Í tvo mán­uði á ári neyð­ast rit­höf­undar til að ger­ast far­and­sölu­menn. Ef þeir eru á annað borð að gefa út bók. Mynd: Golli

Engar falsfréttir í skáldskap

Hvað er íslensk bók? Ber höfundum að slaufa lönd sem ritskoða bækur og er Kiljan of áhrifa­mikill í bókmennta­umræðunni? Rithöfundar ræða þetta og fleira í skáldskapar­síld bóka­blaðsins í ár. Öll með bók í jóla­bókaflóðinu núna; þau Sindri Freysson, Hildur Knúts­dóttir, Eiríkur Bergmann og Sunna Dís Másdóttir.

Jóla­bókaflóð er eldgömul hefð en blaktir nú í breytingum, bæði umhverfið og neyslu­venjur kaupenda hafa breyst. Upplifið þið að jóla­bókaflóðið sé meiri barningur en áður eða hvernig blasir það við ykkur núna?

Sindri: „Ég er búinn að vera að í rúmlega þrjátíu ár. Átti þrjátíu ára afmæli fyrir tveimur árum síðan. Ég held að það sem gerst hafi síðustu árin sé að titlum hefur fjölgað – sem tengist þessum styrkjum hins opinbera til útgefenda. Það er rótin að þessu. Því nú getur útgefandi gefið út bækur án þess að bera mjög skarðan hlut frá borði.

Það sem hefur gerst síðustu árin er að fyrir kannski tuttugu árum síðan voru titlar að seljast í 15 til 20.000 eintökum, þeir sem mest seldust. En nú er leitun að titli sem fer yfir 3000. Fimm titlar, heyrði ég, í fyrra, fóru yfir 3000 eintök.“

Hildur: „Ég held …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • RE
    Regína Eiríksdóttir skrifaði
    Kilja hefur engin áhrif á okkur sem lesa. Ég kaupi þær bækur sem ég vil lesa. Áður keypti ég kannski 6 til 8 bækur og naut þess að sjá hvað beid mín. En svo fóru forlögin að gefa fáránlega afslætti á nýju ári og þá byrjaði ég að kaupa jafnóðum og eg les.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár