Himnarnir opnuðust – Mánaðarúrkoma féll á rúmum klukkutíma

Frakkar hafa líkt og fleiri íbúar á meg­in­landi Evrópu glímt við for­dæma­lausa hita og þurrka síð­ustu vikur og mán­uði. Nú hefur orðið stór­kost­leg breyt­ing þar á.

Rigningarvatn flæðir niður stiga á neðanjarðarlestarstöð í París í gær.
Rign­ing­ar­vatn flæðir niður stiga á neð­an­jarð­ar­lest­ar­stöð í París í gær. Mynd: Skjáskot Francx24

Eftir hverja hita­bylgj­una á fætur annarri í sumar og mikla þurrka fór loks að rigna í Frakk­landi á þriðju­dags­kvöld. Og það rignir enn. Svo mikil var rign­ingin að í gær flæddi um gólf neð­an­jarð­ar­lest­ar­stöðva Par­ís­ar­borgar. „Þetta var óhugn­an­legt,“ lýsir einn far­þeg­inn því þegar flóð­bylgja flæddi niður stiga bið­stöðv­ar­innar og hann stóð allt í einu í vatni upp að ökklum. Franska veð­ur­stofan segir að á einni klukku­stund hafi fallið úrkoma sem búast hefði mátt við á einum mán­uði.

Í dag og næstu daga eru í gildi app­el­sínugular veð­ur­við­var­anir vegna rign­ing­anna á mörgum svæðum í Frakk­landi. Þrumu­veður og úrkoma í bæði formi regns og hagléls er því áfram að vænta.

[adspot]

Rign­ing­ar­veðrið skall á með nokkrum ofsa á þriðju­dags­kvöldið. Vissu­lega voru drop­arnir kær­komnir. Gróður hefur skrælnað og vatns­ból þornað upp vegna óvenju mik­illar þurrka­tíðar í sumar. En þetta var steypiregn og vatnið óx og óx. Þetta olli því að sam­göngur fóru úr skorðum því hol­ræsa­kerfi Parísar og víðar höfðu ekki undan. Stórir pollar og lækir mynd­uð­ust á götum og ollu umferð­ar­teppu.

Nokkrar neð­an­jarð­ar­lest­ar­stöðvar urðu að loka inn­göngum sínum um hríð vegna veð­urs­ins. Í gær, mið­viku­dag, voru allar sam­göngur komnar í samt horf og það lítur út fyrir að engar skemmdir hafi orðið á innviðum.

Í suð­ur­hluta Frakk­lands hefur storm­viðri geisað og fór vindur í nágrenni Marseille upp í 40 metra á sek­úndu í hviðum. Veð­ur­stöðin á Eiffel-turn­inum sýndi yfir 20 metra á sek­úndu. Yfirborð árinnar Signu hækk­aði um 35 sentí­metra á um sól­ar­hring.

Franska veð­ur­stofan varar við áfram­hald­andi storm­viðri með mik­illi úrkomu það sem eftir er vik­unnar.

Miklir gróð­ur­eldar hafa fylgt þurrkum og hitum sum­ars­ins og talið er að allt að 700 þús­und hektrar lands hafi brunnið. Síðustu fimmtán ár er árs­með­al­talið um 190 þús­und hektrar. Svæðið sem hefur brunnið jafn­ast á við um fimmt­ung allrar Belgíu. Mestir hafa eld­arnir verið á Spáni. Þar hafa rúm­lega 265 þús­und hektrar lands brunnið. Í Frakk­landi hafa brunnið að minnsta kosti 62 þús­und hektrar en árs­meðal síð­ustu ára er í kringum 60 þús­und.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár