Þegar kæliskápurinn bilar

Hvað ger­ist þegar kæli­skáp­ur­inn bilar? Þá er voð­inn vís. Ný skýrsla stað­festa alvar­lega þróun vegna hlýn­unar jarðar.

Allir vita hvað ger­ist þegar kæli­skáp­ur­inn bilar: það sem í honum er eyði­leggst. Fyrst mjólkin og svo allt hitt smátt og smátt. Eigandi skáps­ins hefur tvo kosti: láta gera við eða kaupa nýjan. Nú er stærsti kæli­skápur ver­aldar far­inn að hökta og honum er ekki hægt að skipta út. Sjálft Norð­ur­skautið.

Fyrir nokkrum dögum var birt ný skýrsla, unnin af níu­tíu vís­inda­mönnum, í sam­vinnu við Norð­ur­skauts­ráðið. Nið­ur­stöður skýrsl­unnar eru, að mati margra sér­fræð­inga, ugg­væn­legar. Kalla hana svarta. Skýrslan stað­festir þær miklu breyt­ingar sem í dag­legu tali eru kenndar við hlýnun jarðar. Allir þekkja umræð­una um síaukna losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda af manna­völdum. Íbúum jarð­ar­innar fjölgar stöðugt, bílum fjölgar, flug­um­ferð eykst ár frá ári, jarð­ar­búar borða sífellt meira nauta­kjöt (melt­ing jórt­ur­dýra leysir út mikið magn met­ans), hægt gengur að draga úr notkun jarð­efna­elds­neytis en ófull­kom­inn bruni þess veldur mik­illi losun met­ans. Margt fleira mætti nefna sem ýtir undir hlýn­un­ina.

Sérfræðingarnir vöruðu við

Mörg ár eru síðan sér­fræð­ingar vöktu athygli á að ef mann­skepnan brygð­ist ekki við „gerði ekki eitt­hvað í mál­inu“ myndi allt enda með ósköpum. Mörgum fannst sér­fræð­ing­arnir draga upp dökka og kannski óraun­sæja mynd af fram­tíð­inni og sumir köll­uðu jafn­vel við­var­an­irnar hræðslu­á­róður. Nú eru flestir, ekki þó allir, á einu máli um að mik­ill vandi blasi við og hann sé af manna­völdum. Danskur sér­fræð­ingur um lofts­lags­mál sagði í við­tali, eftir að skýrslan var birt, að við­vör­un­ar­ljósin væru hætt að blikka, nú logi þau stöðugt.

Parísarráðstefnan

Á und­an­förnum árum hafa verið haldnar fjöl­margar ráð­stefnur um lofts­lags­mál og leiðir til að bregð­ast við hlýnun jarðar. Ráð­stefn­urnar hafa ekki allar skilað miklum árangri. Í stuttu máli má segja að oft­ast hafi verið sam­komu­lag um að aðgerða væri þörf en hins­vegar ekki í hverju þær aðgerðir skyldu fel­ast. Allir vildu fá að halda sínu óbreyttu en æski­legt væri að „hinir“ gerðu eitt­hvað.

[links]Í des­em­ber 2015 var haldin fjöl­menn ráð­stefna í París, um lofts­lags­mál. Oftast kölluð Par­ís­ar­ráð­stefnan. Þegar hún var haldin, eftir marg­hátt­aðan og vand­aðan und­ir­bún­ing, var það ein­róma (eða nær ein­róma) álit sér­fræð­inga að komið væri að ögur­stund. Það sýnir kannski alvöru máls­ins að margir sögðu þetta mik­il­væg­ustu ráð­stefnu í sögu mann­kyns. Þarna voru sett mark­mið sem full­trúar 196 ríkja skrif­uðu undir og skuld­bundu sig til að hlíta. Mark­miðin, og aðferðir og aðgerðir til að ná þeim, eru bæði mörg og flókin en það sem mestu skiptir er mark­miðið um að halda hlýnun loft­hjúps­ins innan við 2 gráður fram til árs­ins 2100 en reynt skuli að halda hlýnun innan við 1,5 gráðu. Íslend­ingar þekkja vel afleið­ingar hækk­andi hita­stigs, jökl­arnir minnka með ógn­ar­hraða og Ok, sem var talið minnsti jök­ull lands­ins er orðið að skafli.

Skýrslan

Í áður­nefndri skýrslu um breyt­ing­arnar á Norð­ur­skauts­svæð­inu kemur fram að haf­ís­inn á svæð­inu er nú aðeins 35% þess sem hann var árið 1975. Og ef svo fer fram sem horfir verður hann nær algjör­lega horf­inn eftir 13 ár. Fast­landsís­inn á Græn­landi og ísbreiðan á Norð­ur­skaut­inu minnkar og þynn­ist ár frá ári og vís­inda­menn telja að yfir­borð sjávar muni hækka um að minnsta kosti fimm­tíu senti­metra, jafn­vel allt að einum metra, fram til árs­ins 2100. Það hefði gríð­ar­legar breyt­ingar í för með sér. Með­al­hita­stig á Norð­ur­skaut­inu hefur hækkað um 3,5 gráður á fimmtán árum. Afleið­ingar þess­ara breyt­inga eru þegar farnar að koma í ljós, dýra­líf á Norð­ur­slóðum er í hættu, fisk­göngur verða með öðrum hætti en áður og fleira mætti nefna.

Miklar sveiflur í veðrinu

Stormar og úrhellis­rign­ingar eru mun algeng­ari en áður var og þegar hærra sjáv­ar­yf­ir­borð bæt­ist ger­ist það að stór land­svæði, ekki síst í borgum, fara undir vatn. Veðr­áttan er „ofsa­fengn­ari“ eins og danskur vís­inda­maður komst að orði. Í Danmörku, þar sem pistla­höf­undur er búsettur, hefur nokkrum sinnum á und­an­förnum árum orðið mikið tjón af völdum veð­urs. Í júlí­byrjun árið 2011 opn­uð­ust himn­arnir, ef svo má segja, og úrkoman mæld­ist 150 milli­metrar á tveimur klukku­stundum. Tjónið af völdum úrhell­is­ins varð mest í Kaup­manna­höfn, þar sem margir kjall­arar í mið­borg­inni fyllt­ust af vatni og í öðrum hverfum borg­ar­innar varð víða umtals­vert tjón. Sagan end­ur­tók sig árið 2014 og sömu­leiðis 2016 þótt það jafn­að­ist ekki á við júlíúr­kom­una 2011. Í byrjun þessa árs gekk mikið óveður yfir landið og þá hækk­aði yfir­borð sjávar á Suður-Jótlandi um 1,77 metra.

Danir köll­uðu þetta 100 ára flóð, með vísan í að slíkt sem þetta ger­ist einu sinni á hverri öld. Danskir sér­fræð­ingar segja að þetta heiti, 100 ára flóð, verði brátt úrelt því búast megi við að atburðir sem þessir verði nú mun tíð­ari. Fyrir tveimur árum þrýsti mikið hvass­viðri sjó úr Eyr­ar­sundi inn í sundið sem skilur eyj­una Amager frá Kaup­manna­höfn (Amager til­heyrir Kaup­manna­höfn) og Sjálandi. Þá flæddi um hluta Nýhafn­ar­innar og ef „venju­legt“ sjáv­ar­borð hefði verið hálfum metra hærra (eins og spáð er að ger­ist) hefði tjónið orðið gríð­ar­legt. Svipað hefur gerst við Hró­arskeldu­fjörð­inn, Danska vík­inga­safnið sem stendur fyrir botni fjarð­ar­ins, og geymir þjóð­ar­ger­semar, hefur hvað eftir annað verið í stór­hættu og nú er talað um að flytja það á annað svæði. Þetta eru aðeins örfá dæmi um afleið­ingar breytts veð­ur­fars og þótt hér sé sagt frá Danmörku er svip­aða sögu að segja frá fjöl­mörgum löndum.

Rástafanir kosta peninga

Mik­il­vægt er að þjóðum heims auðn­ist að standa við sam­komu­lag Par­ís­ar­ráð­stefn­unnar um að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og sjá til þess að hita­stig hækki ekki umfram mark­miðin sem að er stefnt. Um þetta eru flestir sam­mála. En hlut­irnir breyt­ast ekki á einum degi og þótt yfir­borð sjávar hækki kannski ekki jafn mikið og spár gera ráð fyrir er nauð­syn­legt að gera ráð­staf­anir til að vernda land­svæði, borgir og bæi.

Slíkar ráð­staf­anir kosta pen­inga, mikla pen­inga. Mörg lönd hafa sett í gang (sum fyrir all­mörgum árum) áætl­anir til að koma í veg fyrir að sjór geti óhindrað flætt yfir stór svæði og úrhelli valdið stór­tjóni eins og mörg dæmi eru um á síð­ustu árum. Þekkingu á ofurafli nátt­úr­unnar hefur fleygt mjög fram á und­an­förnum ára­tugum og tækn­inni til að bregð­ast við sömu­leiðis.

Máls­hátt­inn „orð eru til alls fyrst“ þekkja flestir, en vita líka að þau duga sjaldn­ast ein og sér. Það má með sanni segja um Par­ís­ar­ráð­stefn­una marg­nefndu, þar hafa orðin verið sögð og sett á blað en von­andi verður ekki látið þar við sitja. Til þess er of mikið í húfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár