Aukin hætta á heimilisofbeldi við aðstæður eins og nú eru

Tvö and­lát kvenna und­an­farna rúma viku má senni­lega rekja til ofbeldis inni á heim­ilum. Fram­kvæmda­stýra Kvenna­at­hvarfs­ins minnti þjóð­ina á að úrræði fyrir bæði ger­endur og þolendur eru í boði, á dag­legum upp­lýs­inga­fundi almanna­varna.

Sigþrúður Guðmundsdóttir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins
Sig­þrúður Guð­munds­dóttir fram­kvæmda­stýra Kvenna­at­hvarfs­ins Mynd: Lögreglan

Bæði rann­sóknir og reynsla land­anna í kringum okkur sýnir að hættan á heim­il­is­of­beldi eykst í ástandi eins og núna er í sam­fé­lag­inu, sagði Sig­þrúður Guð­munds­dóttir fram­kvæmda­stýra Kvenna­at­hvarfs­ins á dag­legum upp­lýs­inga­fundi yfir­valda vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru.

Hún sagði að því miður væri ýmis­legt sem benti til þess að svo væri hér líka, en tvö and­lát kvenna, eitt í Sand­gerði fyrir mán­aða­mót og annað í Hafn­ar­firði um helg­ina, eru til rann­sóknar sem saka­mál.

Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir rík­is­lög­reglu­stjóri sagði í morg­un­þætti Rík­is­út­varps­ins í morgun að útlit væri fyrir að í báðum til­fellum væri um hræði­leg heim­il­is­of­beld­is­mál að ræða.

Sig­þrúður beindi orðum sínum til ger­enda, þeirra sem hefðu áður í lífi sínu beitt ofbeldi í nánu sam­bandi.

„Hvert okkar sem þekkir sig í þeim aðstæðum að hafa ekki fundið aðra leið til að leysa ágrein­ing eða koma óánægju sinni á fram­færi eða halda stjórn­inni á heim­il­inu eða eitt­hvað slíkt, enga aðra leið nema að beita sví­virð­ingum eða hót­unum eða lík­am­legu ofbeldi, að leita sér hjálpar. Vegna þess að hafi það gerst einu sinni eru líkur á að það ger­ist aftur og við erum í áhættu varð­andi þetta, akkúrat núna,“ sagði Sig­þrúður og benti meðal ann­ars á úrræðið Heim­il­is­frið, sem sér­hæfir sig í með­ferð fyrir karla og konur sem beita ofbeldi.

Úrræðin standa galopin

Hún tal­aði einnig til þolenda og benti þeim á þau úrræði sem eru í boði. Kvenna­at­hvarfið er opið, glað­legt, hreint og smit­frítt líka, sagði Sig­þrúður, en áætl­anir eru til staðar um hvað skuli gera ef það breyt­ist.

Sig­þrúður sagði að þau sam­tök sem starfa fyrir þolendur ofbeldi, eins og Kvenna­at­hvarfið, Bjarka­hlíð, Bjarma­hlíð, Aflið á Akureyri, Dreka­slóð og Stígamót, hafi áhyggjur af því að fólk veigri sér við að leita í úrræðin á þessum tímum.

„Við höfum áhyggjur af því að okkur tak­ist ekki að hjálpa þeim sem helst þurfa á hjálp­inni að halda, en ég vil láta vita að þessi úrræði eru galopin sem fyrr, þó að þau hafi ef til vill þurft að breyta þjón­ustu sinni eitt­hvað. Öll erum við af vilja gerð til að leysa vand­ann,“ sagði Sig­þrúður.

Mikilvægt að börn búi ekki við ofbeldi

„Við erum öll barna­vernd,“ sagði Alma Möller land­læknir á fund­inum og Sig­þrúður ræddi einnig um stöðu barna á ofbeld­is­heim­ilum.

„Það er mik­il­vægt að hafa í huga að börn á ofbeld­is­heim­ilum hafa ekk­ert val, þau eru bara þar sem börn eiga að vera,“ sagði Sig­þrúður og bætti við að flestir for­eldrar í ofbeld­is­sam­böndum stæðu í þeirri trú að börnin þeirra yrðu ekki fyrir áhrifum af ofbeld­inu á heim­il­inu. Það væri rangt.

Hún sagði mik­il­vægt að börn hefðu ein­hvern sem þau treystu og gætu leitað til og kannski væri erfitt fyrir þau núna, á tíma sam­komu­banns, að nálg­ast þá mann­eskju. Það mik­il­væg­asta sem við gætum gert núna, væri að koma í veg fyrir að börn séu stað­sett á ofbeld­is­heim­ilum.

„Ef við sjáum eitt­hvað þá segjum við eitt­hvað og látum vita af því,“ sagði Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn, sem minnti á að í þessum efnum eins og öðrum yrði þjóðin að standa saman og passa upp á næsta mann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár