Alþingi breytir skilgreiningu nauðgunar

Alþingi hefur sam­þykkt frum­varp um breyt­ingu á skil­grein­ingu nauðg­unar í kyn­ferð­is­kafla almennra hegn­ing­ar­laga. Samkvæmt nýju lög­unum eru öll tví­mæli tekin af um að sam­þykki sé for­senda kyn­maka.

Alþingi hefur sam­þykkt frum­varp Jóns Stein­dórs Valdi­mars­sonar þing­manns Við­reisnar og fleiri þing­manna um breyt­ingu á skil­grein­ingu nauðg­unar í kyn­ferð­is­kafla almennra hegn­ing­ar­laga.

Samkvæmt nýju lög­unum eru öll tví­mæli tekin af um að sam­þykki sé for­senda kyn­maka.

Í umsögn Ragn­heiðar Braga­dóttur, pró­fess­ors í refsirétti við Háskóla Íslands, um frum­varpið sagði meðal ann­ars að lög­fest­ing skil­grein­ingar nauðg­unar út frá sam­þykki sé eðli­legur þáttur í þróun rétt­ar­ins og þar sé leit­ast við að tryggja að lögin séu í sam­ræmi við rétt­ar­vit­und almenn­ings. Þá kom fram í umsögn Mann­rétt­inda­skrif­stofu Íslands að um nauð­syn­lega breyt­ingu hafi verið að ræða til sam­ræmis við Ist­an­bul­samn­ing­inn og dóma­fram­kvæmd Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu.

Jón Steindór sagði í umræðum um málið að frum­varpið sé liður í því að breyta við­horfum sem feðra­veldi for­tíðar hefur skapað og eru enn ríkj­andi eða eimir sterkt af á ýmsum stöðum. Með frum­varp­inu sé horfið frá þeim karllægu sjón­ar­miðum sem end­ur­spegl­ast víða að við til­teknar aðstæður eigi karl­maður næstum rétt á kyn­lífi með konu. Þá sé þau við­horf lífseig að þegar fólk er í sam­bandi, hvort sem það er innan hjóna­bands eða utan, ryðji það með ein­hverjum hætti úr vegi kyn­frelsi og sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétti þegar kyn­líf á í hlut.

„Það er skylda okkar þing­manna að lögin séu sann­gjörn og sporni gegn úreltum við­horfum. Það á svo sann­ar­lega við í þessu efni og til þess er þetta frum­varp lagt fram.“

Eftir breyt­ing­una mun nauðg­un­ar­á­kvæði hegn­ing­ar­lag­anna hljóða svo:

a. 1. mgr. orð­ast svo:
Hver sem hefur sam­ræði eða önnur kyn­ferð­is­mök við mann án sam­þykkis hans ger­ist sekur um nauðgun og skal sæta fang­elsi ekki skemur en 1 ár og allt að 16 árum. Samþykki telst liggja fyrir ef það er tjáð af frjálsum vilja. Samþykki telst ekki liggja fyrir ef beitt er ofbeldi, hót­unum eða ann­ars konar ólög­mætri nauð­ung. Til ofbeldis telst svipt­ing sjálf­ræðis með inni­lokun, lyfjum eða öðrum sam­bæri­legum hætti.
b. Á eftir orð­unum „mælt er fyrir um í 1. mgr.“ í 2. mgr. kemur: að beita blekk­ingum eða not­færa sér villu við­kom­andi um aðstæður eða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár