Mat Seðlabankans á slitabúunum kynnt í ríkisstjórn – Gert opinbert á morgun

Stærsta efna­hags­mál Íslands er á loka­metr­unum. Seðla­bank­inn hefur lokið mati sínu á stöð­ug­leika­fram­lagi.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra kynnti stöð­ug­leika­mat Seðla­banka Íslands á und­an­þágu­beiðnum Kaup­þings, gamla Lands­bank­ans og Glitnis á rík­is­stjórn­ar­fundi í morgun. Matið verður kynnt fyrir efna­hags- og við­skipta­nefnd í fyrra­málið, síðan þing­flokkum stjórn­mála­flokka og lokst verður hald­inn blaða­manna­fundur þar sem málið verður kynnt almenn­ingi. Þetta til­kynnti Bjarni í sam­tali við RÚV í dag.

Upp­haf­lega átti að kynna matið snemma í októ­ber, sam­hliða birt­ingu Seðla­bank­ans á Fjár­mála­stöð­ug­leika­riti sínu. Í rit­inu átti að birt­ast við­auki um þau stöð­ug­leika­skil­yrði sem slita­búin þurfa að greiða til að kom­ast hjá 39 pró­sent stöð­ug­leika­skatti og um nauða­samn­ing þeirra. Á kynn­ing­ar­fundi vegna útkomu rits­ins átti einnig að opin­bera mat á til­lögum um aðgerðir og greiðslu stöð­ug­leika­fram­lags sem upp­fylla ætti sett stöð­ug­leika­skil­yrði stjórn­valda.

Þessari birt­ingu var frestað. Frest­unin olli miklum titr­ingi á meðal kröfu­hafa föllnu bank­anna, sem töldu málið vera í góðum far­vegi fram að þeim tíma. 

Íslandsbanki afhentur

Klukkan 4:10 aðfara­nótt 20. októ­ber var opin­beruð, í frétta­til­kynn­ingu frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu, ein risa­stór ástæða fyrir frestun birt­ing­ar­innar. Glitnir, það slitabú sem á að greiða mest í stöð­ug­leika­fram­lag, var ekki að mæta þeim skil­yrðum sem fyrir búið höfðu verið sett.

Til­kynn­ingin kom ekki að öllu leyti á óvart, þótt óvenju­lega mikil þögn hafi ríkt um inni­hald hennar. Kjarninn hefur greint frá því að und­an­förnu að slitabú bæði Kaup­þings og Lands­bank­ans væru langt komin með að sýna fram á að þau séu að mæta stöð­ug­leika­skil­yrðum stjórn­valda. Sömu sögu hafi ekki verið að segja af Glitni, sem á að greiða hæsta stöð­ug­leika­fram­lagið og setti fram flókn­ustu for­skrift­ina til að koma fram­lag­inu til skila.

Vegna stöð­unnar höfðu ráð­gjafar stærstu kröfu­hafa Glitnis, núver­andi eig­anda 95 pró­sent hlutar í Íslands­banka, og fram­kvæmda­hópur um losun fjár­magns­hafta átt fundi tíma­bil­inu 25. sept­em­ber til 13. októ­ber vegna breyt­inga á stöð­ug­leika­fram­lagi kröfu­haf­anna. Nið­ur­staðan varð sú að afhenda rík­inu Íslands­banka að fullu. Eftir þessar breyt­ingar taldi fram­kvæmda­hóp­ur­inn að slitabú Glitnis sé að mæta stöð­ug­leika­skil­yrðum stjórn­valda og því séu for­sendur fyrir und­an­þágu frá gjald­eyr­is­höftum fyrir hendi.

Tíminn á þrotum?

Slita­búin hafa öll fengið sam­þykki fyrir því á kröfu­hafa­fundum sínum að greiða stöð­ug­leika­fram­lag til rík­is­sjóðs. Samtals á það að lág­marki að nema 334 millj­örðum króna.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans eru nauða­samn­ings­drög Kaup­þings og gamla Lands­bank­ans nokkuð nálægt því að mæta upp­settum stöð­ug­leika­skil­yrðum. Stóra vanda­málið hefur verið Glitnir, það slitabú sem á að greiða uppi­stöð­una í stöð­ug­leika­fram­lag­inu. Það vanda­mál var talið leyst með því að búið myndi afhenda Íslands­banka.

Í morgun var þó greint frá því í Morg­un­blað­inu að slita­stjórnir föllnu bank­anna telji að sá tími sem þær hafa til að leggja fram, og und­ir­búa, frum­varp um nauða­samn­ing vera á þrotum. Ástæðan er sú að Seðla­banki Íslands hefur ítrekað dregið að birta svör um skil­yrði fyrir und­an­þágum frá fjár­magns­höftum. Því hafa slita­stjórnir gamla Lands­bank­ans (LBI) og Kaup­þings þegar sent kröfu­höfum sínum gögn vegna nauða­samn­ing­anna, þrátt fyrir að svör Seðla­bank­ans um hvort búin mæti settum stöð­ug­leika­skil­yrðum liggi ekki fyrir.

Allt opinberað á morgun

Nú er ljóst að nið­ur­staðan um hvort slita­búin hafi mætt stöð­ug­leika­skil­yrðum stjórn­valda, sem er for­senda þess að sleppa við 39 pró­sent stöð­ug­leika­skatt, liggur fyrir. Sú nið­ur­staða verður kynnt almenn­ingi á morgun.

Þótt nið­ur­staðan verði sú að öll búin upp­fylli skil­yrðin er ekki þar með sagt að nauða­samn­ings­leið þeirra gangi upp. Það á enn eftir að leggja nauða­samn­ing fyrir kröfu­hafa­fund og leggja hann svo fyrir dóm­stóla til sam­þykktar. Þetta þarf allt að ger­ast fyrir 31. des­em­ber, ann­ars fellur 39 pró­sent stöð­ug­leika­skattur á búin.

Gamli Lands­bank­inn áætlar að láta kröfu­hafa sína kjósa um nauða­samn­ing sinn 17. nóv­em­ber næst­kom­andi og Kaupþing hefur boðað sína kröfu­hafa á fund 24. nóv­em­ber til sömu erinda­gjörða. Glitnir stefnir að því að halda slíkan kröfu­hafa­fund um miðjan nóv­em­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár