaleysi þingsins

Ólafur Þ. Harð­ar­son pró­fessor í stjórn­mála­fræði við Háskóla Íslands er annar sem hefur ítrekað gagn­rýnt að stjórn­mála­menn grípi ekki til ráð­staf­ana til að jafna vægi atkvæða eftir flokkum á lands­vísu, þrátt fyrir að skekkjan hafi sýnt sig í fleiri kosn­ingum í röð.

[adspot]

Hann sagði fyrr á árinu að það væri „ekki boð­legt“ ef raunin yrði sú að ekki tæk­ist að jafna vægið fjórðu kosn­ing­arnar í röð og hefur talað mikið um málið er hann hefur verið kall­aður til sem álits­gjafi í aðdrag­anda kosn­inga núna. Þegar skoð­ana­kann­anir gerðu ráð fyrir því að Sós­í­alista­flokk­ur­inn næði inn þing­mönnum og flokkar á þingi yrðu níu tals­ins, var útlit fyrir að jöfn­un­ar­manna­kerfið myndi hrein­lega springa.

Þingið hafði kost á því að grípa til breyt­inga hvað þetta varðar fyrr á þessu ári, en ein­ungis ein­faldan þing­meiri­hluta þarf til þess að breyta fjölda jöfn­un­ar­þing­sæta. Það var ekki gert.

Málið var til nokk­urrar umræðu í vor er verið var að ræða breyt­ingar á kosn­inga­lögum, en þá náð­ist engin sam­staða á þingi um að fjölga jöfn­un­ar­þing­sætum til þess að laga misvægi atkvæða eftir flokkum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár