Slitastjórnir föllnu bankanna telja tímann á þrotum – Stjórnarþingmenn í viðbragðsstöðu

Slita­stjórnir föllnu bank­anna telja þann tíma sem þær hafi til að leggja fram, og und­ir­búa, frum­varp um nauða­samn­ing vera á þrotum. Ástæðan er sú að Seðla­banki Íslands hefur ítrekað dregið að birta svör um skil­yrði fyrir und­an­þágum frá fjár­magns­höftum. Því hafa slita­stjórnir gamla Lands­bank­ans (LBI) og Kaup­þings þegar sent kröfu­höfum sínum gögn vegna nauða­samn­ing­anna, þrátt fyrir að svör Seðla­bank­ans um hvort búin mæti settum stöð­ug­leika­skil­yrðum liggi ekki fyrir. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í morgun.

Þar segir að ekki hafi verið lengur hægt að bíða lengur með birt­ingu gagn­anna vegna tíma­frests sem alrík­is­lög í Banda­ríkj­unum kveða á um varð­andi birt­ing­ar­frest gagn­vart þar­lendum kröfu­höfum. Lítið svig­rúm er til að breyta gögn­unum eftir að þau hafa verið send út. Því eru slita­búin að ganga út frá því að Seðla­bank­inn muni sam­þykkja þau óbreytt, án þess að slíkt sam­þykki liggi opin­ber­lega fyrir. LBI áætlar að láta kröfu­hafa sína kjósa um nauða­samn­ing sinn 17. nóv­em­ber næst­kom­andi og Kaupþing hefur boðað sína kröfu­hafa á fund 24. nóv­em­ber til sömu erinda­gjörða.

Samþykki Seðla­bank­inn ekki beiðnir þeirra að mestu leyti óbreyttar segja heim­ildir Morg­un­blaðs­ins að stöð­ug­leika­skattur falli óhjá­kvæmi­lega á slita­búin tvö „sem aftur kalli hol­skeflu mál­sókna yfir íslenska ríkið.“

Samkvæmt Morg­un­blað­inu fengu þing­menn stjórn­ar­flokk­anna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks, boð rá for­ystu­mönnum sínum snemma í gær­morgun um að vera við­búnir því að vera kall­aðir á þing­flokks­fund fyr­ir­vara­lítið, eða fyr­ir­vara­laust, til þess að fjalla um laga­frum­vörp um afnám hafta.

Mikill titringur

Kjarninn hefur greint frá því að mik­ill titr­ingur hafi verið á meðal kröfu­hafa að und­an­förnu, sér­stak­lega eftir að Seðla­bank­inn frestaði birt­ingu á Fjár­mála­stöð­ug­leika­riti sínu. Þar átti að vera við­auki um þau stöð­ug­leika­skil­yrði sem slita­búin þurfa að greiða til að kom­ast hjá 39 pró­sent stöð­ug­leika­skatti og um nauða­samn­ing þeirra. Á kynn­ing­ar­fundi vegna útkomu rits­ins átti líka að opin­bera mat á til­lögum um aðgerðir og greiðslu stöð­ug­leika­fram­lags sem upp­fylla ættu sett stöð­ug­leika­skil­yrði stjórn­valda. Fjár­mála­stöð­ug­leika­ritið var birt­fyrr í þessum mán­uði en ekki við­aukin. Hann hefur enn ekki verið birtur.

Í byrjun síð­ustu viku dró svo til tíð­inda. Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið sendi frá sér tilkynn­ingu klukkan 4:10 aðfara­nótt 20. októ­ber þar sem til­kynnt var að íslenska ríkið væri að fara að eign­ast annan banka, Íslands­banka, að öllu leyti. Fyrir á ríkið Lands­bank­ann og 13 pró­sent hlut í Arion banka. Þetta var nið­ur­staða funda sem ráð­gjafar stærstu kröfu­hafa Glitnis, núver­andi eig­anda 95 pró­sent hlutar í Íslands­banka, og fram­kvæmda­hópur um losun fjár­magns­hafta áttu á tíma­bil­inu 25. sept­em­ber til 13. októ­ber vegna breyt­inga á stöð­ug­leika­fram­lagi kröfu­haf­anna.

Eftir þessar breyt­ingar telur fram­kvæmda­hóp­ur­inn að slitabú Glitnis sé að mæta stöð­ug­leika­skil­yrðum stjórn­valda og því séu for­sendur fyrir und­an­þágu frá gjald­eyr­is­höftum fyrir hendi. Og eftir þessa breyt­ingu er íslenska ríkið orðið eig­andi að tveimur af þremur stærstu bönkum lands­ins. Seðla­bank­inn á hins vegar enn eftir að stað­festa þetta mat.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár