Kæra borist vegna Birgis – Erna fái kjörbréf í hans stað

Kæra hefur borist und­ir­bún­ings­nefnd fyrir rann­sókn kjör­bréfa þar sem farið er fram á að Alþingi ógildi kosn­ingu Birgis Þór­ar­ins­sonar, sem var kjör­inn á þing fyrir Mið­flokk­inn en gekk til liðs við Sjálf­stæð­is­flokk­inn tveimur vikum eftir kosn­ingar.

Í kærunni er þess krafist að Alþingi ógildi kosningu Birgis Þórarinssonar og staðfesti ekki kjörbréf hans. Þessi í stað eigi landskjörstjórn að gefa út kjörbréf til handa Ernu Bjarnadóttur, frambjóðanda Miðflokksins í Suðurkjördæmi.
Í kærunni er þess kraf­ist að Alþingi ógildi kosn­ingu Birgis Þór­ar­ins­sonar og stað­festi ekki kjör­bréf hans. Þessi í stað eigi lands­kjör­stjórn að gefa út kjör­bréf til handa Ernu Bjarna­dóttur, fram­bjóð­anda Mið­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi. Mynd: Miðflokkurinn

Í kærunni, sem var send út á fimmtu­dag, er þess kraf­ist að Alþingi stað­festi ekki kjör­bréf Birgis og þess í stað verði lands­kjör­stjórn falið að gefa út kjör­bréf til handa Ernu Bjarna­dóttur sem skip­aði annað sæti á lista Mið­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi.

[links]Þegar Birgir greindi frá vista­skiptum sínum yfir í Sjálf­stæð­is­flokk­inn 9. októ­ber taldi hann full­víst að Erna hygð­ist fylgja for­dæmi hans. Henni hafi síðan snú­ist hugur. Í kærunni segir að þessi fram­koma und­ir­striki ódreng­skap Birgis, það er að hann hafi haldið því fram í fjöl­miðlum að Erna hygð­ist fylgja honum án þess að hún hafi sjálf lýst því yfir fyrst.

Ákvörðun Birgis um að ganga til liðs við Sjálf­stæð­is­flokk­inn, sem tók honum opnum örmum, hefur verið afar umdeild og hefur hann legið undir ámæli fyrir að hafa blekkt kjós­end­ur, sér­stak­lega þar sem hann vís­aði í næstum þriggja ára gam­alt mál, Klaust­ur­málið svo­kall­aða, sem rök­stuðn­ing fyrir ákvörðun sinn­i.

Kjósendur Miðflokksins keyptu köttinn í sekknum

„Ljóst er að kjós­endur Mið­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi keyptu kött­inn í sekknum þar sem Birgir hafði hvergi getið þess í aðdrag­anda kosn­ing­anna að unnið væri gegn honum innan flokks­ins eða að hann teldi sig ekki eiga sam­leið með öðrum odd­vitum Mið­flokks­ins,“ segir í kærunni. Þar segir einnig að flestir hljóti að vera sam­mála um að það sé bæði óheið­ar­legt og ólýð­ræð­is­legt að villa á sér heim­ildir í kosn­ingum til Alþingis. Ef ekki verði gripið til aðgerða megi reikna með að fleiri slíkar upp­á­komur eigi sér stað í kom­andi kosn­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár