Unnið að tæknilegri útfærslu á styttri sóttkví

Verið er að vinna í tækni­legri útfærslu á styttri sótt­kví, þannig að þeir sem verði útsettir fyrir kór­ónu­veirusmiti þurfi ekki að vera 14 daga í sótt­kví. Mögulega yrði tekið sýni úr fólki á sjö­unda degi, segir sótt­varna­læknir.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á fundinum í dag.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir á fund­inum í dag. Mynd: Almannavarnir

Björn Ingi Hrafns­son fjöl­miðla­maður var mættur á upp­lýs­inga­fund almanna­varna í dag að venju og spurði Þórólf Guðnason sótt­varna­lækni hvort til skoð­unar væri að stytta þá sótt­kví sem fólk þarf að fara í eftir að hafa verið útsett fyrir smiti hér inn­an­lands.

„Já, ég ætl­aði nú ekki að tala um þetta núna, ég ætl­aði að geyma þetta þar til síðar,“ sagði Þórólfur við Björn Inga, en sagði þetta þó „alveg hár­rétt“ hjá honum.[links]

Núna þurfa allir sem verða útsettir fyrir smiti að fara í 14 daga sótt­kví, en Þórólfur sagði að það væri svo að flestir sem væru í raun smit­aðir væru komnir með ein­kenni tölu­vert fyrr. Það væri því til skoð­unar að taka sýni úr fólki í sótt­kví, til dæmis á sjö­unda degi, og fólk gæti þá verið laust úr sótt­kví fyrr en áður hefur verið.

„Veiran grein­ist hjá ein­stak­lingum kannski 2-3 dögum áður en ein­kenni hefj­ast og það kemur vel til álita að taka sýni kannski á sjö­unda degi [...] og stytta þannig sótt­kvína. Við erum að skoða útfærsl­una tækni­lega og ég held það væri mjög til bóta,“ sagði Þórólfur.

Alls eru 307 manns í sótt­kví á Íslandi í dag og hefur fjöldi þeirra farið síg­andi und­an­farna daga.

Grínaðist með mál Greenwood og Foden

Þórólfur var á fund­inum í dag spurður út í mál ensku fót­bolta­mann­anna sem hefur verið í hámæli í fjöl­miðlum víða um heim í dag eftir að fyrst var greint frá á fót­bolta­vefnum 433.is í morgun.

Tveir ungir knatt­spyrnu­menn í enska lands­lið­inu, Mason Greenwood og Phil Foden, voru í sam­skiptum við ungar íslenskar konur á hót­eli enska liðs­ins um helg­ina, þvert á gild­andi reglur.

[adspot]

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu rann­sakar mál þeirra, en þeir hafa einnig báðir verið teknir út úr enska lands­liðs­hópnum og fara ekki með lið­inu til Dan­merkur, þar sem næsti leikur liðs­ins er, heldur beint heim til Englands á ný.

„Það ætti að ógilda úrslitin í leiknum og jafn­vel úrskurða úrslitin okkar megin,“ sagði Þórólfur og hló, áður en hann stað­festi að þarna væri „klár­lega“ um brot á sótt­kví að ræða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár