Losun gróðurhúsalofttegunda frá Íslandi heldur áfram að aukast

Útstreymi frá Íslandi jókst um 1,9% 2014-2015. Losunin eykst enn og er nú 28% meiri en árið 1990. Ísland er skuld­bundið til að minnka losun um 20%.

Um það bil 45% losunar frá Íslandi kemur frá iðnaði. fjórðungur losunarinnar er tilkomin vegna orkunotkunar og þá helst vegna bruna jarðefnaeldsneytis. Landbúnaður er uppspretta um 13% útstreymisins. Restin fellur undir aðra þætti.
Um það bil 45% los­unar frá Íslandi kemur frá iðn­aði. fjórð­ungur los­un­ar­innar er til­komin vegna orku­notk­unar og þá helst vegna bruna jarð­efna­elds­neytis. Land­bún­aður er upp­spretta um 13% útstreym­is­ins. Restin fellur undir aðra þætti. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ísland los­aði meira af gróð­ur­húsa­loft­teg­undum árið 2015 en árið 2014. Mesta los­unin er frá álf­ram­leiðslu og næst mest frá vega­sam­göngum. Þetta kemur fram í los­un­ar­bók­haldi Íslands sem skilað hefur verið til Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Útstreymi gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá Íslandi jókst um 1,9 pró­sent á milli ára 2014 og 2015 og hefur útstreymið ekki verið hærra síðan árið 2010.

Útstreymi gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá Íslandi hafði auk­ist um 28 pró­sent árið 2015 miðað við við­mið­un­ar­árið 1990. Losun frá Íslandi náði hæstu hæðum árið 2008 vegna stór­auk­inna umsvifa stór­iðju hér á landi. Í kjöl­far efna­hags­þreng­inga sama ár og vegna auk­inna krafa um föngun kolefnis frá stór­iðju dróst losun saman á árunum 2009, 2010 og 2011 en var svo nokkuð svipuð þar eftir.

Sé rýnt í þær breyt­ingar sem orðið hafa síðan 1990 má sjá að iðn­að­ar­fram­leiðsla ber ábyrgð á rúm­lega helm­ingi aukn­ing­ar­innar til árs­ins 2015. Far­ar­tæki á landi bera ábyrgð á nærri því fjórð­ungi aukn­ing­ar­innar.

Umhverf­is­stofnun ber ábyrgð á því að taka saman og halda utan um los­un­ar­bók­haldið sem íslenskum stjórn­völdum er skylt að skila vegna skuld­bind­inga Kýótó-bók­un­ar­innar. Seinna skuld­bind­ing­ar­tíma­bil Kýótó-bók­un­ar­innar svoköll­uðu hófst árið 2013 og lýkur árið 2020. Íslensk stjórn­völd hafa skuld­bundið sig til þess að minnka losun um 20 pró­sent á tíma­bil­inu. Ísland tekur þar þátt í sam­eig­in­legum mark­miðum með aðild­ar­ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins.

Í nýj­ustu bók­halds­skýrsl­unni sem skilað var til Ramma­samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­mál 13. apríl síð­ast­lið­inn er fjallað um losun árs­ins 2015.

[adspot]

Loftslagsprófíll Íslands

Íslenskt útstreym­is­lands­lag er nokkuð óvenju­legt því sem þekk­ist ann­ars staðar í heim­inum og í þeim löndum sem Ísland ber sig vana­lega við í efn­hags­legum skiln­ingi. Fjórar meg­in­á­stæður búa þar að baki.

Fyrir það fyrsta þá er losun vegna raf­orku­fram­leiðslu og hús­hit­unar á Íslandi veru­lega lág miðað við löndin á meg­in­landi Evrópu. Hér fer raf­orku­fram­leiðsla að mestu fram með vatns­afls- og háhita­virkj­unum og hús eru hituð með jarð­hita.

Nærri því 80 pró­sent útstreymis frá því sem heitir orku­geiri (e. Energy sector) í alþjóð­legum sam­an­burði er frá sam­göngum. Þar ber helst að nefna bíla­um­ferð og fiski­skipa­flot­ann sem gengur meira og minna fyrir jarð­efna­elds­neyti.

[links]Í þriðja lagi er útstreymi vegna land­notk­unar nokkuð mikil hér á landi. Helgast það að mestu af fram­ræslu mýra í sveitum sem og í þétt­býli á seinni helm­ingi síð­ustu aldar. Nýlegar rann­sóknir sýna að útstreymi gróð­ur­húsa­loft­teg­unda vegna þess­ara land­breyt­inga getur verið tölu­vert og staðið yfir um langt skeið. Skurð­gröftur til þess að þurrka upp land var að mestu hætt um 1990.

Talið er að um helm­ingur alls land­ræns vot­lendis hafi verið raskað með fram­ræslu hér á landi. Um 13 pró­sent þess lands sem hefur verið ræst fram er í notkun, ýmist sem rækt­ar­land eða skóg­lendi.

Þó ber að hafa í huga að í heild­ar­út­blást­urs­tölum er land­notkun yfir­leitt und­an­skilin, nema annað sé tekið fram sér­stak­lega. Losun vegna land­notk­unar og land­breyt­inga er ríf­lega tvö­föld losun frá öðrum geirum sem tekið er til­lit til í bók­hald­inu.

Fjórða sér­kenni hins íslenska lofts­lags­prófíls er hversu mikla ábyrgð iðn­að­ar­fram­leiðsla ber í los­un­ar­bók­haldi Íslands. Um 45 pró­sent allrar los­unar, sé land­notk­unin und­an­skilin, má rekja til iðn­að­ar­fram­leiðslu. Það er jafn­framt ein­kenni á losun frá Íslandi að eitt verk­efni getur haft mikil áhrif á heild­ar­losun á árs­grund­velli.

Ástæða þessa er smæð íslenska hag­kerf­is­ins. Eitt meng­andi álver til við­bótar í kerfið getur aukið heild­ar­losun frá Íslandi um meira en 15 pró­sent, að því er kemur fram í los­un­ar­bók­haldi Umhverf­is­stofn­unar.

Ísland þarf að minnka losun

Ísland hefur geng­ist við enn frek­ari skuld­bind­ingum eftir árið 2020. Í Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu sem sam­þykkt hefur verið á Alþingi tekur Ísland áfram þátt í sam­eig­in­legum mark­miðum ESB-ríkja. Þar skuld­binda aðild­ar­ríkin, ásamt Íslandi og Noregi, til þess að draga úr losun um 40 pró­sent árið 2030 miðað við árið 1990.

Íslensk stjórn­völd lögðu fram mark­mið sín í aðdrag­anda lofts­lags­ráð­stefn­unnar í París árið 2015. Þar er því lýst yfir að Íslend­ingar ætli að taka á sig „sann­gjarnar byrgðar“ (e. fair share) í mark­miði ESB. Um þessar sann­gjörnu byrgðar verður á end­anum samið.

Enn er beðið eftir því að reglu­gerð Evr­ópu­sam­bands­ins um þessi sam­eig­in­legu mark­mið verði sam­þykkt. Þangað til er óvíst hver end­an­leg skuld­bind­ing Íslands í Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu verður. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er gert ráð fyrir að Ísland muni þurfa að draga úr losun um 35-40 pró­sent til árs­ins 2030.

Vegna þátt­töku Íslands í sam­eig­in­legum mark­aði Evr­ópu­sam­bands­ins með los­un­ar­heim­ildir fellur um það bil 40 pró­sent af losun Íslands utan skuld­bind­ing­anna. Það þýðir að stjórn­völd hér á landi eru ekki skuld­bundin í alþjóða­samn­ingum til þess að draga úr losun frá álf­ram­leiðslu, járn­blendi, alþjóða­flugi og fleiri geirum sam­fé­lags­ins.

Í skýrslu Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands um stöðu Íslands í lofts­lags­málum sem kynnt var í febr­úar á þessu ári kemur fram að íslensk stjórn­völd þurfa að grípa til rót­tækra aðgerða ef mark­mið í lofts­lags­málum eiga að nást.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár