Notkun reyktóbaks og rafrettna ekki tengd við alvarlegri einkenni COVID-19

Nið­ur­stöður nýrrar rann­sóknar á Íslandi sýna ekki fram á aukið algengi eða alvar­leika COVID-19 sjúk­dóms meðal not­enda reyk­tó­baks eða rafrettna en benda til tengsla lungna­sjúk­dóma við alvar­legri ein­kenni.

Nið­ur­stöður nýrrar íslenskrar rann­sóknar benda til að notkun reyk­tó­baks og rafrettna séu ekki algeng­ari meðal COVID-19 sjúk­linga en almennt ger­ist á Íslandi og að slík notkun sé ekki tengd alvar­legri ein­kenna­mynd við grein­ingu COVID-19. Tilvist und­ir­liggj­andi lungna­sjúk­dóma hefur hins vegar skýr tengsl við alvar­legri ein­kenni við grein­ingu.

Greint er frá nið­ur­stöðum í grein í nýj­ustu útgáfu Lækna­blaðs­ins.

Fram kemur að heims­far­aldur COVID-19 sjúk­dóms af völdum SARS-CoV-2 hafi valdið miklu álagi á heil­brigð­is­kerfi um allan heim og aðgerðir vegna hans valdið miklu efna­hagstjóni. Alvar­legum sjúk­dómi fylgi yfir­leitt lungna­bólga og fylgi­kvillar frá lungum séu algengir í alvar­lega veikum sjúk­lingum. Tengsl lungna­sjúk­dóma, reyk­inga og rafrettu­notk­unar við algengi og alvar­leika COVID-19-sjúk­dóms séu óljós.

Notuð voru gögn úr fyrstu við­tölum á COVID-19 göngu­deild Land­spít­ala við 1.761 sjúk­ling með COVID-19 sem fylgt var eftir af spít­al­anum. Reiknuð var tíðni reyk­inga, rafrettu­notk­unar og und­ir­liggj­andi lungna­sjúk­dóma í þessum hópi, eftir ald­urs­flokkum og klínískri flokkun lækna á alvar­leika sjúk­dóms­ein­kenna. Kannað var hvort munur væri á tíðni þess­ara áhættu­þátta milli ald­urs­hópa og milli ein­kenna­flokka.

Með­al­aldur sjúk­linga var 41 ár. Flestir sjúk­lingar voru á ald­urs­bil­inu 35 til 54 ára, eða 38 pró­sent. Fámenn­asti ald­urs­hóp­ur­inn var svo 18 ára og yngri, eða 10 pró­sent. Um 6 pró­sent sjúk­linga reyktu við grein­ingu og 4 pró­sent not­uðu rafrettur. Einungis 8 pró­sent höfðu und­ir­liggj­andi lungna­sjúk­dóm. Flestir sjúk­lingar voru með vægan COVID-19-sjúk­dóm, eða 68 pró­sent. 22 pró­sent höfðu miðl­ungs­al­var­legan sjúk­dóm og 10 pró­sent voru með alvar­legan sjúk­dóm. 74 lögð­ust inn á sjúkra­hús, eða 4,2 pró­sent.

Kynja­hlut­fall var nokkuð jafnt í öllum ald­urs­hópum, þó var hlut­fall karla hæst í yngsta ald­urs­hópnum, eða 54 pró­sent, og lægst í hópnum milli 35 og 54 ára, eða 47 pró­sent. Flestir reyktu í ald­urs­hópnum 35 til 54 ára, eða 7 pró­sent. Enginn undir 18 ára reykti. Flestir sem not­uðu rafrettur voru á aldr­inum 18 til 34 ára, eða 8 pró­sent. Hlutfall sjúk­linga með lungna­sjúk­dóma við grein­ingu fór hækk­andi með hækk­andi aldri; frá 2 pró­sent í yngsta ald­urs­hópnum upp í 13 pró­sent meðal sjúk­linga yfir 55 ára, að því er fram kemur í grein­inni.

Sjúklingar með lungnasjúkdóma með alvarlegri einkenni við greiningu COVID-19

„Nið­ur­stöður okkar benda til þess að sjúk­lingar með lungna­sjúk­dóma séu með alvar­legri ein­kenni við grein­ingu. Við túlkun þess­ara nið­ur­staða er rétt að hafa í huga að það voru fáir í yngri ald­urs­hópum sem voru með und­ir­liggj­andi lungna­sjúk­dóm. Þær rann­sóknir sem þegar hafa verið birtar um áhrif lungna­sjúk­dóma á gang COVID-19 sjúk­dóms eru ólíkar þess­ari rann­sókn. Annars vegar voru þessar rann­sóknir gerðar á inniliggj­andi sjúk­lingum og hins vegar er verið að skoða áhrif lungna­sjúk­dóma á afdrif sjúk­linga en ekki á alvar­leika ein­kenna við grein­ingu,“ segir í grein­inni.

Rannsókn sem gerð var á inniliggj­andi sjúk­lingum víðs­vegar um Kína sýndi fram á að lang­vinn lungna­teppa er áhættu­þáttur fyrir alvar­legri COVID-19 sjúk­dómi, það er þörf fyrir inn­lögn á gjör­gæslu eða önd­un­ar­vél­ar­stuðn­ing eða and­lát af völdum sjúk­dóms­ins, að því er fram kemur í rann­sókn­inni.

„Að síð­ustu ber að hafa í huga að þær nið­ur­stöður sem hér birt­ast eru án til­lits til blönd­un­ar­þátta. Þannig gætu til dæmis tengsl reyk­inga við marga áhættu­þætti alvar­legs COVID-19-sjúk­dóms valdið því að fólk sem reykir hafi síður útsett sig fyrir smiti en aðrir. Þó eru ótví­ræðir styrk­leikar nið­ur­staðn­anna til staðar því að gögnum þess­arar rann­sóknar var safnað á sam­ræmdan, fram­skyggnan hátt og þau ná til allra greindra COVID-19 til­fella í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins á Íslandi,“ segir í grein­inni.

Hægt er að lesa grein­ina í Lækna­blað­inu í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár