Allt að 200 gætu látist ef veirunni yrði sleppt lausri

Ef tíu pró­sent þjóð­ar­innar myndu smit­ast af kór­ónu­veirunni á skömmum tíma myndu milli 110 og 600 manns þurfa að leggj­ast inn á gjör­gæslu. Allt að 200 gætu lát­ist ef miðað er við þá reynslu sem feng­ist hefur af far­aldr­inum til þessa.

Ef 10 prósent þjóðarinnar myndi sýkjast á stuttum tíma gætu 90-350 manns þurft á öndunarvél að halda.
Ef 10 pró­sent þjóð­ar­innar myndi sýkj­ast á stuttum tíma gætu 90-350 manns þurft á önd­un­ar­vél að halda. Mynd: Landspítali/Þorkell Þorkelsson

Und­an­farið hefur verið umræða um þær aðgerðir sem beitt er í sam­fé­lag­inu til að hefta útbreiðslu veirunnar og þá hvort að virki­lega þurfi að grípa til þeirra í ljósi þess að aðgerð­irnar sjálfar valdi ýmsum alvar­legum sam­fé­lags­legum afleið­ingum.

„Auðvitað er þetta góð umræða og nauð­syn­leg og það er í sjálfu sér rétt að aðgerðir sem gripið er til núna valda alls konar afleið­ingum,“ sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. „En í þessa umræð­una vantar umræðu um það hvað kynni ger­ast ef við sleppum veirunni lausri og gera sem minnst til að hefta útbreiðsl­una inn­an­lands.“

Þórólfur benti á að um 1-2 pró­sent af þjóð­inni hefðu nú sýkst af kór­ónu­veirunni. Ef um 10 pró­sent myndu sýkj­ast, sem gæti hæg­lega gerst á nokkrum vikum, þá gætum við séð í ljósi reynsl­unnar um 36 þús­und manns sýkj­ast á um 4-6 vikna tíma­bili. „Við myndum sjá frá 1.200-2.300 manns þurfa að leggj­ast inn á sjúkra­hús. Við myndum sjá 110-600 manns þurfa að leggj­ast inn á gjör­gæslu. Og við myndum sjá 90-350 þurfa á önd­un­ar­vél að halda. Allt að 200 gætu lát­ist ef við miðum við reynsl­una hér inn­an­lands til þessa.“

Sagði Þórólfur því ljóst að tölu­vert lítið útbreiddur far­aldur, þegar um 10 pró­sent þjóð­ar­innar myndu sýkj­ast, myndi valda það miklu álagi á heil­brigð­is­kerfið að það myndi bitna á öðrum sjúk­linga­hópum og myndi auk þess valda ýmsum öðrum sam­fé­lags­legum skaða.

„Þannig að þegar menn eru að ræða þessi mál þá held ég að þurfi að taka þetta með inn í jöfn­una en því miður ef ég ekki heyrt það gert í þeirri umræðu sem hefur átt sér stað til þessa.“

Ef slakað yrði mikið á sam­fé­lags­legum aðgerðum myndi far­ald­ur­inn auk þess verða tölu­vert útbreidd­ari en þessi tíu pró­sent. Þórólfur sagði líka hafa heyrst í umræð­unni að hér yrði að ná hjarð­ó­næmi sem þýðir það að um 60 pró­sent af þjóð­inni þyrfti að smit­ast. „Menn geta bara ímyndað sér ef við færum að sjá sex­tíu pró­sent af þjóð­inni smit­ast á stuttum tíma hverslags afleið­in­ingar það myndi hafa í för með sér.“


 Allir nema fimm búa á höfuðborgarsvæðinu

Fimmtíu manns greindust með COVID-19 hér á landi í gær. Fjöldinn var nokkuð minni en und­an­farna daga en það gæti skýrst af því að færri sýni voru tekin um helg­ina en í síð­ustu viku. 66 pró­sent þeirra sem greindust í gær voru í sótt­kví og allir nema fimm voru búsettir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Um 4.000 manns eru í sótt­kví. „Næstu dagar og vika mun skera úr um það hvaða árangur við munum sjá af aðgerðum sem gripið var til fyrir viku,“ sagði Þórólfur. „Það er allt of snemmt að hrósa happi.“

Alls hafa rúm­lega 1.300 manns greinst með veiruna inn­an­lands frá 15. sept­em­ber og í dag eru rúm­lega 1.000 með COVID og í ein­angrun. 25 liggja á Land­spít­al­anum með COVID-19, þrír eru á gjör­gæslu og tveir í önd­un­ar­vél. Frá 15. sept­em­ber hafa 46 verið lagðir inn á sjúkra­hús vegna sjúk­dóms­ins.

Ald­urs­skipt­ing þeirra sem hafa sýkst í þess­ari bylgju er að sögn Þórólfs svipuð og í fyrstu bylgj­unni. Hann nefndi sér­stak­lega börn yngri en sautján ára en þar er tíðnin mjög svipuð og í vetur og vor. Sagði hann umræðu um að fleiri börn væru að sýkj­ast núna því ekki virð­ast eiga við rök að styðj­ast. Smit meðal barna eða frá börnum innan leik- og grunn­skóla er mjög fátítt að sögn sótt­varna­læknis. Þau smit sem eru að ber­ast inn í skól­ana eru miklu frekar að gera það með full­orðnum en börnum.

Nota sömu nálgun á leik- og grunnskóla

Smit meðal barna eða frá börnum innan leik og grunn­skóla er mjög fátítt. Það er miklu frekar að smit ber­ist inn í skól­anna utan frá og þá með full­orðnum. „Við erum núna að nota sömu nálgun og síð­ast­lið­inn vetur með góðum árangri,“ sagði Þórólfur. Hann sagði upp­lýs­ingar frá rakn­ing­arteym­inu benda til að smit í leik- og grunn­skólum væri ekki útbreidd­ara en í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins. Því telur hann ekki þörf á að beita hörðum aðgerðum á leik- og grunn­skólum.

Alma Möller land­læknir fór á fund­inum yfir stöð­una í heil­brigð­is­kerf­inu. Sagði hún hana almennt góða en að hún væri þó þung á þeim hjúkr­un­ar­heim­ilum þar sem verið er að fást við smit sem og á Land­spít­al­anum þar sem álagið er mikið.

Í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins greindust um 1.800 manns með veiruna á veiru­prófum en að auki um 1.800 í mótefna­prófum síðar. Sam­an­lagt er því talið að um 3.600 manns hafi sýkst í vetur og vor.

Af þessum heild­ar­fjölda þurfti 3,5 pró­sent inn­lögn á sjúkra­hús, 0,8 pró­sent inn­lögn á gjör­gæslu og 0,3 pró­sent lét­ust.

Í þess­ari þriðju bylgju hafa um 1.300 greinst með veiruna, 46 hafa þurft inn­lögn á sjúkra­hús eða 3,5 pró­sent sem er nákvæm­lega sama hlut­fall í vor. Hingað til hafa fjórir þurft gjör­gæslu­með­ferð sem er um 0,3 pró­sent af fjöld­anum.

Tekur tíma fyrir veikindi að þróast

„En við erum auð­vitað skammt á veg komin í þess­ari bylgju og það tekur tíma fyrir alvar­leg veik­indi að þró­ast. Þannig að það er of snemmt að hrósa happi með að það gangi betur. En auð­vitað vonum við að betra aðgengi að lyfjum og meiri þekk­ing á sjúk­dómnum stuðli að því að okkur gangi betur að með­höndla sjúk­dóm­inn.“

Þórólfur var á fund­inum spurður hvort að líkur væru á því að lands­menn gætu haldið nokkurn veg­inn eðli­leg jól. „Ég held að það sé klárt mál að ef við náum að sveigja þennan far­aldur almenni­lega niður og halda áfram aðgerðum á landa­mærum þá eigum við að geta haldið áfram að slaka á hér inn­an­lands,“ svar­aði Þórólfur. Hann benti á að nú værum við að fást við eitt afbrigði veirunnar, afbrigði sem kom hingað inn með ferða­mönnum áður en að tvö­föld skimun var tekin upp á landa­mær­unum. „Ef okkur gengur vel núna að halda þessu vel niðri þá ættum við að geta létt veru­lega á í fram­haldi af því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár