Segir það fáránlegt að stjórnin þurfi þetta langan tíma til að „endurnýja heitin“

Þing­maður Við­reisnar gagn­rýnir hæga­gang í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum og segir allt vera óeðli­legt við ástandið. Sigríður Á. Andersen tekur undir með þing­mann­inum en bendir á að það þurfi ekki ræðu­stól Alþingis til að tjá sig um hin ýmsu mál­efni.

Þorbjörg Sigríður
Þorbjörg Sigríður Mynd: Bára Huld Beck

Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir þing­maður Við­reisnar gerir stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður Fram­sókn­ar­flokks­ins, Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Vinstri grænna að umræðu­efni á Twitter í dag.

„Þingi var frestað 13. júní. Tæpar sjö vikur eru frá kosn­ingum, þing hefur ekki verið að störfum mán­uðum saman og stór mál fá ekki umræðu á þingi. Það er allt óeðli­legt við þetta ástand. Og fárán­legt að stjórnin þurfi þennan langa tíma til að end­ur­nýja heitin í þessu hjóna­bandi,“ skrifar Þorbjörg.

Sigríður Á. Andersen fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og ráð­herra seg­ist í svari á Twitter vera sam­mála Þor­björgu. „En liggur þing­mönnum eitt­hvað á hjarta? Þeir eru varla múl­bundnir. Hvar heyr­ist í þeim um helstu mál, sótt­varna­að­gerðir, efna­hags­lífið framundan ...? Það þarf nú ekki ræðu­stól­inn til að tjá sig,“ segir hún.

Hanna Katrín Frið­riks­son þing­flokks­for­maður Við­reisnar tekur þátt í sam­ræð­unni á Twitter og segir að allan þennan tíma hafi for­menn­irnir þrír hafnað sam­tölum við aðra flokka því við­ræð­urnar gangi svo vel.

Hæglega hefur gengið að mynda nýja rík­is­stjórn en í dag eru 47 dagar frá kosn­­ing­­unum. Einu stjórn­­­ar­­mynd­un­­ar­við­ræð­­urnar sem átt hafa sér stað eru á milli þeirra þriggja flokka sem störf­uðu saman í rík­­is­­stjórn á síð­­asta kjör­­tíma­bili. Við­ræður þeirra hafa nú staðið yfir í lengri tíma en það tók að mynda rík­­is­­stjórn eftir kosn­­ing­­arnar 2017, þrátt fyrir að reynt hafi verið við tvö mis­mun­andi form þá.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og for­maður VG benti á í sam­tali við Kjarn­ann í síð­ustu viku að flokk­arnir þrír væru ólíkir og auð­vitað ekki með sömu stefn­u­­skrá. „Það er krefj­andi verk­efni að búa til stjórn­­­ar­sátt­­mála þó að við séum búin að vinna lengi sam­­an. Svo þekkj­umst við nátt­úru­­lega miklu betur en fyrir fjórum árum. Við vitum hvar pytt­irnir eru,“ sagði Katrín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár