Vítalía búin að gefa skýrslu hjá lögreglu

Mis­skiln­ingur olli því m.a. að skýrslu­taka í máli Vítalíu Laz­areva gegn þremur áhrifa­miklum mönnum í sam­fé­lag­inu, þeim Þórði Má Jóhann­essyni, Ara Edwald og Hregg­viði Jónssyni, dróst.

Þórður Már Jóhannesson, Ari Edwald og Hreggviður Jónsson.
Þórður Már Jóhann­es­son, Ari Edwald og Hregg­viður Jónsson. Mynd: Samsett mynd

Vítalía Laz­areva fór í byrjun vik­unnar í skýrslu­töku hjá lög­regl­unni á Vest­ur­landi vegna kyn­ferð­is­brota­kæru á hendur þeim Ara Edwald, Hregg­viði Jóns­syni og Þórði Má Jóhann­essyni. Þetta stað­festir Kolbrún Garð­ars­dóttir rétt­ar­gæslu­maður Vítalíu í sam­tali við Kjarnann.

Hún segir að ferlið hafi tekið svo­lítið langan tíma, að mis­skiln­ings hafi gætt í upp­hafi og aðrir þættir haft áhrif. „En nú er búið að ganga frá því,“ segir hún.

Lög­reglan mun nú rann­saka málið og taka skýrslu af vitnum og sak­born­ingum. Kolbrún segir að ómögu­legt sé að segja til um hversu langan tíma það muni taka.

Vítalía birti mynd á Twitter-síðu sinni í mars síð­ast­liðnum þar sem sjá mátti beiðni um tíma hjá kæru­mót­töku lög­regl­unnar. Hún sagði í sam­tali við Kjarnann á sínum tíma að hún ætl­aði ekki skilja málin eftir í lausu lofti og þetta hefði verið stórt og mik­il­vægt skref í rétta átt fyrir hana. „Hræðsla og óör­yggi er ekki í boði fyrir mig og ég kem til með að standa upp­rétt og ein­beita mér að rétt­læt­in­u.“

Hún skrif­aði jafn­framt í opinni færslu á Instagram að það hefði tekið tíma „að safna sér saman í næstu skref“ en hún væri til­búin.

Kærðu Vítalíu fyrir tilraun til fjárkúgunar

Menn­irnir þrír hafa nú kært Vítalíu og Arnar Grant fyrir til­raun til fjár­kúg­unar en Arnar Þór Stef­áns­son, lög­maður Þórðar Más, sagði í sam­tali við frétta­stofu Stöðvar 2 í síð­ustu viku að hann hefði stað­fest­ingu frá rík­is­lög­reglu­stjóra fyrir því að enga kæru vegna máls­ins væri að finna í lög­reglu­kerf­inu Löke.

Arnar Þór sagði það geta skipt máli fyrir með­ferð kærunnar sem nú hefur verið lögð fram að Vítalía hefði ekki kært þre­menn­ing­ana, líkt og hún hafði sagst ætla að gera.

„Það getur alveg skipt máli ef þú ert að láta að því liggja að þú ætlir að kæra og sért þol­andi, en kærir svo ekki. Það er nú ekki mjög trú­verðug fram­ganga,“ sagði Arnar Þór.

Baðst afsökunar á að hafa ekki vitað betur

Vítalía brást við frétta­flutn­ingnum og skrif­aði í færslu á Twitter í kjöl­farið þar sem hún sagði að hana lang­aði að biðj­ast afsök­unar – afsök­unar á því „að hafa brugð­ist öðrum þolendum“. Hún bæri jafn­framt ekki ábyrgð á frétta­flutn­ingi um málið. Hún sagð­ist hafa lagt fram bréf til kæru­mót­töku kyn­ferð­is­brota í mars síð­ast­liðnum hjá lög­regl­unni.

„Ég hef alltaf haldið að það að fylla út slíkt blað með fyr­ir­spurnum og spurn­ingum hvað varðar kyn­ferð­is­brot þýddi „eitt­hvað“. Ég hef ekki mætt í skýrslu­töku eins og hefur oft komið fram og hef ég aldrei sagt annað. Ég biðst afsök­unar. Afsök­unar á að vita ekki betur,“ skrif­aði hún.

Fjöl­margir tjáðu sig í kommentum við færsl­una þar sem fólk sýndi henni stuðn­ing og sagði hana ekki þurfa að biðj­ast afsök­unar á neinu.

Ferlið misjafnt milli embætta

Jónas Hall­grímur Ottósson lög­reglu­full­trúi rann­sókn­ar­deildar á Vest­ur­landi sagð­ist í síð­ustu viku eftir sam­ráð við lög­menn emb­ætt­is­ins í sam­tali við Kjarnann ekki geta tjáð sig um þetta til­tekna mál en sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans lá málið á borði lög­regl­unnar á Vest­ur­landi í nokkurn tíma þar sem meint brot átti sér stað í bústað í Skorra­dal. Hann sagði við Kjarnann að ferlið eftir að brot er til­kynnt væri mis­jafnt milli emb­ætta. Alla­jafna færu málin fyrr í gang hjá minni emb­ætt­unum þar sem álagið er ekki eins mikið þar.

„Við reynum alltaf að vinna með mál með brota­þola í huga þannig að ferlið verði ekki mjög mann­fjand­sam­legt. Þetta er alltaf erfitt og það eru miklar til­finn­ingar í gangi. Við reyndum sem sagt að sigla þessu eins þægi­lega í gegn eins og hugs­ast getur,“ sagði hann.

Hægt að panta tíma í gegnum tölvupóst, símleiðis eða með því að fylla út eyðublað

Á vef­síðu kæru­mót­töku lög­regl­unnar kemur fram að ef ein­hver vill leggja fram kæru vegna brots sé hægt að panta tíma með því að senda þeim tölvu­póst, með því að hringja í síma 444-1000 eða senda þeim beiðni í gegnum sér­staka vef­síðu. Ef brotið er nýaf­staðið eða ennþá yfir­stand­andi þurfi ávallt að hringja í 112.

Í skeyt­inu eða sím­tal­inu þarf að koma fram nafn, kennitala, heim­il­is­fang, sími, kæru­efnið, hvað gerð­ist, hvenær gerð­ist það, hvar gerð­ist það, hvaða tími hentar best til að koma á lög­reglu­stöð og hvaða lög­reglu­stöð er best að koma á. Jafn­framt hvort við­kom­andi þurfi aðstoð túlks.

„Gott er að taka fram að við reynum að koma til móts við alla hvað varðar tíma­setn­ingu, en því miður er það ekki alltaf hægt. Ef það er ekki hægt þá er sá tími gef­inn upp sem er laus og við­kom­andi beð­inn um að stað­festa hann. Í svar­skeyti okkar koma einnig fram aðrar upp­lýs­ingar sem snúa að vænt­an­lega kæru­efni, t.d. hvaða gögn þurfi að hafa með­ferðis,“ segir á vef­síðu lög­regl­unnar.

Málið komst í hámæli í janúar

Kjarn­inn fjall­aði um málið í byrjun jan­úar en Vítalía steig fram og greindi frá meintu ofbeldi í við­tali hjá Eddu Falak í Eigin konum þann 4. jan­úar síð­ast­lið­inn.

[links]Að­drag­and­inn var sá að seint í októ­ber birti Vítalía frá­­­sögn á sam­­fé­lags­mið­l­inum Instagram. Frá­­­sögnin var af kyn­­ferð­is­of­beldi sem hún sagði sig hafa orðið fyrir af hendi þriggja manna. Í frá­­­sögn­inni lýsti konan því ofbeldi sem hún sagði menn­ina hafa beitt sig í heitum potti og í sum­­­ar­­bú­­stað, aðdrag­anda þess að hún hefði endað með þeim þennan dag og í lok hennar nefndi hún þá alla þrjá með nafni, þá Ara Edwald, þáver­andi for­stjóra Ísey Skyr, Hregg­við Jóns­son, þáver­andi stjórn­ar­for­mann og aðal­eig­anda Veritas, og Þórð Má Jóhann­es­son, þáver­andi stjórn­ar­for­mann Festi.

Auk þess nefndi hún á nafn giftan mann, einka­­þjálf­­ar­ann Arnar Grant, sem hún átti í ást­­ar­­sam­­bandi við og fékk hana til að koma á þann stað sem meint brot fóru fram.

Færslan var síðar tekin niður af Instagram en hluti hennar er enn aðgeng­i­­legur á Twitt­er-­­síðu Vítal­­íu. Þar voru nöfn mann­anna hins vegar ekki birt. Þar segir meðal ann­­ars að henni hafi verið ráðið frá „því að segja frá og leita lengra vegna þess að aðilar þessir eru valda­­miklir í sam­­fé­lag­inu og allir fjöl­­skyld­u­­menn“.

Vildu engu svara

Skjá­­skot af frá­­­sögn Vítalíu fóru sem eldur í sinu um íslenskt sam­­fé­lag. Í stórum hópum var fátt annað rætt í margar vikur á eftir en hvar þetta mál stæði. Ekk­ert var hins vegar fjallað um málið í fjöl­mið­l­um, þrátt haft hafi verið sam­­band við menn­ina fjóra, meðal ann­­ars frá blaða­­manni Kjarn­ans. Við­brögðin voru eng­in. Þeir svör­uðu ekki.

Málið tók á sig nýja mynd þegar Vítalía steig fram hjá Eddu og greindi frá meintu ofbeldi.

Allir þrír stigu til hliðar úr ábyrgð­ar­stöðum eftir að fjöl­miðlaum­fjöllun um málið birt­ist. Eini sem hefur tjáð sig opin­ber­lega er Hregg­viður Jóns­son en hann sagði í yfir­lýs­ingu sinni: „Ég harma að hafa ekki stigið út úr aðstæðum sem ung kona hefur skýrt frá og fjallað hefur verið um í sumum fjöl­mið­l­­­um. Það er afar þung­­­bært að heyra um hennar reynslu.“

Hregg­viður sagð­ist jafn­framt líta þetta mál alvar­­­legum augum og þrátt fyrir að hann hefði „ekki gerst brot­­­legur við lög“ þá myndi hann stíga til hliðar úr stjórn Ver­­itas og stjórnum tengdra fyr­ir­tækja „til að raska ekki þeirra mik­il­vægu starf­­­sem­i“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár