Þrettán sjúklingar með COVID-19 liggja nú á Landspítalanum og hefur þeim því fjölgað um þrjá síðustu klukkustundirnar. Tveir þeirra eru á gjörgæslu og báðir í öndunarvél.
Í gær greindust 36 einstaklingar með sjúkdóminn og hafa 576 greinst með veiruna frá því að þriðja bylgja faraldursins hófst þann 11. september.
[adspot]
Níu af nítján skurðstofum Landspítalans eru lokaðar vegna vaxandi þunga í starfsemi spítalans af völdum faraldursins. Landspítali er á hættustigi og unnið er að ýmsum leiðum til að auðvelda breytingar á starfseminni til að mæta aukinni þörf fyrir innlagnir.
[links]Í tilkynningu á vef Landspítalans í dag segir að smitsjúkdómadeild A7 í Fossvegi sé nú aftur orðin farsóttareining líkt og í fyrstu bylgju faraldursins í vetur og unnið er að skipulagi á lungnadeild svo unnt verði að taka við fleiri COVID-19 sjúklingum þar.
Grímuskylda hefur verið tekin upp á sjúkrahúsinu og ber öllum starfsmönnum og gestum að bera ávallt grímur sem spítalinn útvegar.
Í dag eru 572 sjúklingar í eftirliti hjá COVID-19 göngudeildinni. 95 starfsmenn Landspítalans eru í sóttkví og 37 í einangrun.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir